Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Qupperneq 48
Helgarblað 22.–26. maí 201548 Sport
Týndu mennirnir
S
tóru félögin, bæði á
Englandi og víðar, sanka
gjarnan að sér miklum
fjölda efnilegra leikmanna
– og jafnvel fyrir háar fjár-
hæðir. Sumir þeirra blómstra strax,
aðrir eftir einhvern tíma en margir
komast aldrei að hjá félaginu sem
borgar þeim launin. Hér er listi yfir
18 leikmenn sem hafa verið sendir
burt sem lánsmenn í vetur, eða jafn-
vel mörg liðin keppnistímabil. Sum-
ir hafa blómstrað sem lánsmenn á
meðan aðrir virðast ekki eiga mikla
framtíð fyrir sér á meðal þeirra
bestu. Flestra þessara leikmanna
bíður óvissa um framtíðina. n
n 18 gleymdir leikmenn sem voru lánaðir burt í vetur n Hvað gera þeir í sumar?
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Nani
Félag: Manchester United Aldur: 28 ára
Nani snýr nú aftur á Old Trafford þar sem
hans bíður óvissa. Hann hefur verið að láni
hjá Sporting Lisbon, sem hefur ekki efni
á því að borga honum 100 þúsund pund á
viku. Spurningin er hvort eitthvert lið vilji
kaupa hann ef hann gerir launakröfur í
samræmi við það sem hann hefur í dag.
Sylvian Marveaux
Félag: Newcastle Aldur: 29 ára
Miðjumaður sem Newcastle keypti frá Rennes í Frakklandi árið
2011. Hann stóð sig afleitlega með Newcastle, í 38 leikjum, og
ólíklegt þykir að hann klæðist þeirri treyju aftur. Hann spilar sem
lánsmaður Guingamp í Frakklandi.
Josh McEachran
Félag: Chelsea Aldur: 22 ára
McEachran þótti um tíma einhver
efnilegasti miðvallarleikmaður á
Bretlandseyjum. Hann hefur verið hjá
Chelsea frá sjö ára aldri en aðeins spilað
11 leiki fyrir félagið. Hann hefur verið
lánaður til Swansea, Middlesbrough,
Watford, Wigan og nú síðast Vitesse.
Hann á líklega enga framtíð hjá Chelsea.
Ryo Miyaichi
Félag: Arsenal Aldur: 22 ára
Þessi japanski vængmaður var
lofaður í hástert af Wenger
þegar hann gekk í raðir félagsins
2011. Hann hefur hins vegar
aldrei fengið tækifæri en hefur
spilað sem lánsmaður fyrir
Feyenoord, Bolton, Wigan og
Twente síðan. Ólíklegt þykir að
hann vinni sig inn í Lundúnaliðið.
Joel Campbell
Félag: Arsenal Aldur: 22 ára
Því var spáð að Campbell myndi í vetur
vinna sér sæti í liði Arsene Wenger. Það
gekk ekki eftir og hann var lánaður, í
enn eitt skiptið, til Spánar. Hann er með
samning við Arsenal til 2016 og gæti átt
eftir að blómstra, enda ungur að árum.
Karim Rekik
Félag: Manchester City Aldur: 20 ára
Hollendingurinn er um þessar mundir á láni hjá sínu þriðja félagi,
eftir að hann gekk til liðs við City. Hann er með samning til ársins
2016 og gæti freistað þess að berjast um sæti í liðinu. Hann hefur
verið fastamaður hjá PSV í vetur.
Alvaro Negredo
Félag: Manchester City Aldur: 29 ára
Negredo byrjaði með látum þegar hann
kom til City 2013 en meiddist svo og náði
sér ekki á strik aftur. Núna er hann á láni
hjá Valcencia og fregnir herma að það
muni reyna að tryggja sér þjónustu hans
til framtíðar í sumar.
Michu
Félag: Swansea
Aldur: 29 ára
Michu sannaði svo um
munaði á fyrsta tímabili
að hann getur skorað í
ensku úrvalsdeildinni. Eftir
2 mörk í 17 leikjum á þeirri
næstu var hann lánaður til
Napoli þar sem hann hefur
glímt við meiðsli og lítið
sem ekkert spilað. Óljóst er
hver framtíð hans verður.
Angelo Henriquez
Félag: Manchester United Aldur: 21 árs
Henriquez hefur spilað frábærlega fyrir Dinamo Zagreb í Króatíu
á leiktíðinni, þar sem hann hefur skorað hvorki fleiri né færri en
26 mörk. Hann virðist þó seint ætla að fá alvöru tækifæri á Old
Trafford. Hann er sagður vilja vera áfram í Króatíu.
Pablo Daniel Osvaldo
Félag: Southampton Aldur: 29 ára
Enginn hjá Southampton hefur saknað vandræðagemlingsins
Pablo Osvaldo. Hann hefur leikið með Boca Juniors í vetur og
þykir næsta víst að Ítalinn verði seldur frá Southampton við
fyrsta mögulega tækifæri.
Marko Marin
Félag: Chelsea Aldur: 26 ára
Chelsea keypti þennan sóknarsinnaða
miðvallarleikmann af Werder Bremen
árið 2008. Hann var lánaður til Sevilla í
hitteðfyrra og Fiorentina í fyrra, þar sem
hann spilaði ekkert. Á þessu ári hefur
hann spilað sex leiki fyrir Anderlecht, sem
hefur forkaupsrétt á honum í sumar.
Lucas Piazon
Félag: Chelsea Aldur: 21 árs
Piazon er enn einn leikmað-
urinn sem er á launaskrá hjá
Chelsea en spilar ekkert fyrir
klúbbinn. Hann kom frá Sao
Paulo 2012 en er í dag að láni
hjá Eintracht Frankfurt. Þar
hefur hann spilað 22 leiki í vet-
ur. Hann hefur gefið út að hann
vilji vera áfram í Þýskalandi.
Divock Origi
Félag: Liverpool Aldur: 20 ára
Þessi ungi sóknarmaður var
keyptur frá Lille í fyrra en
lánaður þangað strax aftur.
Hann gerir sér vonir um að
vinna sér sæti í Liverpool-
liðinu fyrir næstu leiktíð, en
félagið hefur átt í miklum
framherjavandræðum í vetur.
Javier Hernandez
Félag: Manchester United Aldur: 26 ára
Þessi skemmtilegi sóknarmaður hefur átt ágæta spretti með
Real Madrid. Hann skoraði til að mynda úrslitamarkið gegn
Atletico Madrid, sem skaut Real Madrid í undanúrslit, en hefur á
löngum stundum setið á bekknum. Ólíklegt verður að þykja að
hann verði áfram í Madríd.
Mohamed Salah
Félag: Chelsea Aldur: 22 ára
Þessi egypski landsliðsmaður hefur
slegið nokkuð óvænt í gegn sem láns-
maður hjá Fiorentina, þangað sem
hann fór í janúar. Sex mörk í 14 leikjum
bera þess vitni. Þessi ungi vængmaður
virðist aftur á móti ekki eiga framtíð
fyrir sér hjá Chelsea og er sagður
vilja vera áfram á Ítalíu.
Gael Kakuta
Félag: Chelsea Aldur: 23 ára
Chelsea braut reglur varðandi
samninga við unga leikmenn þegar
það sótti Kakuta frá Lens í Frakk-
landi. Hann hefur aðeins spilað
sex leiki fyrir Chelsea frá 2009 en
iðulega verið lánaður til annarra
liða, nú síðast Rayo Vallecano.
Hann verður líklega seldur í sumar,
en Monaco hefur sýnt áhuga.
Lukasz Podolski
Félag: Arsenal Aldur: 29 ára
Podolski hefur skorað í þriðja
hverjum leik fyrir Arsenal (19 í 60
leikjum) en var lánaður til Inter
Milan í vetur. Þar hefur hann ekki
beinlínis blómstrað og aðeins
skorað eitt mark í 14 leikjum.
Hann mun að líkindum berjast
fyrir lífi sínu hjá Arsenal í sumar
og haust.
Iago Aspas
Félag: Liverpool Aldur: 27 ára
Framherjinn var iðinn við kolann hjá
Celta á Spáni á árunum 2008–2013,
þegar hann var keyptur til Liverpool.
Hann spilaði 14 leiki fyrir Liverpool
en skoraði bara eitt mark. Aspas er á
láni hjá Sevilla og vill semja við það til
frambúðar. Sú gæti orðið raunin.