Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Side 49

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Side 49
Helgarblað 22.–26. maí 2015 Sport 49 Hjörvars Hafliðasonar Uppgjör Bestir og verstir n John Terry er besti leikmaður leiktíðarinnar n Gylfi Sig á bekknum í liði ársins Chelsea Bestur: John Terry. Leiðtoginn, hjarta liðsins. Hann framlengir sigurvilja og hungur Mourinhos inn á völlinn. Alvöru fyrirliði. Einnig góður: Eden Hazard. 14 mörk og 8 stoðsendingar voru flottar hjá Belganum. Ég geri ráð fyrir fleiri mörkum á næstu leiktíð. Vonbrigði: Ramires. Ég veit ekki hvað hefur komið fyrir Brasilíumanninn. Hann var skugginn af sjálfum sér í þeim leikjum sem hann fékk tækifæri. Man City Bestur: Kun Aguero. Ein­ faldlega besti framherjinn í enska boltanum. Hvað ef hann hefði ekki meiðst á leiktíðinni? Gæti slegið markametið í deildinni á einu tímabili á næstu leiktíð haldist hann heill. Einnig góður: David Silva. Kanarístrák­ urinn sem verður þrítugur á næstu leiktíð skemmti okkur á þessari leiktíð. Vonbrigði: Vincent Kompany. Mangala var skelfilegur en Kompany brást sínum mönnum á leiktíðinni. Oft mjög lélegur. Arsenal Bestur: Alexis Sanchez. Kaup ársins í enska bolt­ anum. Hans stjarna mun skína mun skærar á næstu leiktíð. Einnig góður: Francis Coquelin. Mætti nokk­ uð óvænt á miðju Arsenal og færði liðinu þann kraft og karlmennsku sem liðið skorti í byrjun leiktíðar. Vonbrigði: Mesut Özil. Hans önnur leiktíð með Arsenal og aftur náði hann sér ekki á strik. Slakur í stóru leikjunum. Man Utd Bestur: David De Gea. Dýrasti markvörður í sögu enska boltans stóð loksins undir verðmiðan­ um. En nú loksins þegar hann er farinn að blómstra er hann á útleið. Einnig góður: Ander Herrera. Kom með kraft á miðsvæði United og sýndi að hann er með gott auga fyrir marki. Vonbrigði: Angel Di Maria. Byrjaði vel en svo fór að halla undan fæti. Óþekkjanlegur að undanförnu. Liverpool Bestur: Coutinho. Brasilíu­ maðurinn var langbesti leikmaður Liverpool­liðsins. Á tímum var unun að fylgjast með honum. Einnig góður: Simon Mignolet. Belganum gekk illa í byrjun leiktíðar en bætti sig jafnt og þétt eftir því sem á leið leiktíðina. Vonbrigði: Dejan Lovren. Miklar vondir voru bundnar við komu Króatans í hjarta varnar Liverpool en hann náði sér ekki á strik. Nei, ég vel ekki Balotelli. Ég átti ekki von á neinu frá honum. Tottenham Bestur: Harry Kane. Því­ lík leiktíð hjá stráknum. 21 árs og orðinn einn eft­ irsóttasti framherji Evrópu. Verður gaman að fylgjast með á næstu leiktíð. Einnig góður: Nacer Chadli. Eftir erfiða leiktíð í fyrra sýndi hann okkur hvers hann er megnugur. Vonbrigði: Federico Fazio. Hvað varst þú að gera í vörn Tottenham? Hver reddaði þér þessari vinnu? Southampton Bestur: Jose Fonte. Portú­ galinn var besti leikmaður Southampton, sem kom mörgum á óvart Einnig góður: Nathaniel Clyne. Sýndi og sannaði að það er engin tilviljun að hann er talinn besti hægri bakvörður Englands. Vonbrigði: Enginn leikmaður South ampton olli mér vonbrigðum. Swansea Bestur: Ashley Williams. Ótrúlegur. Hefur leikið alla leiki Swansea á leiktíð­ inni. Hann er líklega besti leikmaður í sögu félagsins. Einnig góður: Gylfi Þór Sigurðsson. Hefur stimplað sig inn sem einn fremsti spyrnumaður enska boltans. Hans besta leiktíð á ferlinum. Vonbrigði: Federico Fernandez. Þessi maður byrjaði inn á í fyrsta leik HM hjá Argentínu. Hvernig hann fór að því mun ég aldrei vita. Óx ásmegin meðan á leiktíðinni stóð. Stoke Bestur: Bojan Krkic. Endurfæddur undir stjórn Marks Hughes. Meiddist illa í byrjun árs en á með­ an hans naut var hann í sérflokki. Einnig góður: Ryan Shawcross. Eins og Ashley Williams, kletturinn í sínu liði. Er ekki í þessu til að eignast vini. Vonbrigði: Marco Arnautovic. Come on Marco! Allir þessir töffarastælar en bara eitt mark. Everton Bestur: Romelu Lukaku. Ég hefði viljað fá fleiri mörk frá Lukaku. En hann gerði tíu mörk í deildinni og lagði upp fimm. Góð kaup hjá Martinez. Leikmaður sem mun alltaf borga sig til baka. Einnig góður: Phil Jagielka. Á leiktíð þar sem Leighton Baines og Gareth Barry hafa gefið eftir hefur enski landsliðsmiðvörðurinn náð að vera nokkuð stöðugur. Vonbrigði: Seamus Coleman. Mínar væntingar til tímabilsins voru þær að hann yrði besti hægri bakvörður deildarinnar í ár. Lék ekki eins og vel og ég taldi innistæðu fyrir. West Ham Bestur: Adrian. Markvörðurinn fór á tíðum á kostum hjá Lundúnaliðinu. Einnig góður: Aaron Cresswell. Öflugur vinstri bakvörður og hefur komið mönnum á óvart hversu fljótur hann var að aðlag­ ast ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa eytt ferlinum í 1. deild og 2. deild. Aldrei meiddur. Vonbrigði: Enner Valencia. Ekvadorinn hefur aðeins gert fjögur mörk. Átti von á meiru frá leikmanninum sem lék vel í Brasilíu í fyrrasumar á HM. Crystal Palace Bestur: Yannick Bolasie. Þvílíkur skemmtikraftur. Getur búið til eitthvað út engu. Ógnar sífellt með hraða sínum og krafti eins og Gaupi vinur minn myndi orða það. Einnig góður: Jason Puncheon. Alltaf verið aðdáandi. Leikmaður með hraða, góðar spyrnur og nú, á þessari leiktíð, með mun betri ákvarðanir en áður. Vonbrigði: Brede Hangeland. Hélt hann ætti kannski inni eitt ár í viðbót í úr­ valsdeild en líklega eru sá tími liðinn. WBA Bestur: Saido Ber­ ahino. Einn allra besti framherji Englendinga. Verður gaman að sjá hvar hann verður á næstu leiktíð. Einnig góður: Joleon Lescott. Margir höfðu afskrifað stóra manninn. Hann átti góða leiktíð og stuðningsmenn WBA vilja sjá hann aftur í landsliðinu. Vonbrigði: Stephane Sessegnon. Beníninn hreinlega nennir þessu ekki lengur. Þökkum honum samt fyrir komuna í enska boltann. Leicester Bestur: Esteban Cambiasso. Argent­ ínumaðurinn var hjartað í ótrúlegri björgun Refanna frá falli. Einstakur karakter. Einnig góður: Jamie Vardy. Framherjinn fljóti var ómetanlegur fyrir sína menn. Skoraði aðeins fjögur mörk en lagði upp átta. Vonbrigði: Andrej Kramaric. Króatinn sýndi mér ekkert af hverju Leicester þurfti að „stela“ honum af Chelsea. Hlakka til að fylgjast með honum á næstu leiktíð. Sunderland Bestur: Costel Pantilimon. Hugsa sér ef hann væri svalur þá væri hann líklega álitinn einn besti markvörður heims. Forréttindi að fylgjast með honum á lokakaflanum. Einnig góður: Jordi Gomez. Gamli Wigan­ maðurinn kom mér þægilega á óvart. Hægur leikmaður en ótrúlega seigur. Kann leikinn mjög vel. Vonbrigði: Connor Wickham. Ég veit að hann hefur skorað flest deildarmörk fyrir liðið (5). En ég vonaðist eftir miklu meira frá honum í ár. Aston Villa Bestur: Fabian Delph. Á heildina litið langbesti leikmaður Aston Villa á leiktíðinni. Magnaður leikmaður sem gefst aldrei upp! Einnig góður: Christian Benteke. Aston Villa hefði aldrei haldið sér uppi ef ekki hefði verið fyrir mörkin hans undir lokin. Vonbrigði: Ron Vlaar. Vissulega var hann meiddur lungann úr leiktíðinni en meðan hans naut við lék hann aldrei eins og sá Ron Vlaar sem við sáum með Hollendingum í Brasilíu. Newcastle Bestur: Jack Colback. Hinn rauðhærði Pirlo, eins og stuðningsmenn Newcastle kalla hann, hefur leikið best allra hjá þeim svarthvítu. Einnig góður: Vonbrigði: Ayoze Perez. Spænski framherjinn kostaði nánast ekkert frá Tenerife. Hefur skorað sjö mörk. Framtíðin er hans. Vonbrigði: Rémy Cabella. Átti að vera skapandi sóknarmaður í liði Newcastle í vetur. Hrökk aldrei í gang. Hull Bestur: Michael Dawson. Miðvörðurinn hefur reynt að gera allt sem í hans valdi stendur til að halda liðinu uppi. Einnig góður: Nikica Jelavic. Búinn að skila átta mörkum fyrir Hull­menn. Af hverju byrj­ ar hann ekki alla leiki þegar hann er heill? Vonbrigði: Allan McGregor. Skelfilegur í marki Hull. Lætur Steve Harper slá sig út úr markinu. Segir allt sem segja þarf. Burnley Bestur: Kieran Trippier. Verið góður í hægri bakverðinum. Þarf ekki að hafa neinar áhyggjur, hann fær nýtt úrvalsdeildarlið í sumar. Einnig góður: Danny Ings. Það er afrek að skora tíu mörk í liði eins og Burnley. Verður spennandi að sjá hvert hann fer. Vonbrigði: Lucas Jutkiewicz. Fékk fjölda leikja í framlínu Burnley en var aldrei líklegur til að skora mark. QPR Bestur: Charlie Austin. Sautján mörk og fimm stoðsendingar eru frábært fram­ lag frá Austin. Einnig góður: Leroy Fer. Öflugur miðju­ maður sem ég hlakka til að sjá hvert fer næst. Vonbrigði: Sandro. Ég hélt að Brasilíu maðurinn myndi gera mun betur en hann gerði. Meðalmennska og lélegt viðhorf frá fyrsta degi. Hann þykir samt óhemju skemmti­ legur maður. De Gea Clyne Terry Williams Sanchez Cambiasso Kane Aguero Fabregas Hazard Cresswell Bekkur: Pantilimon, Costa, Kocielny, Coutinho, David Silva, Gylfi, Bertrand. Lið ársinsBestu og verstu kaupBestu kaupin: Alexi Sanchez Arsenal Verstu kaupin: Mario Balotelli Bestu kaup utan vallar: Nýtt lækna­ teymi Arsenal. Óvenju góð heilsa á Emirates í ár. Verstu kaup utan vallar: Sky keypti Thierry Henry. Hann talar en segir manni aldrei neitt sem maður vissi ekki fyrir. Stjóri ársins 1. Jose Mourinho 2. Ronald Koeman 3. Nigel Pearson 4. Gary Monk 5. Allan Pardew

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.