Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2015, Qupperneq 61
Fólk 61Helgarblað 22.–26. maí 2015
Kr
in
gl
an
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabraut
Miklabraut
Við
erum
hér!
Tilb
oð
17 10 bitar fyrir 4-5
5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa.
Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
S
igurvin „Fíllinn“ Jónsson,
uppistandari og fyndnasti
maður Íslands árið 2002,
er að safna áheitum fyrir
Neistann.
Hann ætlar sér að komast í svo-
kallaða „slim fit“-skyrtu, sem vinur
hans Jón Ragnarsson í versluninni
Joe's á Akureyri gaf honum, áður
en fyrsti jólasveinninn kemur til
byggða í desember.
Hættur í bjórnum
„Ég varð fimmtugur 8. maí og datt
í hug að gera eitthvað skemmti-
legt úr því. Ég átti systur sem dó úr
hjartagalla þegar hún var tveggja
ára og langaði að gera þetta í minn-
ingu hennar,“ segir Sigurvin, sem
býst við að hann þurfi að missa tólf
kíló til að komast í skyrtuna. „Ég er
hættur í bjórnum en maður fær sér
kannski einhverja kokteila á Fiski-
daginn.“
Alltaf aftastur í zumba
Hann ætlar einnig að hreyfa sig
meira. „Ég fékk hjól í afmælisgjöf
og fyrsta hjólaferðin var 30 kíló-
metrar. Það var kannski alveg í það
mesta. Ég gat ekki gengið í tvo daga
á eftir. Svo ætla ég að dansa zumba
með stelpunum. Það er bara út frá
fagurfræðilegu sjónarmiði. Ég er
alltaf aftastur í röðinni. Það er lang-
skemmtilegasta útsýnið þaðan.“
Þarf að geta alið börnin upp
Sigurvin hefur glímt við sykursýki
og segir að allt framangreint eigi
eftir að hjálpa honum að breyta lífi
sínu til hins betra. Hann er fimm
barna faðir, auk þess sem þriðja
afabarnið er á leiðinni og hefur
því í nógu að snúast á heimilinu.
„Maður þarf að geta alið börnin sín
upp. Það þýðir ekkert að detta nið-
ur dauður einn daginn. Ég er oft
búinn að reyna að gera svona lagað
síðustu ár. Það hefur gengið ágæt-
lega til að byrja með en svo hefur
það klikkað. Núna ákvað ég að
setja meiri pressu á sjálfan mig. Ég
er keppnismaður og ætla mér að
ná þessu og láta gott af mér leiða í
leiðinni.“
Hjólar 140 kílómetra
Á afmælisdegi systur sinnar, 17.
júní, ætlar hann að hjóla frá Akur-
eyri yfir í Svarfaðardal þar sem
hann ætlar að heimsækja hana í
kirkjugarðinn. „Ég ætla helst að
hjóla til baka aftur. Þetta verður 140
kílómetra rúntur,“ segir Sigurvin og
er hvergi banginn.
Hægt er að heita á hann á
slóðinni www.facebook.com/fil-
innslimfit2015. n
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
„Það þýðir
ekkert að detta
niður dauður einn daginn.
Reynir að komast
í skyrtuna fyrir jól
Sigurvin „Fíllinn“ Jónsson safnar áheitum í minningu systur sinnar
Sigurvin í skyrtunni
Ætlar sér að geta hneppt
skyrtunni í desember. „Fíllinn"
í tölum
Hæð: 174 cm
Þyngd: 99 kg
Brjóst: 108 cm
Mitti: 109 cm
Fituprósenta: 34%
BMI-stuðull: 32.8
J
ón Jónsson mætir til Vest-
mannaeyja um verslunar-
mannahelgina og tekur þátt í
Þjóð hátíð annað árið í röð. Hann
hefur verið staðfestur sem skemmti-
kraftur ásamt hljómsveitinni Buff.
Fótboltakappinn átti Þjóðhátíðar-
lagið í fyrra, Ljúft að vera til, sem náði
miklum vinsældum. Sálin á aftur á
móti Þjóðhátíðarlagið í ár.
Buff mun spila á sunnudags-
kvöldinu ásamt Eyþóri Inga, Páli
Óskari, Sverri Bergmann og Ágústu
Evu. Á meðal annarra flytjenda sem
hafa boðað komu sína á Þjóðhátíð
eru Bubbi&Dimma, Nýdönsk, FM
Belfast, Land og Synir og Sóldögg.
Einnig stíga á svið Maus og Júníus
Meyvant, auk þess sem Ingó sér um
brekkusönginn. n
Jón Jónsson
spilar á Þjóðhátíð
Treður upp annað árið í röð í Eyjum
Jón Jónsson
Jón spilar aftur á
Þjóðhátíð í sumar.