Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Qupperneq 3
Vikublað 27.–28. maí 2015 Fréttir 3 Komdu til oKKar ...Eða leigðu lyftu og gErðu við bílinn sjálf/ur auðbrEkku 25 (DalbrEkku mEgin) - s. 445-5562 Við gerum Við bílinn faglegar Viðgerðir Fíkniefnabrotum ökumanna hefur fjölgað um 200 prósent Brotum vegna ölvunar við akstur á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað um 34 prósent frá árinu 2007 F jöldi brota vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu jókst um tæplega 200 prósent frá árinu 2007 til 2014. Á sama tímabili fækkaði brotum vegna ölvunar við akstur um tæplega 34 prósent. Þetta kemur fram í svari lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu við fyrirspurn DV. Árið 2007 voru 337 skráð brot vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna en í fyrra voru þau orðin 1.008 talsins. Til samanburðar voru brot vegna ölvunar við akstur 1.254 árið 2007 en í fyrra hafði þeim fækk- að niður í 835. Það sem af er þessu ári er þróun- in sú sama, þ.e. að fleiri hafa verið teknir vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna en ölvaðir. Fjöldi brotanna í báðum málaflokkum er þá aðeins lægri miðað við á sama tíma í fyrra. Á síðasta ári voru í fyrsta sinn fleiri teknir vegna aksturs undir áhrif- um ávana- og fíkniefna en vegna ölv- unar við akstur. Breytt verklag lögreglunnar Ýmislegt fleira skýrir þessa fjölgun en að þeim hafi bara fjölgað sem eru farnir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Árið 2006 var lögum og verklagi lögreglu vegna aksturs und- ir áhrifum ávana- og fíkniefna breytt. Fram að því hafði lagagrunnurinn verið veikur sem gerði lögreglu erfitt fyrir að takast á við brotin. Þá hefur aukin þekking og betri búnaður lög- reglunnar einnig haft áhrif. Hver var við stýrið? Hafa ber í huga að sami einstaklingur getur verið tekinn oftar en einu sinni og eins geta nokkrir verið teknir í einu vegna óvissu um það hver var raunverulega við stýrið. Vegna þeirra breytinga sem voru gerðar á lögum og verklagi lögreglu vegna aksturs und- ir áhrifum ávana- og fíkniefna voru í samantektinni ekki teknar út eldri töl- ur en fyrir árið 2007. Miða við tíðni umferðarbrota Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarð- stjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að vandinn sé að aukast varðandi ávana- og fíkniefnanotkun ökumanna, ef litið er til tölfræðinnar. Hann tekur þó fram að lögreglan noti ekki tíðni brota sem mælikvarða á hvort þess- um ökumönnum sé að fjölga. Þess í stað miðar lögreglan við það hversu margir lenda í umferðaróhöppum undir áhrifum. „Það er algjörlega óháð eftirliti lög- reglunnar og ætti að vera betri mæli- kvarði á hvort brotunum er að fjölga eða fækka,“ segir Guðbrandur og bætir við að það sé árstíðabundið hvað lög- reglan hafi mikinn tíma til að sinna hverjum málaflokki fyrir sig. Víð eða þröng sjáöldur Hann telur að meira sé um ítrekunar- brot hjá þeim sem aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna en þeirra sem aka ölvaðir og því séu fyrrnefndu öku- mennirnir færri. Einnig hafi færni lögreglumanna aukist við málaflokk- inn. „Menn eru að verða færari í því að meta útlit og önnur einkenni, hvort sjáöldur séu víð eða þröng og hvort menn eru þurrir í munni eða annað slíkt. Þannig vaknar grunur um neyslu.“ Aukning um 86 prósent Þegar tölfræði yfir fjölda umferðar- slysa tengdum ávana- og fíkniefnum er skoðuð þá jukust þau um 86 pró- sent frá árinu 2008 til 2014. Slysin voru 42 árið 2008 en þeim hafði fjölg- að í 78 árið 2014. Fjöldi umferðarslysa tengdum ölvunarakstri dróst á sama tímabili saman um 45 prósent. Árið 2008 voru þau 204 talsins en sex árum síðar voru þau komin niður í 112. Þótt prósentutölurnar séu ekki þær sömu og þær sem mæla hversu oft ökumenn voru teknir undir áhrifum ávana- og fíkniefna og ölvunar, er ljóst að þær sýna að þróunin er sú sama. n Freyr Bjarnason freyr@dv.is Lögreglan Fjöldi þeirra ökumanna sem eru teknir undir áhrifum ávana- og fíkniefna hefur aukist gífurlega á undanförnum árum. Mynd EytHor ArnAson 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 33 7 32 0 4 41 5 0 9 5 8 5 70 0 8 16 1. 0 0 8 1.264 1.089 834 816 810 838 892 835 n Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna n Ölvun við akstur Vímuefnaakstur Þróun skráðra brota vegna ölvunar við akstur og aksturs undir áhrifum ávana– og fíkniefna árin 2007-2014. Lífrænt Valið besta heilsuefnið Fæst í apótekum, Hagkaup, Krónunni, Grænni heilsu, Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup. www.thebeautyshortlist.com Best Health Supplement - Overall Wellbeing Hreinsar líkamann, bætir andadrátt og líkamslykt, fegrar og frískar húðina Bætir meltingu, gerir líkamann basískan, kemur á réttu pH gildi Yr 100 lífræn næringarefni sem gefa orku, einbeitingu og vellíðan Spirulina, Chlorella & Barleygrass Lifestream framkvæmir þrefaldar næringarprófanir; við uppskeru, eftir framleiðslu og að lokum með vottun frá óháðri prófunarstofu. Dagleg græn upplyfting. Heilnæmt fæði, hámarks upptaka og nýting á næringarefnum. 120 hylki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.