Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Qupperneq 9
Vikublað 27.–28. maí 2015 Fréttir 9 Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is | kemi@kemi.is GÆÐAVARA Á GÓÐA BÍLA Með amfetamín í strætó Lögreglan á Suðurlandi hafði í nógu að snúast um helgina U m hvítasunnuhelgina bárust lögreglunni á Suðurlandi til- kynningar um ellefu þjófnaði. Á Selfossi var brotist inn í tvö fjölbýlishús og var par handtekið sem viðurkenndi innbrot á annan staðinn. Þá reyndust börn hafa brotist inn í sumarbústaði við Bláskógabyggð. Lögreglumenn á Hvolsvelli fengu á dögunum upplýsingar um að lík- lega væri fíkniefni að finna í strætó sem væri á leið að Landeyjahöfn. Við leit í vagninum var pakki sem í var krukka með hvítu dufti, um 30 grömm, sem prófun benti til að væri amfetamín. Við nánari rannsókn kom í ljós að kona í Vestmannaeyjum átti að fá pakkann. Enginn sem var í vagninum tengdist málinu. Efnið verður rannsakað nánar og rann- sakað með tilliti til þess að efnið hafi verið ætlað til sölu. Lögreglumenn á Kirkjubæjar- klaustri stöðvuðu erlendan öku- mann sem ók of hratt á þjóðvegi 1 við Klaustur á sunnudag. Ökumaðurinn var á bílaleigubíl sem síðar kom í ljós að var ótryggður, en óheimilt er að aka eða leigja út ökutæki sem eru ótryggð. Bílvelta varð á laugardagskvöld á Laugarvatnsvegi við Laugardals- hóla. Vitni sem komu skömmu síð- ar á vettvang sáu til tveggja manna við bílinn. Þegar lögreglan og sjúkra- lið kom á staðinn var annar maður- inn farinn af vettvangi en hinn enn á staðnum enda slasaður. Hann var fluttur á slysadeild til frekari skoðun- ar. Þegar hann var laus af slysa- deildinni var hann handtekinn og yfirheyrður af lögreglu. Hinn mað- urinn gaf sig fram síðar. Hvorugur gekkst við akstrinum en þeir eru báðir grunaðir um ölvun. Maður sem var að fara að kafa í Silfru á Þingvöllum eftir hádegi á föstudag missti meðvitund á leið niður stiga í vatnið. Hann féll í vatn- ið og sökk niður á um tíu metra dýpi. Leiðsögumenn brugðust skjótt við og náðu honum upp og hófu strax lífgunartilraunir sem báru árang- ur. Maðurinn var fluttur með þyrlu á Landspítala og heilsast vel. n astasigrun@dv.is Lenti í vandræðum Ferðamaður í Silfru missti meðvitund á leið niður stiga í vatnið. Vilja nota vatnið Norðurorka kannar nú möguleika á að nýta kalda vatnið sem streymir inn í Vaðlaheiðargöng sem neyslu- vatn á Akureyri og í Eyjafirði. Vatns- magnið er þrefalt meira en í vatns- bóli Akureyrarbæjar í Hlíðarfjalli. RÚV greinir frá. Líkt og DV greindi frá fyrir skemmstu verður ekki hægt að opna göngin vorið 2017 og mun framkvæmdinni seinka um að minnsta kosti nokkra mánuði. Ekk- ert hefur verið sprengt í göngun- um í tæpan mánuð, eða síðan mis- gengissprunga, sem dælir nú inn um 350 lítrum á sekúndu af köldu vatni, opnaðist Fnjóskadalsmegin og göngin fylltust af vatni á löngum kafla. Áður hafði heitt vatn streymt í gegnum göngin sem varð til þess að ekki var hægt að vinna í þeim. Nú er skoðað hvort hægt sé að nota kalda vatnið, koma því á tanka og nýta í þéttbýli fyrir norðan. Sjóðurinn aftur tómur Frá og með 25. maí til. 30. júní verður ekki veitt endurgjaldslaus táknmálstúlkaþjónusta þar sem fjármagn sem ætlað er til túlkaþjónustu þetta tímabil er uppurið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagi heyrnarlausra. Í þriðja skiptið á rúmum tveimur árum er lokað fyrir táknmálstúlkaþjónustu í daglegu lífi. „Enn og aftur eru „sett bönd“ á samskipti heyrnarlausra – þátttöku þeirra í íslensku samfélagi. Þetta þýðir að fólk sem reiðir sig á íslenskt táknmál til samskipta er útilokað frá því að taka þátt í t.d. húsfundum og í íþrótta- og tómstundastarfi barna sinna. Túlkaþjónusta vegna samskipta við t.d. vinnufélaga, bankastarfsmanninn, fasteignasalann, tryggingafélagið, lögmanninn. Búið er að loka á öll þessi samskipti eina ferðina enn,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Þar er einnig bent á að í lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls frá 2011 segi að íslenskt táknmál sé jafnrétthátt íslensku sem tjáningarform í samskiptum manna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.