Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Síða 10
10 Fréttir
T
ugir núverandi og fyrrver
andi starfsmanna Kaup
þings munu fá greiddar
milljónir króna hver í bónus
takist að ljúka uppgjöri slita
búsins með nauðasamningum sem
verði í kjölfarið samþykktir af íslensk
um dómstólum. Þeir sem fá hæstu
greiðslurnar, ýmsir lykilstarfsmenn
og æðstu stjórnendur slitabús fallna
bankans, eiga von á því að fá bónusa
sem nema allt að árslaunum þeirra,
samkvæmt öruggum heimildum DV.
Það jafngildir bónusgreiðslum að fjár
hæð um 30 til 50 milljónir króna.
Flestir starfsmenn Kaupþings
hafa hins vegar samið um bónus
greiðslur sem nema 3 til 6 mánaðar
launum þeirra verði nauðasamning
ur samþykktur af dómstólum. Þeir
starfsmenn fá því bónusa greidda
frá slitabúinu að fjárhæð um 5 til 10
milljónir króna, samkvæmt heim
ildum DV. Samkvæmt ársreikn
ingi Kaupþings fyrir árið 2014 námu
laun á hvern starfsmann að meðal
tali 1,6 milljónum króna á mánuði.
Starfsmönnum hefur fækkað talsvert
á undanförnum árum samhliða því
að slitabúið hefur umbreytt eignum
yfir í lausafé en að meðaltali störfuðu
50 manns hjá Kaupþingi á síðasta ári.
Samið um bónusa 2012 og 2013
Ljóst er að bónusgreiðslur til starfs
manna Kaupþings hlaupa að lágmarki
samtals á mörg hundruð milljónum
króna, ef ekki yfir milljarði króna.
Samningar um bónusgreiðslur við
samþykkt nauðasamnings voru gerðir
við stærstan hluta starfsmanna, sam
kvæmt upplýsingum DV, á árunum
2012 og 2013. Á þeim tíma var orðið
ljóst að áform slitastjórnar Kaupþings
um ljúka uppgjöri með nauðasamn
ingum myndi að líkindum frestast um
ófyrirséðan tíma. Seðlabanki Íslands
hafði ekki í hyggju að veita slitabú
inu undanþágu frá fjármagnshöftum í
tengslum við nauðasamning sem var
lagður fyrir Seðlabankann í október
2012. Enn í dag er sú afstaða Seðla
bankans og stjórnvalda óbreytt þar
sem ekki hefur verið talið forsvaran
legt að taka afstöðu til undanþágu
beiðni slitabús Kaupþings – og einnig
Glitnis – fyrr en heildstæð áætlun um
losun hafta liggur fyrir. Sú áætlun
verður kynnt von bráðar.
Kaupþing vildi ekki svara fyrir
spurn DV um hversu margir núver
andi og fyrrverandi starfsmenn slita
búsins myndu fá greidda bónusa við
staðfestingu nauðasamnings. „Upp
lýsingar um kjör eru trúnaðarmál á
milli starfsmanna og vinnuveitenda,“
segir í svari Kaupþings.
Samkvæmt heimildum DV munu
starfsmenn Kaupþings fá greidda
bónusa í sinn hlut óháð því hver
niðurstaða nauðasamnings verður –
eina skilyrðið er að slíkur samningur
verði samþykktur af íslenskum dóm
stólum. Á meðal þeirra lykilstarfs
manna og stjórnenda Kaupþings
sem munu fá hæstu greiðslurnar
eru Jóhann Pétur Reyndal, Marinó
Guðmundsson, Hilmar Þór Kristins
son og Þórarinn Þorgeirsson. Jóhann
Pétur er yfir eignastýringu Kaupþings
en þeir Marinó og Hilmar Þór starfa
einnig undir því sviði. Þórarinn er
hins vegar yfirlögfræðingur slitabús
ins og tók hann við því starfi þegar
Kolbeinn Árnason hætti hjá Kaup
þingi sumarið 2013.
Fá tugmilljónir fyrir stjórnarsetu
Til viðbótar við ríflegar launagreiðsl
ur frá slitabúinu þá fá einnig sumir
af þessum sömu starfsmönnum laun
í erlendum gjaldeyri fyrir stjórnar
setu í erlendum félögum sem eru enn
í eigu Kaupþings. Þannig er Hilm
ar Þór varaformaður stjórnar finnska
fjárfestingafélagsins Norvestia auk
þess að vera í stjórn evrópska drykkj
arvöruframleiðandans Refresco Ger
ber. Þá situr Jóhann Pétur einnig í
stjórn bresku verslunarkeðjunnar
Karen Millen og Aurora Fashions, fé
lags sem var stofnað 2009 af Kaup
þingi og yfirtók rekstur helstu versl
unarkeðja Mosaic Fash ions. Fram
kemur í síðasta birta ársreikningi hjá
Karen Millen Group fyrir rekstrarár
ið sem lauk 1. mars 2014 að þóknanir
til fimm manna stjórnar félagsins hafi
samtals numið 1,4 milljónum punda,
jafnvirði um 290 milljóna króna. Að
meðaltali námu laun á hvern stjórn
armann því um 58 milljónum króna
á ári. Jóhann Pétur hefur setið í stjórn
Karen Millen frá því í ársbyrjun 2011.
Haldið aftur af sölu eigna
Á það hefur verið bent í ritum Seðla
banka Íslands um fjármálastöð
ugleika að slitabú föllnu bankanna
hafi á undanförnum misserum haldið
aftur af því að umbreyta fastafjár
munum sínum í laust fé – og þar
hefur Kaupþing helst haldið að sér
höndum. Þannig kemur fram í síð
asta riti Seðlabankans að Kaupþing
hafi umbreytt um 60% af uppruna
legu eignasafni búsins í laust fé, bor
ið saman við 70% hjá Glitni og 80%
hjá gamla Landsbankanum (LBI).
Takmarkað innstreymi af
lausu fé bendir því til
þess, útskýrir Seðla
bankinn, að Glitn
ir og Kaupþing séu
að „halda að sér
höndum þegar kem
ur að sölu á fasta
fjármunum, meðal
annars vegna þess að
ávöxtun á lausu fé
er lítil og óvissa
er uppi um
það hvernig
útgreiðslum
til almennra
kröfuhafa
verður hátt
að.“
Heildar
eignir
Kaup
þings
námu
800 millj
örðum
króna í
árslok
2014 og
þar af nam
reiðufé tæplega 402 milljörðum. Inn
lendar eignir Kaupþings – bæði eign
ir í krónum og gjaldeyriskröfur á inn
lenda aðila – eru 222 milljarðar, eða
um 28% allra eigna slitabúsins. Lang
samlega stærsta innlenda eign Kaup
þings er 87% eignarhlutur slitabúsins
í Arion banka en sá hlutur er metinn
á 140 milljarða í ársreikningi Kaup
þings.
Rétt er að taka fram að slitastjórn
Kaupþings er ekki hluti af þeim hópi
starfsmanna slitabúsins sem á von á
því að fá bónusgreiðslur við það að
nauðasamningur verði staðfestur af
dómstólum. Þeir sem sitja í slitastjórn
eru ekki skilgreindir sem starfsmenn
Kaupþings enda eiga þeir að vera
hlutlausir aðilar sem eru skipað
ir af héraðsdómi. Slitastjórn Kaup
þings er sem kunnugt er skipuð þeim
Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni, sem er
formaður slitastjórnar, Feldísi L. Ósk
arsdóttur og Theodóri S. Sigurbergs
syni. Á síðasta ári námu greiðslur til
slitastjórnarinnar samtals 248 millj
ónum króna, eins og fjallað var með
al annars um í úttekt DV um þóknan
ir slitastjórna gömlu bankanna þann
8. apríl síðastliðinn. Ef þeim þóknun
um er deilt á milli slitastjórnarmanna
Kaupþings þá gera það ríflega 82,6
milljónir á mann, eða tæpar 6,9
milljónir á mánuði. DV hef
ur ekki tekist að fá staðfestar
upplýsingar um að slitastjórn
armenn Kaupþings muni,
rétt eins og starfsmenn slita
búsins, jafnframt fá í sinn til
hlut bónusgreiðslur takist að
ljúka uppgjöri búsins með
nauðasamningi.
THM látið
fjúka
Yfir 91%
kröfu hafa
Kaupþings
eru erlendir
aðilar, að
langstærst
um hluta
alþjóðlegir
vogunar
sjóðir. Á
meðal
helstu
ráð
gjafa er
lendra
kröfuhafa
Vikublað 27.–28. maí 2015
Smart föt
fyrir smart konur
Sjáðu
úrvalið á
tiskuhus.is
Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur S: 571-5464
Stærðir 38-54
Fá tugi milljóna í bónus við
samþykkt nauðasamnings
n Stór hluti starfsmanna slitabús Kaupþings fær bónus verði nauðasamningar kláraðir
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Bónusar Kaupþings
Helstu stjórnendur og
lykilstarfsmenn munu fá
bónusa sem nema allt að
árslaunum þeirra. Mynd
SigTryggur Ari JóHAnnSSon
Formaður
slitastjórnar
Jóhannes Rúnar
Jóhannsson