Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Blaðsíða 11
Fréttir 11Vikublað 27.–28. maí 2015 Ekinn aðeins 19 þús. km. - Bensín / Rafmagn Uppgefin eyðsla er 4 L á 100 km. - Einn eigandi Bíllinn er sem nýr. - Sumar og vetrardekk bæði á alfelgum Bakkmyndavél - og allur luxus búnaður. Þennan færðu á 3.990. þús. Nýr bíll kostar 6.150 þús. Toyota Prius Sol Hybrid 5/2012 ← Kr in gl an Kr in gl um ýr ar br au t Miklabraut Miklabraut Við erum hér! Tilb oð 17 10 bitar fyrir 4-5 5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa. Stór af frönskum og 2l. Pepsi. Frumvarp Eyglóar fær falleinkunn Fjármálaráðuneytið segir frumvarpið gagnast þeim efnameiri betur N ýtt húsnæðisbótafrumvarp Eyglóar Harðardóttir félags- málaráðherra er ekki til þess fallið að bæta hag launafólks, jafnvel þó að það hafi verið tilgang- ur þess. Að auki mun frumvarpið, verði það að lögum, auka útgjöld ríkissjóðs um tvo milljarða á ári. Þetta er á meðal þess sem fram hefur komið á RÚV um frumvarp- ið. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra hefur deilt við Eygló um frumvarpið og látið hafa eftir sér að það sé ekki tilbúið til framlagningar. Í umsögn fjármálaráðuneytisins kemur fram að afkoma ríkissjóðs yrði tveimur milljörðum lakari en að sveitarfélögin myndu losna við 700 til 800 milljóna útgjöld, þar sem bótakerfið myndi færast til ríkisins. Sveitarfélögin myndu þó áfram greiða sérstakar húsaleigu- bætur. Í umsögninni kemur fram að niðurgreiðsla húsaleigu yrði hlut- fallslega meiri hjá þeim tekjuhærri og gæti leitt til hækkun leiguverðs. Það sé ekki í anda markmiðs frum- varpsins. DV náði ekki tali af Eygló Harðardóttur í gær, þriðjudag, vegna málsins, frekar en aðrir fjöl- miðlar, til að fá viðbrögð hennar við þessu. Þeir eru til sem telja að Eygló standi höllum fæti í ríkisstjórninni eftir þetta. „Tilgangurinn getur að- eins verið sá að taka Eygló pólitískt af lífi,“ segir Björn Valur Gíslason, varaformaður VG og segir að frum- varp Eyglóar virðist ónýtt. n Skipta á milli sín 3.400 milljónum Þrátt fyrir að ýmsir lykilstarfsmenn slitabús Kaupþings eigi í vændum tugmilljóna bónusgreiðslur takist að klára nauðasamning þá komast þær greiðslur ekki í hálfkvisti við það sem núverandi og fyrrverandi starfsmenn íslenska eigna- umsýslufélagsins ALMC, áður Straumur- Burðarás fjárfestingabanki, munu fá í sinn hlut í formi bónusa. Frá því var greint í forsíðufrétt DV fyrir viku að ALMC hefði sett til hliðar tæplega 23 milljónir evra, jafnvirði um 3,4 milljarða íslenskra króna, sem félagið hyggst greiða í bónusa til lykilstarfsmanna og stjórnar- manna. Að meðaltali munu greiðslurnar nema yfir 100 milljónum króna á starfs- mann en þeir sem fá hæstu greiðslurnar geta átt von á því að fá hundruð milljóna í sinn hlut. Í þeim hópi er meðal annars Jakob Ásmundsson, núverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, en hann gegndi áður starfi fjármálastjóra ALMC. Samkvæmt heimildum DV er fjöldi þeirra starfsmanna sem fá slíkar kaupaukagreiðslur frá ALMC á bilinu 20 til 30. Meirihluti þeirra er erlendir aðilar en einnig er um að ræða Íslendinga sem hafa starfað fyrir bæði ALMC og Straum fjárfestingabanka á undanförnum árum. Eignaumsýslufélagið ALMC varð til í kjölfar þess að kröfuhafar Straums- Burðaráss, sem fór í greiðslustöðvun í mars 2009, samþykktu nauðasamninga félagsins sumarið 2010 og fengu þá um leið yfirráð í félaginu. Ákvörðun um kaupaukagreiðslur (e. long term incentive plan) til lykilstarfs- manna byggir á samþykkt hluthafa á aðalfundi ALMC frá árinu 2011. Á meðal þeirra sem munu fá bónusgreiðslur frá ALMC eru stjórnarmenn félagsins, samkvæmt heimildum DV. Þeir eru Óttar Pálsson, eigandi og hæstaréttarlögmaður hjá Logos, Christopher Perrin, stjórnarfor- maður ALMC, og Andrew Bernhardt, en hann var einnig áður framkvæmdastjóri ALMC. Þær greiðslur munu koma til viðbótar við rífleg stjórnarlaun þeirra en á síðasta ári námu greiðslur ALMC til þriggja manna stjórnar félagsins samtals 943 þúsund evrum, jafnvirði um 140 milljóna króna. Að meðaltali námu stjórnarlaunin því um 46,5 milljónum króna á ári á mann sem gerir tæplega 3,9 milljónir á mánuði. Þeir lykilstjórnendur sem fá hlut- fallslega hæstu bónusgreiðslurnar frá ALMC, samkvæmt heimildum DV, eru Andrew Bernhardt, Jakob Ásmundsson, Christopher Perrin og Daninn Oscar Crohn sem hafði umsjón með eignum ALMC í Danmörku. Jakob var sem fyrr segir fjár- málastjóri hjá ALMC, samhliða störfum sínum hjá Straumi fjárfestingabanka, en lét hins vegar af því starfi þegar hann tók við starfi forstjóra Straums af Pétri Einarssyni í ársbyrjun 2013. Aðrir Íslendingar sem eru hluti af kaupaukakerfi ALMC eru meðal annars Birna Hlín Káradóttir, yfirlögfræðingur Straums fjárfestingabanka, og Magnús Ingi Einarsson, forstöðumaður fjárstýr- ingar hjá bankanum. Þau hafa á undan- förnum árum einnig unnið fyrir ALMC samhliða störfum sínum fyrir Straum fjárfestingabanka. Fá tugi milljóna í bónus við samþykkt nauðasamnings Var ráðgjafi eftir starfslok Þrátt fyrir að Kolbeinn Árnason hafi látið af störfum sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Kaupþings fyrir nærri tveimur árum gegndi hann hlutverki ráðgjafa eftir starfslok sín vegna verkefna í tengslum við fyrirhugaðan nauðasamning slitabúsins. Kolbeinn tók við starfi framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útgerðarmanna (sem núna heitir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi) í ágúst 2013. Í tilkynningu Kaupþings vegna starfsloka Kolbeins kom fram að hann myndi áfram starfa sem ráðgjafi Kaupþings. Að ósk slitastjórnar búsins myndi hann sinna „verkefnum sem tengjast undirbúningi að framlagningu fyrirhugaðs nauða- samnings Kaupþings,“ var haft eftir Kolbeini í tilkynningunni. Í svari við fyrirspurn DV um hvort Kolbeinn starfi enn sem ráðgjafi slitabúsins segir Kaupþing að Kolbeinn „mun ekki veita ráðgjöf komi til nauðasamnings.“ Auk þess að vera fram- kvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á Kolbeinn jafnframt sæti í stjórn Samtaka atvinnu- lífsins. Kaupþings er alþjóðlega lögmanns- stofan Akin Gump, sem starfar einnig fyrir kröfuhafa Glitnis, en fulltrúi á vegum fyrirtækisins situr til að mynda í óformlegu kröfuhafaráði Kaupþings. Lögmannsstofan Logos starfar síðan náið með ráðgjöfum Akin Gump fyrir stærstu kröfuhafa slitabúanna og þar fer Óttar Pálsson, hæstaréttarlögmað- ur og meðeigandi að Logos, fremstur í flokki sem áhrifamesti ráðgjafi kröf- uhafa á Íslandi. Fram til ársins 2014 var breska ráðgjafafyrirtækið Talbot Hughes & McKillop (THM) fjármála- ráðgjafi fyrir kröfuhafa Kaupþings en fyrirtækinu var hins vegar skipt út fyrir bandaríska fjárfestingafélag- ið Blackstone. Sú ákvörðun stafaði af ónægju kröfuhafa um hversu hægt miðaði að því að ljúka uppgjöri bús- ins með nauðasamningi sem undan- þága gæti fengist frá lögum um gjald- eyrismál. Helsti ráðgjafi THM, sem starfar fyrir hönd stærstu kröfuhafa Glitnis, er Bretinn Matt Hinds sem hefur komið að fjárhagslegri endur- skipulagningu fjölmargra íslenskra fyrirtækja frá bankahruni.n n Lykilmenn fá 30–50 milljónir króna Óttar Pálsson Daniel Svanström Christopher Perrins Jakob Ásmundsson Birna Hlín Káradóttir Magnús Ingi Einarsson Andrew Bernhardt Oscar Crohn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.