Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Blaðsíða 14
Vikublað 27.–28. maí 201514 Fréttir Erlent SEPT O AID eru þurrfrystar örverur tilbúnar til að brjóta niður allan lífrænan úrgang í rotþróm. Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. KOMDU ROTÞRÓNNI Í LAG MEÐ SEPT-O-AID UMHVER FISVÆN VARA F RÁ KEM I Samsetning 13 mismunandi örvera hjálpar til að vinna á og minnka fastan úrgang og breyta í fljótandi form ásamt því að eyða allri ólykt frá rotþrónni. Einfalt í notkun; sett í klósett skálina og beðið í 20 mínútur, því næst er efninu skolað niður. Mánuður af eyðileggingu Á mánudag, annan í hvíta- sunnu, var liðinn mánuð- ur frá fyrri jarðskjálftanum í Nepal – jarðskjálfta sem var 7,8 að stærð og breytti öllu. Hans varð vart alls staðar í Nepal, sem og í nágrannaríkjun- um á Indlandi og í Bangladess. Þúsundir hafa farist, auk þess sem skemmdir eru miklar á mannvirkj- um og vegum. Þegar hafa á níunda þúsund fundist látin. Fjöldi fólks á í engin hús að venda eftir skjálftana, aðrir reyna að byggja heimili sín upp úr rústunum og aðrir hafa reynt að flytjast búferlum til nágrannaríkja. Senn líður að rigningartímabili í Nepal og óttast stjórnvöld og al- þjóðasamfélagið mjög um íbúa þar. Erfiðlega hefur gengið að koma birgðum og hjálpargögn- um til þeirra sem á þurfa að halda, enda eru samgöngur í slæmu ástandi eftir jarðskjálftann, sem og seinni jarðskjálftann sem reið yfir þann 12. maí. Indversk stjórnvöld hafa á síð- ustu dögum bjargað 20 börnum frá glæpalýð sem hugðist selja þau mansali. Sameinuðu þjóðirnar hafa sent út neyðarkall og segjast þurfa meira fjármagn til að sinna björgunar- og hjálparstarfi. Enn sé langt í að hægt sé að hefja endur- uppbyggingu. n Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is  Steinn fyrir stein Karlmaður vinnur að því að endurbyggja hús sitt í þorpinu Barpak í Gorkha. Eins og sést á myndinni á hann mikla vinnu fyrir höndum.  Inn og út um glugg- ann Ungur drengur yfirgefur hús út um gluggann. Pilturinn vinnur við að hreinsa frá rústunum, fjarlægja drasl og tekur þátt í enduruppbyggingu. Börn eru viðkvæmur hópur sem í aðstæðum sem þessum þurfa að fullorðnast hratt og sinna verkefnum sem þau alla jafna hafa hvorki aldur né þroska til. Þau missa af menntun og námi og er hætt við að veikjast eða lenda í höndunum á glæpalýð sem svífst einskis.  Nýfædd Dóttir Maya Tamang fæddist sama dag og seinni skjálftinn reið yfir Nepal, þann 12. maí síðastliðinn. Litla telpan er dagsgömul á myndinni. Hún og móðir hennar dvelja í búðum sem settar hafa verið upp beint fyrir utan spítalann. Ekki er pláss fyrir alla veika eða slasaða þar og hefur því verið reynt að koma fólki fyrir, fyrir utan hann.  Minningin lifir Nepalir héldu minningarathöfn, mánuði eftir fyrri skjálftann, þann 25. maí. Hér kveikir fjölskylda á kertum.  Eyðileggingin Á meðfylgjandi mynd sjást afleiðingar skjálftans mjög greinilega. Hér var áður heilt þorp, Barpak.  Fara aftur heim Þorpsbúar í Barpak reyna að nota hluta af rústunum til þess að endurbyggja hús og byggja skjól fyrir fjölskyldur sínar. Sumir hafa reynt að byggja á rústunum, en aðrir sækja efniviðinn þangað og reyna að koma sér upp húsnæði í næsta nágrenni.  Skoðar aðstæður Tes Bahadur Ghal, 60 ára, vefur sig ullarteppi þegar hann heimsækir heimili sitt í Barpak og skoðar aðstæður. Hann bjó í þorpinu fyrir jarðskjálftann og er eins og svo margir aðrir heimilislaus.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.