Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Blaðsíða 23
 Kynningarblað - Sumarnámskeið 7Vikublað 27.–28. maí 2015 G olfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (GKG) býður upp á golfleikjanámskeið fyrir börn á aldrinum 5–12 ára. Börnunum er skipt í tvo aldurshópa 5–8 ára og 9–12 ára. Haldin verða tvö námskeið á dag í sjö vikur, eða alls 14 vikulöng golfnámskeið. Hægt er að velja um námskeið klukkan 9–12 eða 13– 16. Öllum námskeiðum lýkur með pylsuveislu og afhendingu viður­ kenningarskjals frá GKG. Úlfar Jónsson er íþróttastjóri GKG og að hans sögn er markmið golfleikjanámskeiðanna að kynna golfíþróttina fyrir börnunum og ýta undir áhuga þeirra á að leggja stund á þessa fjölskylduvænu íþrótt. „Farið verður í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upp­ hafshögga og eru leiðbeiningar gjarnan í formi golfleikja ýmiss konar. Einnig verður lögð áhersla á að kynna helstu golfsiði og golf­ reglur fyrir nemendum,“ segir Úlfar. Fjölbreyttir leikir Mikilvægt er að á golfnámskeiðinu séu einnig fjölbreyttir leikir sem efla hreyfiþroska barnanna, svo sem samhæfingu, liðleika og jafn­ vægi, enda eru það mikilvægir þættir í hreyfingum golfsveiflunnar. „Forgangsatriði námskeiðanna er að þau séu skemmtileg, að börnin njóti sín og að þróa jákvætt viðhorf til golfíþróttarinnar,“ segir Úlfar. Þátttaka á golfleikjanámskeiðunum veitir einnig aukafélagsaðild í GKG. Innifalinn í henni er aðgangur að litla fimm holu vellinum fyrir barnið og fjölskyldumeðlimi til að koma og leika sér á þegar nám­ skeið eru ekki í gangi. Einnig er hægt að nýta höggæfingasvæðið og eru seldar æfingafötur í golfverslun GKG. „Meira verður lagt upp úr tækni­ legum atriðum, æfingum og golf­ siðum og reglum í eldri hópunum. Yngsti hópurinn mun frekar fást við léttar og skemmtilegar æfingar, fjölbreytta og skemmtilega hreyf­ ingu, keppni af ýmsum toga og ör­ lítið af golfsiðum og reglum,“ segir Úlfar. Leiðbeinendur: Yfirumsjónarmaður námskeið­ anna er Hulda Birna Baldursdóttir, PGA leiðbeinandi. Leiðbeinendur námskeiðanna koma úr hópi af­ rekskylfinga úr GKG, á aldrinum 16–21 árs, langflestir eru þeir með verulega reynslu af námskeiða­ haldi. n Skráning fer fram rafrænt á gkg.is og í síma 565-7373. Námskeið fyrir börn á aldrinum 5–12 ára sem þróa jákvætt viðhorf barna til golfíþróttarinnar Golfleikjanámskeið GKG Dagsetningar: n 8.–2. júní - 5 dagar n 15.–19. júní - 4 dagar (frí 17. júní) n 22.–26. júní - 5 dagar n 6.–10. júlí - 5 dagar n 13.–17. júlí - 5 dagar n 20.–24. júlí - 5 dagar n 27.–31. júlí - 5 dagar Verðskrá: n 5 daga námskeið - 10.500 kr. n 4 daga námskeið - 8.400 kr. Veittur er 20% systkinaafsláttur. Einnig er veittur 20% afsláttur ef sótt eru fleiri en eitt námskeið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.