Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Side 37
Vikublað 27.–28. maí 2015 Menning 25
sig í kvikmyndaforminu með því að
taka upp eigin myndir í kjallaran-
um heima hjá sér í París. Eftir að hafa
starfað með Béla Tarr fór hann til
New York þar sem hann lærði kvik-
myndalistina. Árið 2011 fór hann að
þróa handritið að Son of Saul og fjór-
um árum síðar var myndin tilbúin.
Fyrir hefur hann aðeins gert örfáar
stuttmyndir. Það er því óhætt að segja
að stjarna sé fædd og Cannes tók eft-
ir henni.
Ótrúlegur árangur
Grímur Hákonarson forsýnir mynd
sína Hrútar í kvöld, en hún verður
frumsýnd á morgun, fimmtudaginn
28. maí. Hrútar er önnur kvik-
myndin sem hann gerir í fullri lengd
en áður leikstýrði hann myndinni
Sumarlandið sem fékk blendnar
viðtökur gagnrýnenda. Grímur út-
skrifaðist úr tékkneska kvikmynda-
skólanum FAMU árið 2004 og hef-
ur verið iðinn við kolann síðan þá.
Bræðrabylta er líklega þekktasta
stuttmyndin hans, en hún fjall-
aði um tvo samkynhneigða glímu-
kappa. Þá fékk hann Edduna fyrir
hina frábæru heimildamynd Hreint
hjarta, sem fjallaði um prestinn
Kristinn Ágúst Friðfinnsson, hans
daglega líf og ekki síst hans innri
baráttu. Myndin fékk einnig Einar-
inn, áhorfendaverðlaun Skjald-
borgar. Árangur Gríms er einstakur
í íslenskri kvikmyndasögu en sjálfur
varð Grími hugsað til kollega sinna
á Íslandi þegar hann var spurður út í
viðbrögð eftir að úrslitin voru kynnt.
„Þetta er sigur íslenskrar kvik-
myndagerðar,“ sagði hann. n
Hótel Saga, Hagatorgi • 107 Reykjavík • Sími: 511 2111 og 862 0822 (utan opnunartíma)
Láttu þér líða vel
meccaspa.is
Opnunartími
Virka daga frá kl. 7.00 - 20.00
Laugardaga frá kl. 9.00 - 18.00
Sunnudaga frá kl. 10.00 - 14.00
Tökum vel á móti hópum af öllum stærðum, einnig utan hefðbundins opnunartíma. Dekur í boði.
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Torino
Rín
Mósel
Lyon
Basel
Nevada
Roma
Með nýrri AquaClean tækni
er nú hægt að hreinsa nánast
alla bletti aðeins með vatni!
Erfiðir blettir eins og eftir tómatsósu,
léttvín, kaffi, te, meira að segja kúlupenna,
nást á auðveldan hátt úr áklæðinu.
OG DRAUMASÓFINN ÞÍNN ER KLÁR
GERÐ (90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (yfir 3000 tegundir)
ÞÚ VELUR
ÍSLENSKIR SÓFAR
SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM
Áklæði
Óvæntir sigrar og athyglisverðar kvikmyndir
Þessir unnu
á Cannes
n Gullni pálminn: Dheepan, leikstýrt af
Jacues Audiard
n Grand Prix-verðlaunin: „Son of Saul,“
leikstýrt af Laszlo Nemes
n Besti leikstjórinn: „The Assassin,“
leikstýrt af Hou Hsiao-Hsien
n Besta handritið: „Chronic,“ skrifað af
Michel Franco
n Camera d'Or (Besta frumraunin):
„La Tierra y la Sombre,“ leikstýrt af Cesar
Acevedo
n Sérstök verðlaun dómnefndar: „The
Lobster,“ leikstýrt af Yorgos Lanthimos
n Besta leikkonan: Rooney Mara fyrir
hlutverk sitt í „Carol“ og Emmanuelle
Bercot fyrir „Mon Roi“ (þær deildu
verðlaununum)
n Besti leikarinn: Vincent Lindon fyrir
hlutverk sitt í myndinni „The Measure
of a Man“
n Gullni pálminn fyrir stuttmynd:
„Waves '98,“ leikstýrt af Ely Dagher
n Un Certain Regard:
Hrútar í leikstjórn Gríms Hákonarsonar
Jacques Audiard Audiard er
einn af óvæntum sigurvegurum
Cannes, en þeir voru nokkrir.
Grímur
Hákonarson
Grímur afrekaði
það sem flesta
leikstjóra ver-
aldar dreymir
um, að sigra á
Cannes.
Gaspar Noé Gaspar (annar f.v.) frumsýndi
eina umdeildustu mynd ársins, Love, á
Cannes. Það má segja að myndin sé hálgerð
klámmynd í þrívídd.