Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Blaðsíða 40
Vikublað 27.–28. maí 201528 Fólk Fæst í Lyfjum & Heilsu Austurveri og í Kringlunni, Apóteki Garðabæjar, Apóteki Hafnarfjarðar, Lyfjaveri og á heimkaup.is Líka stjörnur í eldhúsinu Þ ótt þær hefðu auðveldlega efni á að láta stjörnukokk sjá um matseld hvert einasta kvöld velja sumar stjörnur að sjá um matseldina sjálf- ar. Eftirfarandi Hollywood-stjörnur elska að elda og margar þeirra eru duglegar við að deila ráðum og upp- skriftum í gegnum samfélagsmiðl- ana til aðdáenda sinna. n Sumar Hollywood-stjörnur njóta þess að elda Stórstjarnan Julia Julia Roberts er víst ekki aðeins stórstjarna á hvíta tjaldinu heldur í eldhúsinu líka. Í við- tali við tímaritið People sagði leikkonan frá því að uppáhaldsmatur tvíburanna hennar sé heimatilbúinn matur. „Þau elska matinn minn og hafa raunar sagt mér að ég eigi að opna veitingastað.“ Lét draum mömmu rætast Leikarinn Tobey Maguire ætlaði alltaf að verða kokkur. Í viðtali við KNG sagðist Tobey hafa valið leiklistina fyrir móður sína. „Mömmu langaði alltaf til að verða leikkona svo ég ákvað að fara þá leið fyrir hana. Mig langaði samt miklu meira að verða kokkur eins og pabbi.“Gaman í eldhúsinu Kris Jenner hefur alltaf fundist matseld skemmtileg. „Ég byrjaði að elda mjög ung,“ sagði Kris í viðtali við Ryan Seacrest í tilefni af útgáfu uppskriftarbókar hennar. Getur allt Blake Lively er ekki aðeins ung, falleg og hæfileikarík leikkona því hún er afbragðs kokkur að auki. Ryan Reynolds er heppinn. Deilir uppskriftum Leikkonan Lea Michele er dugleg við að nota Instagram til að deila uppskriftum og myndum af matnum sem hún eldar. Oftar en ekki er um dásamlega girnilega ítalska rétti að ræða. Ræðst á kalkúninn Jessica Alba vílar ekki fyrir sér að sjá um þakkargjörðarmáltíðina. Eiginmaður leikkonunnar birti þessa mynd af henni þar sem hún var að útbúa kalkúninn. Rokkar í eldhúsinu Gavin Rossdale er ekki aðeins rokkstjarna þegar kemur að tónlistinni því að sögn eigin- konunnar, Gwen Stefani, rokkar Gavin einnig í eldhúsinu. Einkakennsla stjörnukokks Sagan segir að Brad Pitt hafi fengið einkakennslu frá engum öðrum en sjónvarpskokkn- um Jamie Oliver því hann hafi viljað læra grunnatriðin í eldhúsinu eftir að börnunum fjölgaði. Kunningi hjónanna, Brad og Angelinu Jolie, segir þau hafa verið alveg úti að aka í matseld. „Það eina sem þau gátu var að hella mjólk út á morgunkorn barnanna. Þau kunnu ekki einu sinni á bakaraofninn enda höfðu þau treyst á einkakokka og veitingahús svo lengi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.