Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Side 42
Vikublað 27.–28. maí 201530 Fólk ATN Zebra 16 Z-spjótlyfta • Fjórhjóladrifin • Diesel • Vinnuhæð: 16,4m • Pallhæð: 14,4m • Lágrétt útskot: 9,3m • Lyftigeta: 230kg • Aukabúnaður: Rafmagns- og lofttenglar í körfu. • Til afgreiðslu strax Ýmsar aðrar ATN spjót- og skæralyftur til afgreiðslu með stuttum fyrirvara. Myndir tala á Listasafni Íslands Framlag safnsins til Listahátíðar í Reykjavík S ýningin Saga – þegar myndir tala, var opnuð í Listasafni Ís- lands síðastliðinn föstudag og er hún framlag safnsins til Listahátíðar í Reykjavík. Á sýn- ingunni eru valin verk fjölda ís- lenskra samtímalistamanna, auk nokkurra erlendra, sem endur- spegla frásagnarþátt íslenskrar sjónmenningar. Verkin voru gaumgæfilega valin af safnstjóra Listasafns Íslands, Halldóri Birni Runólfssyni, og þýskum sýningar- stjóra, Norbert Weber. Meðal þeirra sem eiga verk á sýningunni eru Björk, Dieter Roth, Erró, Gabríela Friðriksdóttir, Ragnar Kjartans- son, Jóhannes S. Kjarval og Ólafur Elías son. Margt var um manninn á opnuninni og forseti Íslands, Ólaf- ur Ragnar Grímsson, lét sig ekki vanta. Það gerðu heldur ekki fjöl- margir stjórnmálamenn og stór hluti listaelítu landsins. n Systur Systurnar Helga Guðrún og Áslaug Friðriksdætur mættu saman á sýninguna. Sú síðarnefnda er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, en sú fyrrnefnda hefur getið sér gott orð sem skartgripahönnuður. Systir þeirra, Gabríela, á verk á sýningunni. Stund milli stríða Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gaf sér tíma frá stífum fundahöldum á Alþingi og naut listarinnar. Spekingslegir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, virtu fyrir sér verkin á sýningunni, ansi alvörugefnir og spekingslegir á svip. Leikhússtjórar Sveinn Einarsson, fyrrverandi leikhússtjóri Þjóðleihússins, og Ari Matthíasson, núverandi þjóðleikhússtjóri, voru kampakátir. Glæsileg Hjónin Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, og Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari voru ánægð með sýningunni og nutu sín vel. Gerir fólk sterkara n Ingimundur þjálfar heimsmeistarann n Kærasti Mörtu Maríu É g hef æft með litlum hléum frá 14 ára aldri eða í 19 ár. Ég byrjaði að æfa heima í sveitinni og fann strax að það hentaði mér að æfa til að verða sterkari. Ég vissi þá að ég ætl- aði mér að starfa í þessum heimi,“ segir kraftlyftingaþjálfarinn Ingi- mundur Björgvinsson sem segir kraftlyftingar loksins vera að fá þá viðurkenningu sem þær eiga skilda. Þjálfar heimsmeistarann Ingimundur hætti sjálfur að keppa fyrir tveimur árum en er geysilega vinsæll þjálfari í dag og þjálfar með- al annars heimsmeistarann Fann- eyju Hauksdóttur. „Ég æfði kraft- lyftingar með keppni í huga í tíu ár en hætti að keppa fyrir tveimur árum. Í dag einbeiti ég mér að því að þjálfa aðra. Ég slæ samt ekkert af í æfingunum þótt ég sé ekki sjálf- ur að keppa,“ segir Ingimundur sem er stoltur af Fanneyju. „Hún er góð manneskja og hefur unnið vel fyrir þeim afrekum sem hún hefur náð. Eins og segja má um margt af því af- reksfólki sem ég er að þjálfa.“ Ingi- mundur segir kraftlyftingar fyrir alla. „Það hentar öllum að styrkjast. Þegar ég var að byrja þá höfðu kon- ur stórar áhyggjur af því að verða of stórar með því að lyfta, sem var í takt við tíðarandann þá. Í dag, þegar vit- neskjan er orðin meiri, þá er þetta ekki eitthvað sem konur óttast. Það verður enginn kona afmynduð af vöðvum nema hún noti ólögleg lyf.“ Nammidagar óheilbrigðir Aðspurður segir hann mataræðið skipta miklu máli. „Auðvitað skipt- ir miklu máli að borða reglulega, hafa nægilega orku fyrir æfingar og næra sig vel eftir æfingar. Fólk ætti að temja sér heilbrigðar matarvenj- ur. Sjálfur reyni ég að borða hrein- an mat. Á venjulegum degi, þar sem oft gefst ekki mikill tími til að borða, borða ég mikið af eggjum, hnetu- smjöri og bönunum.“ En svindlarðu aldrei? „Það er ekkert sem heitir svindl. Venju- leg vika kallar á 35–40 máltíðir og mögulega slæðast inn máltíð- ir sem eru ekki jafnfullkomnar og hinar. Og mér finnst ekki bera vott um heilbrigt mataræði að þurfa sér- stakan nammidag,“ segir hann og bætir við að hann sé einnig laus við löngun í áfengi. Aldrei of seint að byrja Inntur eftir ráðum handa þeim sem langar að ná árangri nefn- ir hann tvennt: „Ef mælikvarðinn á árangur er að missa kíló þá gef- ur auga leið að fólk þarf að fara í ít- arlega naflaskoðun á mataræðinu. En ef mælikvarðinn er styrktar- aukning og almenn vellíðan þá er spurning hvort þú ert að hámarka nýtingu þíns tíma, hvort æfingarn- ar séu nægilega krefjandi og hvort ákefðin sé nægilega mikil,“ segir hann og bætir við að það sé aldrei of seint að byrja. „Ég vinn með iðk- endur frá 14 ára upp í 85 ára. Þar af eru til dæmis keppendur á sjötugs- aldri. Það er aldrei of seint að verða sterkari og öðlast þau lífsgæði sem aukinn styrkur gefur í daglegu amstri.“ n „Það verður enginn kona afmynduð af vöðvum nema hún noti ólögleg lyf. Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Stjörnuþjálfari Ingimundur er gríðar- lega vinsæll þjálfari. MyNd SIGtryGGur ArI Heimsmet í undir- búningi Ingimundur þjálfar Fanneyju Hauksdóttur sem er heimsmeistari ung- linga í bekkpressu. Kærustupar Ingimundur og fjölmiðlakonan Marta María Jónasdóttir hafa verið kærustupar í eitt ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.