Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2015, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2015, Síða 16
Helgarblað 31. júlí–4. ágúst 201516 Umræða Reynir Pétur, Forrest Gump og lífið í borginni Þ að var verið að rifja það upp í blöðunum að núna eru þrjátíu ár frá því Reyn- ir Pétur gekk í kringum landið, en það er mjög eftirminnilegt af ýmsum ástæð- um. Níu árum seinna var frum- sýnd í Bandaríkjunum sú fræga kvikmynd Forrest Gump með Tom Hanks í aðalhlutverki, en hún segir frá manni sem á einhverjum tíma- punkti æðir af stað eitthvað út í buskann og linnir ekki sprettinum, og innan skamms fer fólk að fylgja honum eftir og út úr öllu saman verður einhvers konar vakning og fjöldahreyfing. Og einhvern veginn þá minnti það mig á hann Reyni Pétur okkar. Drunginn yfir landinu Ég fluttist hingað heim eftir eftir fjögurra ára dvöl í Danmörku vor- ið 1983 og þá voru strembnir tím- ar í landinu. Það urðu ríkisstjórnar- skipti daginn sem við fluttum heim, við völd hafði verið undarlega sam- sett stjórn Gunnars Thoroddsen sem var þá fyrir nokkru búin að missa meirihlutann og kom fáu í verk, verðbólga var nálægt hundrað prósentum og nýja stjórnin, und- ir forystu Steingríms Hermanns- sonar, felldi gengið og herti að öllu. Það kostaði mikla kaupmátt- arskerðingu, þá varð „forsendu- brestur“ eins og var síðar farið að kalla það, til varð „misgengiskyn- slóð“ sem missti híbýli sín í stórum stíl og almennt varð mjög þungt yfir öllu. Ég gaf út Djöflaeyjuna það haust og sat tvö næstu ár flestum stundum niðrá lessal gamla Lands- bókasafnsins við Hverfisgötu við að setja saman Gulleyjuna, og það var lifað spart, hvergi var dekrað við landsfólkið eða mulið undir það. Glaðlegi reiknimeistarinn Maður hafði fylgst með Reyni Pétri í fréttunum, Ómar Ragnarsson hafði talað við þennan glaðlega og skemmtilega mann sem átti frum- leg svör við flestu og snöri hvern mann niður í hugarreikningi. Og fjölmiðlarnir fylgdust með för hans um Suðurland og svo Austurland og svo var hann kominn til Akureyr- ar og móttökur urðu sífellt veglegri. Svo einn daginn þetta sumar 1985 var ég mjög niðursokkinn við að reyna að klára bókina og sat í þögn- inni inni á lessal. Ákvað að standa upp og rétta úr mér einhvern tím- ann síðdegis og ganga aðeins út, gott ef ég var ekki að hugsa um að fá mér kaffi á Prikinu. En á neðanverð- um Laugavegi og í Bankastrætinu var þá mannhaf og mikil stemning, allir gengu á eftir hinum glaðværa og brosmilda manni sem fremstur fór og hafði þá gengið allan hring- veginn, svo var honum fagnað niðrá Lækjartorgi. Og ég fékk þennan dag og á þessari stundu þá tilfinn- ingu að það væri að birta yfir landi og þjóð. Loksins. Það þurfti eitt- hvað svona til að auka fólki bjart- sýni. Þessi drungi sem verið hafði undanfarin tvö ár eftir gengisfell- ingu og kjaraskerðingar fór að láta undan síga. Enda fór landið að rísa úr þessu. Og því ekki undarlegt að þegar myndin kom um göngu- hrólfinn Forrest Gump nokkrum árum síðar, að þá minnti hún mann á Reyni Pétur. Önnur heimkoma, 2001 Af einhverjum ástæðum þá rifjast stundum líka upp fyrir mér hvern- ig var að flytja aftur hingað heim til Reykjavíkur eftir ársdvöl í Berlín. Þetta var nokkru seinna, eða árið 2001. Þá var mikið talað um það að miðbær Reykjavíkur væri hrein- lega að lognast út af. Verslanir við Laugaveg lokuðu ein af annarri, allir keyptu inn í Kringlunni eða Smára- lind, það voru viðtöl við kaupmenn og veitingamenn sem sögðu að allt væri á síðasta snúningi í miðbæn- um. Ég hafði búið í Vestur-Berlín, við vesturenda hinnar löngu Kurfürstendamm, sem er helsta verslunargata þess borgarhelmings, og var reyndar enn aðalgata borg- arinnar; lífið var þá ekki nema að litlu leyti farið að færast út í gömlu höfuðborgina austan múrsins sem verið hafði. Og við gerðum það oft þarna í Berlín að labba í bæinn á kvöldin, ganga niður á Ku´damm eins og heimamenn kalla þessa löngu og líflegu götu. Og alls stað- ar var fólk, á öllum tímum ársins. Veitingastaðir úti um allt, og þeim fjölgaði stöðugt eftir því sem við gengum lengra og nálguðumst meir miðborgina. Víða var setið úti á gangstéttum, matarilmur og ská- laglamm barst út af veitingastöð- um, tónlist ómaði í loftinu og götu- listamenn skemmtu fólki. Og það var eitthvað notalegt við að verða á þennan hátt partur af iðandi mann- lífi. Miðborgin líflausa Svo vorum við semsé komin heim snemma árs 2001, og við búum í Hlíðunum, í göngufæri frá Lauga- veginum og miðborginni. Fram- an af viðraði ekkert sérstaklega til gönguferða, eins og títt er hér á landi á vetrum. En það var vor í lofti eitt kvöldið, gott ef það var ekki sunnudagur, og við ákváðum að bregða undir okkur betri fætinum og rölta í bæinn til að skoða mann- lífið. Og af stað héldum við, gegn- um hina værðarlegu Norðurmýri, og niður á Laugaveg. En þar greip mann undarleg tilfinning. Það var næstum eins og maður væri kom- inn í draugaborg. Ekki ósvipað þorpunum við Route 66 sem tæmd- ust þegar hraðbrautin var byggð og umferð við gamla veginn lagðist af. Það var bókstaflega enginn á ferli á Laugaveginum, og það sem meira er, mörg húsanna stóðu tóm, versl- anir voru farnar, og sums staðar hafði krossviðarplötum verið neglt fyrir gluggana. Hvergi matarilm- ur eða skálaglamm, varla heyrð- ist annað en gnauð í vindi. Á allri leiðinni niðrí Bankastræti mættum „ Jafnvel þó að Landsbankinn vilji byggja, þá er óþarfi að afskrifa þá hugmynd að óathuguðu máli með ópum og formæling- um; Landsbankinn hef- ur byggt sér mörg hús á landinu í gegnum tíðina sem eru bæjarprýði þar sem þau standa. Einar Kárason rithöfundur skrifar Þér að segja Forrest Gump „Einhvern veginn þá minnti það mig á hann Reyni Pétur okkar.“ Blómstrandi miðbær „Það merkilega er að núna er Laugavegurinn og raunar allur miðbærinn farinn að minna miklu meira á Ku´damm í Berlín og þannig götur þar sem lífið blómstrar.“ MynD HÖrður SvEinSSon Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur, góður sölumaður, samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur, úrlausnamiðaður og hafa áhuga á markaðsmálum og sölumennsku. Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann. Umsóknir sendist á Steinn@dv.is Atvinna í boði á einum skemmtilegasta vinnustað landsins Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir góðan og harðduglegan sölumann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.