Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2015, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.2015, Qupperneq 24
Helgarblað 31. júlí–4. ágúst 201524 Fólk Föst á eyðieyju Hvern myndir þú taka með og hvað mynduð þið gera? Þ ú tapaðir veðmáli og þarft að dvelja á eyðieyju frá verslun­ armannahelginni og til árs­ loka. Hnattstaða eyjunnar er með besta móti. Loftslagið er milt og frekar hlýtt og þar drýpur smér af hverju strái. Til afnota muntu hafa hús með flestum nútímaþægindum, en því miður ekkert internet. Þér hefur tekist að semja um að fá að taka með þér eina manneskju og þrjár bækur – manneskjan má þó ekki vera tengd þér fjölskyldubönd­ um. Hver yrði fyrir valinu? Hvað í ósköpunum mynduð þið gera, og hvaða þrjár bækur eru nógu spennandi til að þær verði eina les­ efnið þessa fimm mánuði? DV leitaði til nokkurra einstakl­ inga með yfir meðallagi frjótt ímyndunarafl og bað þá að svara þessum spurningum. n Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, doktorsnemi í mannfræði Ég myndi fá ofurfemínistann Fríðu Rós Valdimarsdóttur, formann stjórnar Kvenréttindafélags Íslands og stórvinkonu mína, með á eyðieyjuna. Svo þætti mér viðeigandi að taka með þrjár klassískar feminískar bækur til innblásturs, The Feminine Mystique eftir Betty Friedan, The Second Sex eftir Simone de Beauvoir og Feminism is for Everybody eftir Bell Hook. Við myndum nota tímann til að skrifa saman sögu sem ég hef lengi gengið með í maganum. Um tilveruna í óræðinni framtíð í óskilgreindri norður-evrópskri borg þegar konur hafa loks tekið yfir og eru orðnar normið, en ekki lengur frávik. Í bókinni verður rakið hvernig sá veruleiki varð til, fjallað um lykilþætti og hvernig feðraveldið smám saman molnaði og varð loks að engu. Söguhetjurnar eru stórhættulegir og eldklárir femínistar sem fundu aðferðir til að breyta hugsun og normum og fylgst er með framferði þeirra um árabil. Þetta er æði snúið og flókið verkefni og Fríða yrði hinn fullkomni meðhöfundur. Fyrir utan að vera skemmtileg og fyndin hefur hún einstaklega frjótt ímyndunarafl og hugmyndafræðilegan styrk og gæti því leikandi farið á flug og skapað þessa kærkomnu framtíðarsýn með mér. Bókin gæti heitið: Hinum megin við jafnréttið. Árni Svanur Daníelsson prestur Ég tæki Hauk Inga Jónasson, vin minn, með mér. Hann er guðfræðingur, sálgreinir og sérfræðingur í stefnumótun og stjórnun. Haukur er skarpur og skemmtilegur og alltaf til í ævintýri. Það er gott að tala við hann og gott að þegja með honum. Við tækjum Biblíuna með okkur, og bókina Blueprint for Revolution. How to use rice pudding, lego men, and other nonviolent techniques to galvanize communities, overthrow dictators, or simply change the world eftir Srdja Popovic og Matthew Miller. Báðar fjalla um byltingar, vekja athygli á ofbeldi í samskiptum fólks og ranglæti í heiminum. Þær benda á leiðir til að berjast gegn ranglæti án þess að beita ofbeldi. Þriðja bókin væri þykk glósubók sem við myndum fylla af hugmyndum um bætt samfélag án ofbeldis. Eyðieyjan Það gæti nú verið verra! Mynd www.123rf.coM Árni Svanur daníelsson Stefnan verður sett á bætt samfélag án ofbeldis. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir Mun skrifa bók um feminíska byltingu framtíðarinnar. Mynd SiGtryGGur Ari ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.