Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Side 8
Helgarblað 14.–17. ágúst 20158 Fréttir Þ rír af æðstu stjórnendum heilbrigðistæknifyrirtækisins Össurar hf. hafa á undanförn- um dögum nýtt sér kauprétt- arsamninga sem þeir gerðu við fyrirtækið árið 2012 og hagnast gríðarlega. Samanlagður hagnað- ur þremenninganna af viðskiptunum með hluti í Össur nemur ríflega hálf- um milljarði króna. Það var forstjórinn, Jón Sigurðsson, sem reið á vaðið í síðustu viku þegar hann keypti 1,25 milljónir bréfa af fyr- irtækinu og seldi þau strax á markað. Samkvæmt tilkynningu í Kauphöll- inni greiddi Jón 8,55 danskar krónur á hvern hlut klukkan 12:04 þann 4. ágúst síðastliðinn en einungis sex mínútum síðar seldi hann þessa sömu hluti á 23,5 krónur danskar. Hann keypti því hvern hlut á sem nemur 168 krónur ís- lenskar en seldi á sem nemur 461,7 ís- lenskar krónur. Heildarhagnaður Jóns af viðskiptunum, sem voru hluti af kaupréttarsamningi milli hans og Öss- urar frá apríl 2012, nam því rúmlega 367 milljónum króna. Jón lét hafa það eftir sér í sam- tali við visir.is í síðustu viku að hon- um þætti villandi að tala um að hann hafi keypt og selt bréf í Össuri með að- eins örfáa mínútna millibili. „Svona eru kaupréttarsamningar. Árið 2012 er gert samkomulag um að ég geti keypt á genginu 8,55. Ég er ekki að selja eftir örfáar mínútur. Ég er að selja eftir tæp- lega 4 ár.“ Launahæsti forstjórinn drýgir tekjur Össur hf. er skráð í Kauphöll Íslands þannig að öll viðskipti sem þessi eru tilkynnt þangað og birt opinberlega. Í úttekt, sem DV vann í apríl síðastliðn- um á launum stjórna og stjórnenda fyrirtækja innan Kauphallarinnar, kemur fram að Jón er langlaunahæsti forstjóri þeirra fjórtán fyrirtækja sem þar eru skráð. Árið 2014 var Jón með 1,7 milljónir dala í árslaun, eða um tæplega 239 milljónir íslenskar mið- að við gengi bandaríkjadals þá. Það gera rétt tæplega 20 milljónir króna á mánuði. Hagnaðurinn sem Jón inn- leysti vegna kaupréttarsamningsins nú á dögunum nemur því vel ríflega árslaunum hans hjá fyrirtækinu og er heldur betur rausnarleg búbót. Í framkvæmdastjórn Össurar sitja auk forstjórans sex manns. Tveir þeirra, líkt og Jón, nýttu sér í vikunni kaupréttarsamninga við fyrirtækið frá árinu 2012. Það eru þeir Ólafur Gylfa- son, sölu- og markaðsstjóri Össurar, og Þorvaldur Ingvarsson, forstöðu- maður rannsókna og þróunar. Sex framkvæmdastjórar með 370 milljónir í laun Ólafur keypti á fimmtudag 150 þús- und hluti á 8,55 danskar klukkan 14:35 en seldi síðan fjórum mínútum síð- ar ríflega 147 þúsund hluti á genginu 23,5 danskar. Það gerir hagnað upp á 2.172.000 danskar eða tæplega 43 milljónir króna. Á miðvikudag keypti Þorvaldur 350 þúsund hluti á 8,59 danskar, eða 168 krónur íslenskar, klukkan 11:46 en seldi síðan mínútu síðar ríflega 343 þúsund hluti á 480 krónur íslenskar. Hagnaður Þorvaldar af viðskiptun- um nemur um 105 milljónum króna og bætist við rúmar 70 milljónir sem hann hagnaðist um í lok maí í samb- ærilegum viðskiptum með bréf í fyrir- tækinu. Laun sexmenninganna, að for- stjóranum undanskildum, eru ekki sundurliðuð í ársreikningi Össur- ar fyrir árið 2014 en þar kemur fram að heildarlaun og fríðindi fram- kvæmdastjórnarinnar hafi numið tæpum 2,8 milljónum dala á árinu, jafnvirði 369,6 milljónir króna. Sé þeim deilt bróðurlega á milli stjórn- endanna sex gera það 61,6 milljónir króna í árslaun á hvern og einn eða ríf- lega 5 milljónir króna á mánuði. Með kaupréttarsamningunum er ljóst að Þorvaldur og Ólafur voru að drýgja tekjur sínar verulega. Þess ber að geta að að Össur hagn- aðist um 7 milljarða króna árið 2014 og stefnir í annað eins í ár miðað við uppgjör fyrirtækisins á fyrstu tveimur ársfjórðungum. Þá ber að athuga að kaupréttarsamningar eru algengt fyr- irkomulag í fyrirtækjum. n VÍKURVERK EHF • VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS O-GRILL O-Grill 3500 kr. 32.950 O-Grill 1000 kr. 27.950 Borðstandur kr. 9.595 Taska kr. 2.995 Í ferðalagið Á svalirnar Í garðinn Á pallinn Allt árið Fjölgunin skilar sér illa Alls 517 þúsund ferðamenn komu til landsins á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 401 þús- und á sama tímabili í fyrra. Þessi aukning hefur leitt til nokkuð betri herbergjanýtingar hjá hótel- um í landinu en var í fyrra. Hagsjá Landsbankans fjallar um þetta á vef sínum. Þar segir að nýting gistirýma á Suðurnesjum, Suðurlandi, Vest- urlandi og Vestfjörðum hafi aukist alla sex fyrstu mánuði ársins sam- anborið við sömu mánuði í fyrra. Nýting á höfuðborgarsvæðinu var betri alla mánuðina nema í apríl og júní þar sem hún var lítils hátt- ar lægri. Nýtingin í apríl og júní var þó mjög góð miðað við aðra landshluta. Í Hagsjá segir að Austurland og Norðurland skeri sig nokkuð úr í þessum samanburði þar sem fjölgun erlendra ferðamanna virð- ist ekki hafa skilað sér með sama hætti í betri nýtingu gistirýma og á öðrum svæðum. Þannig var Aust- urland með verri nýtingu fyrstu þrjá mánuði ársins. Á Norðurlandi jókst nýtingin einungis í janúar og júní. Aukningin í nýtingunni í jan- úar var þó lítil. Þurftu að nauðlenda Tveir menn voru um borð í lítilli flugvél sem nauðlenti í Súðavíkur- hlíð um klukkan tólf á fimmtudag. Flugvélin hafði lagt af stað frá Ísa- firði aðeins nokkru áður en lenti í vandræðum sem leiddu til þess að nauðlenda þurfti vélinni. Hjálpa Paul og Rosmary Halda styrktarkvöld fyrir skóla í Kenía H efur þú einhvern tímann látið hugann reika til Afríku? Þessari spurningu veltir hóp- ur ungra kvenna fyrir sér, en þær ætla ásamt þeim Paul Ramses Oduor og Rosmary Atieno að standa fyrir söfnun til að leggja lokahönd á byggingu og rekstur grunnskólans Versló í þorpinu Got Agulu, Kenía. Skólinn mun veita 320 börnum menntun og verður vígður þann 12. september 2015. Nú þegar eru sam- tökin að reka leikskólann litla Versló sem var vígður árið 2012 og styður 150 börn. Tears Children stendur einnig fyrir bæði fótboltakennslu fyrir ung- menni í Got Agulu en styður einnig um 70 ekkjur í Mathare-fátækrahverf- inu í höfuðborginni Næróbí. Þetta verkefni er að sönnu samvinnuverk- efni því ekkjurnar halda úti vinnu- stofu þar sem unnir eru skartgrip- ir og fylgihlutir úr náttúrulegu og endurunnu efni, t.d. handtöskur sem ofnar eru úr plasti. Þetta skart er síð- an selt á Íslandi og andvirðið notað í hjálparstarf Tears Children. Líkt og DV greindi frá á dögunum söfnuðu Paul Ramses og eiginkona hans, Ros- mary Atieno Odhiambo, einni millj- ón á sex mánuðum með því að safna flöskum um helgar í miðbæ Reykja- víkur. Þau nýttu peninginn til þess að stofna skólann í Kenía. Í dag, föstu- dag, verður haldið styrktarkvöld Tears Children og Youth Aid á Hótel Sögu. Þar verður starf þeirra kynnt og í boði verður kvöldverður í takt við afríska menningu. Aðgangseyrir er 3.000 krónur. n Hópurinn allur: Rosemary Atieno, Paul Ramses Oduor, Hildur Erla Gísla- dóttir, Ingibjörg Elín Gísladóttir, Tinna Eyberg Örlygsdóttir, Dagbjört Kristín Helgadóttir, Sóley Sara Ei- ríksdóttir, Sigrún Líf Gunnars- dóttir, Guðbjörg Thoroddsen. Toppar hagnast um hálfan milljarð Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, nýtti kauprétt sinn samkvæmt samkomu- lagi við fyrirtækið á dögunum. Þessi launahæsti forstjóri landsins hagnaðist hraustlega á viðskiptunum. Mynd öSSur 43 milljónir Ólafur Gylfason, sölu- og markaðsstjóri Össurar. Mynd öSSur 105 milljónir Þorvaldur Ingvarsson, forstöðumaður rannsókna og þróunar. Það sem af er ári hefur hann hagnast um 175 milljónir með því að nýta sér kauprétt sinn í Össuri. Mynd öSSur 367 milljónir 43 milljónir 105 milljónir Þrír úr framkvæmdastjórn Össurar nýta sér kaupréttarsamninga sem þeir gerðu 2012

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.