Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Side 16
Helgarblað 14.–17. ágúst 201516 Fréttir Erlent Dalshrauni 13 220 Hafnarfirði Sími 565 2292 Settu fókusinn á Þýsk gæði í gegn Sumarútsalan hafin í Hjólaspretti 20 - 50% afsláttur af völdum hjólum Rugla fólk í ríminu með vafasömum fullyrðingum n Coca Cola kostar vafasöm þrýstisamtök n Senda villandi skilaboð um ástæðu offitufaraldursins Þ rýstisamtök, sem þiggja veg- lega styrki frá gosdrykkja- framleiðandanum Coca Cola, fullyrða að hreyfingar- leysi, en ekki neysla á sykruð- um gosdrykkjum og ruslfæði, sé ástæða þess offitufaraldurs sem nú ríður yfir á Vesturlöndum. Meðlimir samtakanna, Global Energy Balance Network, samanstanda meðal annars af vísindamönnum sem starfa við virta háskóla í Bandaríkjunum. Óháð- ir sérfræðingar eru uggandi vegna samtakanna og þeirra skilaboða sem þau senda. New York Times og Guar- dian fjölluðu um samtökin í vikunni. Villandi skilaboð „Fókusinn í fjölmiðlum og meðal vís- indamanna er þessi: „Æ, fólk borð- ar of mikið, borðar allt of mikið – skyndibita og sykruðum drykkjum er kennt um,“ sagði varaforseti samtak- anna, Steven N. Blair, í myndbandi fyrr á árinu þar sem hann kynnti starfsemi Global Energy Balance Network. Vísaði hann í þá staðreynd að heimsbyggðin, sérstaklega íbú- ar Vesturlanda, væru að fitna úr hófi fram. Telja samtökin að Bandaríkja- menn – sérstaklega þeir sem vilja halda þyngdinni í skefjum - leggi of mikla áherslu á að sniðganga skyndi- bita og sykraða drykki og of litla áherslu á hreyfingu. Raunar sé hreyf- ingarleysi helsta orsök þess að fólk fitnar, en ekki sykurneysla og neysla á hitaeiningaríkum mat. Sérfræðingar sem New York Times ræddi við segja að skilaboð samtakanna séu villandi og liður í þeirri viðleitni Coca Cola, eins stærsta drykkjarvöruframleið- anda heims, til að beina sjónum fólks að öðru en vörum fyrirtækisins þegar umræða um offitu og lífsstílstengda sjúkdóma ber á góma. Það sé villandi að halda því fram að fólk geti haldið þyngd í skefjum með hreyfingu á sama tíma og það neytir skyndibita og sykraðra gosdrykkja í stórum stíl. Mataræði sé stærri orsakavaldur en hreyfing þegar offita er annars vegar. „Þetta er þeirra svar“ „Sala á vörum Coca Cola fer minnk- andi og það er mikil pressa, bæði frá stjórnmálamönnum og almenningi, að stemma stigu við þessari óheilla- þróun sem offitufaraldurinn er,“ seg- ir Michele Simone, lögfræðingur og sérfræðingur í heilsurétti, í viðtali við New York Times. Sem dæmi um þetta má nefna að á síðustu tuttugu árum hefur neysla á sykruðum gosdrykkj- um minnkað um 25 prósent í Banda- ríkjunum. „Þetta er þeirra svar,“ seg- ir Simone og vísar í samtökin sem að stórum hluta eru rekin með beinu fjárframlagi frá Coca Cola. „Þeir eru örvæntingarfullir og vilja stöðva blæðinguna,“ bætir hún við. Marion Nestle, prófessor í nær- ingarfræðum og höfundur bókarinn- ar Soda Politics, sem kemur í verslan- ir síðar á árinu, segir að samtökin séu ekkert annað en „frontur“ fyrir Coca Cola. „Markmið þeirra er skýrt: Fáum þessa sérfræðinga til að rugla fólk í ríminu og draga athyglina að ein- hverju öðru.“ Þá segir Barry M. Pop- kin, prófessor í næringarfræði við Norður-Karólínuháskóla, að stuðn- ingur Coca Cola við samtökin minni á þá aðferð sem tóbaksfyrirtækin not- uðu í stórum stíl þegar ýmsir sér- fræðingar voru fengnir til að efast um skaðsemi reykinga þegar sannleik- urinn var annar. 200 milljónir króna New York Times greinir frá því að Coca Cola hafi reitt fram eina og hálfa milljón Bandaríkjadala, jafnvirði 200 milljóna íslenskra króna, á síð- asta ári þegar samtökin voru stofnuð. Frá árinu 2008 hefur Coca Cola var- ið um fjórum milljónum Bandaríkja- dala, rúmum hálfum milljarði króna, í styrki til tveggja stofnenda Global Energy Balance Network. Þar á meðal er dr. Steven N. Blair sem er prófess- or við háskólann í Suður-Karólínu. Athygli vekur að heimasíða sam- takanna, gebn.org, er skráð á sama heimilisfang og höfuðstöðvar Coca Cola í Atlanta. Forseti samtakanna, James O. Hill, sem jafnframt er pró- fessor við Colorado School of Med- icine, segir að ástæðan sé einfaldlega sú að menn þar á bæ hafi ekki kunnað að skrá heimasíðu. „We are running the show,“ sagði hann við blaðamann um efnistök síðunnar sem hann segir að Coca Cola komi ekki nálægt. Fátt um svör „Skilaboð þeirra eru þau að offita snúist ekki um matinn sem þú borð- ar eða drykkina sem þú drekkur. Hún snúist um að jafnvægið milli þjálf- unar og mataræðis sé ekki rétt,“ seg- ir dr. Yoni Freedhoff, sérfræðing- ur í offitu við háskólann í Ottawa. Ef ekki væri fyrir dr. Freedhoff er ekki víst að tengsl Global Energy Balance Network við Coca Cola hefðu komið upp á yfirborðið. Það var hann sem sendi opna fyrirspurn til forsvars- manna samtakanna um hvernig sam- tökin eru fjármögnuð. Ekkert kom fram á heimasíðu samtakanna að Coca Cola væri stór bakhjarl. Því var þó kippt í liðinn þegar fyrirspurnin leit dagsins ljós. Forsvarsmenn Coca Cola vildu ekki tjá sig um tengslin við samtökin við New York Times þegar eftir því var leitað. n Coca Cola Stórfyrirtækið hefur átt undir högg að sækja vegna minnk- andi neyslu og aukinnar gagnrýni á þátt þess í offitufaraldrinum. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Frontur fyrir Coca Cola Marion Nestle er virtur háskólaprófessor. Hún segir að samtökin séu ekkert annað en „frontur“ fyrir Coca Cola. „Æ, fólk borðar of mikið, borðar allt of mikið – skyndibita og sykruðum drykkjum er kennt um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.