Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2015, Side 18
Helgarblað 14.–17. ágúst 201518 Fréttir Erlent Þegar þú teflir í klukkutíma notarðu jafn mikla orku og skákklukka þarf til að ganga í næstum 100 ár Opið 10-17 alla daga. Leiðarlýsingar á landsvirkjun.is/heimsoknir Það er kraftur í þér. Gagnvirk orkusýning Landsvirkjunar við Ljósafoss varpar ljósi á orkuna sem býr í öllum hlutum. Ljósafossstöð er í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Verið velkomin. Rústir einar Sjö hundruð eru sárir og 44 látnir eftir ótrúlega öflugar sprengingar í Tianjin F jörutíu og fjórir létust í tveim- ur öflugum sprengingum í hafnarborginni Tianjin á miðvikudag. Rúmlega sjö hundruð sátu eftir slasað- ir og sárir, en líkur eru á að eftir eigi að finna mun fleiri fórnarlömb. Tólf hinna látnu eru slökkviliðsmenn sem reyndu að sinna björgunar- starfi. Sextíu og sex eru alvarlega slasaðir, sumir lífshættulega. Alls 36 slökkviliðsmanna er enn saknað. Sprengingin varð eftir að eld- ur kviknaði í vörugeymslu við höfn- ina um klukkan hálf tólf að kvöldi miðvikudags í Kína. Fyrst varð ein sprenging og nokkrum andartökum síðar varð önnur, mun öflugri. Högg- krafturinn var svo mikill að rúður sprungu í húsum og bílum þrem- ur kílómetrum frá vöruskemmunni. Sprengingin sást úr geimnum að sögn BBC fréttastofunnar. Í vörugeymslunni voru geymd eiturefni og gas og ætlar umhverfis- stofnun í Tianjin að hættulegt geti verið að anda að sér eiturgufun- um eftir sprenginguna. Þeir segja þó að enn sem komið er séu þau ekki yfir hættumörkum. Talið er að fyrri sprengingin hafi verið ígildi þess að sprengja upp þrjú tonn af TNT sprengiefni og sú seinni þess að sprengja í loft upp tuttugu og eitt tonn af TNT. „Ég sá eldinn og svo heyrði ég: BÚMM. Það varð sprenging. Mín fyrsta hugsun var sú að hlaupa eins hratt og ég gat og koma mér svo í skjól,“ segir Wu Dejun hársnyrtir. „Þegar ég komst í skjól sá ég að ég var öll útötuð í blóði.“ Kínversk yfirvöld segjast ætla að komast að því hvað nákvæmlega gerðist í Tianjin og finna þann sem ber ábyrgðina. Ljóst er að fyrir höndum eru margar vikur af hreinsunarstarfi og án efa erfið og langdregin uppbygging. n Slösuð Kona sem varð fórnarlamb sprengingunnar fær aðhlynningu á sjúkrahúsi. Staðfest hefur verið að 44 eru látnir, en líkur eru á að sú tala muni hækka umtalsvert. Fjölmargir slösuðust, líkt og konan, og höfðu læknar og hjúkrunarfræðingar varla undan. Eyðilegging Enn stígur reykur upp úr gámum sem krömdust og sprungu í tætlur í sprengingunni. Mynd REutERS teygðu sig langt Slökkviliðsmenn voru lengi að störfum og reyndu að komast að eldhafinu frá ólíkum áttum. Eldtungurnar teygðu sig langt. Mynd REutERS Í ljósum logum Hér sést hvernig bifreiðarnar brunnu stuttu eftir sprenginguna í Tianjin. Íbúar í nokkurra kílómetra fjarlægð fundu fyrir titringi sprengjunnar. Mynd REutERS Að störfum Slökkviliðsmenn sinna slökkvistörfum á svæðinu þar sem sprengingin varð í Tianjin. Raunar voru sprengingarnar tvær og eyðileggingin eftir þær á iðnaðarsvæðinu er mikil eins og sést á þessari mynd. Eitruð efni og gas voru geymd á svæðinu sem gerði ástandið því mun alvarlegra. Mynd REutERS Óyfirstíganlegt verkefni Brakið úr byggingum, bílum og öðru er á víð og dreif. Hér reynir maður á gröfu að hefja tiltektina. Mynd REutERS Margir slasaðir Maðurinn slasaðist alvarlega á fótum í sprengingunni. Hér sinna læknar og hjúkrunarfræðingar honum á sjúkrahúsi. Um 700 slösuðust.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.