Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 22.04.2016, Qupperneq 6

Fréttatíminn - 22.04.2016, Qupperneq 6
Ferðamönnum í hvalaskoðun hefur stórfjölgað en hrefnu fer hinsvegar fækkandi. Hags- munafólk í greininni er lang- þreytt á því að á sama tíma sé verið að veiða hrefnuna með tapi. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is „Við höfum áhyggjur af mikilli fækk- un hrefnu á Faxaflóa en hvalaskoð- un er orðin mikilvæg atvinnugrein í borgarsamfélaginu og fjöldi fólks hefur atvinnu af greininni,“ segir María Björk Gunnarsdóttir, verk- efnastjóri hjá Hvalaskoðunarsam- tökum Íslands. 272 þúsund ferðamenn fóru í Hvalaskoðun árið 2015 með þrettán fyrirtækjum í greininni. Árið 2014 voru þeir 230 þúsund. Undanfarin ár lætur nærri að fjórðungur allra ferðamanna hafi farið í slíkar ferð- ir en fjöldinn eykst ár frá ári. Þetta kemur fram í nýrri samantekt sem fyrirtækið Deloitte vann fyrir Hvala- skoðunarsamtök Íslands. Hrefnu á Faxaflóa er að fækka mikið á grunnslóðinni, samkvæmt tölum frá Hafrannsóknarstofnun. Hrefnan hefur fært sig á kaldari svæði og gerir það atvinnugreininni erfitt fyrir. María Björk segir að það skjóti skökku við að á sama tíma sé verið að halda úti hrefnuveiðum svo að segja með tapi og drepa þessar fáu skepnur sem eftir eru. Þetta fari afar illa saman, það séu ekki nema fjórar sjómílur, þegar minnst lætur, milli veiðimanna og ferðamanna en báðum sé þó illa við að hittast svo það gerist ekki. Steingrímur J. Sigfússon skip- aði í tíð sinni sem sjávarútvegsráð- herra nefnd til að miðla málum milli hrefnuveiðimanna og hvala- skoðunarfólks. Úr varð áætlun um að stækka griðasvæðið á Faxaflóa, allt frá Garðskaga að Skóganesi á Snæfellsnesi. Sú áætlun var þó blás- in af eftir að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar tók við. Nýr ráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, hefur nú tekið við lyklavöldum í sjáv- arútvegsráðuneytinu en óskað hefur verið eftir fundi með honum til að ræða málið. HVALASKOÐUN Á ÍSLANDI 10 fyrirtæki árið 2014 13 fyrirtæki árið 2015 15 fyrirtæki árið 2016 230 þúsund fóru í skipulagðar hvalaskoðunarferðir 2014. 272 þúsund fóru í slíka ferð árið 2015. Fleiri ferðamenn skoða færri hrefnur Húsnæðisekla ógnar grunn- þjónustunni „Það er hætt við að samfélaginu á Kirkjubæjarklaustri blæði út ef ekki fæst hingað nýtt fólk til að spyrna við fótum,“ segir Anna Gyða Gunnlaugsdóttir, hjúkrunar- forstjóri á Klausturhólum á Kirkju- bæjarklaustri. Mikil húsnæðisekla á Kirkjubæj- arklaustri hamlar því að nýtt fólk fáist til að starfa þar, en það er ekki einsdæmi á vinsælum ferða- mannastöðum. Venjuleg útleiga er ekki hagstæð þar sem ferða- mannastraumurinn sprengir upp allt leiguverð. Í sumum tilfellum er því erfitt að sinna grunnþjón- ustu við samfélagið á staðnum þar sem starfsfólk getur ekki fundið sér þak yfir höfuðið. „Ekki hefur ástandið skánað í ferðamannaból- unni,“ segir Anna Gyða. „Það er slegist um hverja herbergiskytru hér.“ Anna Gyða segir að hjúkrunar- heimilið að Klausturhólum sé rekið með of fáum starfsmönnum í dag, vegna þessa, þrátt að hún hafi eytt miklum tíma og orku í að reyna að útvega starfsfólk og hús- næði. Ástandið hafi oft verið mjög erfitt í vetur vegna þessa, ekki síst í febrúar þegar mikil veikindi herjuðu á. „Sveitarfélagið hér er að mínu mati vanmegnugt að takast á við að reka þetta samfélag, úrræða- leysið er algert. Það vantar nýtt blóð, fleira fólk, og til þess þarf húsnæði. Og þá þarf að vinna í að bæta þar úr. Og það finnst mér vera hlutverk sveitarfélaga, ekki hjúkrunarforstjóra,“ segir Anna Gyða sem sagði upp starfi sínu og flytur frá Kirkjubæjarklaustri í vor. | þká Landsbyggð Hjúkrunarforstjóri fékk nóg af leigureddingum Ferðamannastraumurinn sprengir upp leiguverðið á Kirkjubæjarklaustri María Björk Gunnarsdóttir. Myndin sýnir veiddar hrefnur í Faxaflóa árið 2014 til samanburðar við feril eins af hvalaskoðunarskipa Eldingar sama ár. Svarti ferillinn sýnir jafnframt línuna sem markar bann við hrefnuveiðum skv. reglugerð 632/2013. Anna Gyða Gunnlaugsdóttir, hjúkrunarforstjóri á Klaustur- hólum á Kirkjubæjarklaustri. Mynd | NordicPhotos/Getty Ferðaþjónusta Gríðarlegur vöxtur er í hvalaskoðun 6 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 22.APRÍL–24. APRÍL 2016 Þú finnur nýja Taxfree sófabæklinginn á www.husgagnahollin.is www.husgagnahollin.is 558 1100 Allir sófar á taxfree tilboði* * Taxfree tilboðið gildir bara á sófum og jafngildir 19,35% afslætti. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar. PASO DOBLE Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga.Grátt eða brúnt slitsterkt áklæði.Stærð: 300 × 100/150 × 95 cm 298.379 kr. 369.990 kr. SÓFAR TAXFREE Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 Ísafirði Skeiði 1 www.husgagnahollin.is * Taxfree tilboðið gildir bara á sóf­ um og jafngildir 19,35% afslætti. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður viðis­ aukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahall­ arinnar og gildir til 29. apríl 2016 Allir sófar á taxfree tilboði* SÓFAR TAXFREE PASO DOBLE Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga. Grátt eða brúnt slitsterkt áklæði. Stærð: 300 × 100/150 × 95 cm 298.379 kr. 369.990 kr. CLEVELAND Hornsófi með tungu. Hægri eða vinstri tunga. Dökk­ eða ljósgrátt slitsterkt áklæði. Stærð: 308 × 140/203 × 81 cm 153.218 kr. 189.990 kr. TWIST 2,5 sæta sófi. Margir litir. Viðarfætur. Stærð: 157 x 92 x 95 cm 88.720 kr. 109.990 kr. LOKA- HELGIN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.