Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.04.2016, Blaðsíða 42

Fréttatíminn - 22.04.2016, Blaðsíða 42
Heilsutíminn 42 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 22.APRÍL–24. APRÍL 2016 Lífræn Jurtablanda • Bætir meltinguna • Brýtur niður fitu í fæðunni • Hjálpar gegn brjóstsviða • Dregur úr uppþembu • Vatnslosandi • Virkar fljótt Nánari upplýsingar á www.heilsa.is Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum sem léttir meltinguna Fæst í apótekum og heilsubúðum Góð melting styrkir ónæmiskerfið Stjórnaðu bakteríu- flórunni með OptiBac P R E N T U N .IS Tilboðsverð kr. 159.615,- Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál og svunta Fullt verð kr. 199.518,- Vitamix Pro 750 á sér engann jafningja. Nýtt útlit og nýir valmöguleikar. 5 prógrömm og hraðastillir sjá til þess að blandan verður ávallt fullkomin og fersk! Galdurinn við ferskt hráefni Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Hreinsun nauðsynleg fyrir líkamann Rakel Sigurðardóttir rekur Rakel Healthy Living í Lúxemborg. Rakel Sigurðardóttir mælir með detoxi en að ætla að drekka einungis vatn eða gulrótarsafa getur þó ein- faldlega verið hættulegt Guðrún Veiga Guðmundsdóttir gudrunveiga@frettatiminn.is Rakel Sigurðardóttir mælir með því að taka heilsuna föstum tökum inn á milli og segir hreinsun vera nauðsynlega fyrir líkamann. „Ef mataræði samanstendur af mikið unnum mat, gosdrykkja- þambi, áfengisdrykkju, sætuefna- áti og mikilli neyslu á tormeltan- legum próteinum eins og til dæmis laktósa og glúteni, ásamt almennt trefjasnauðu matarræði þá getur það haft mjög slæm áhrif á heilsu og líðan einstaklings,“ segir Rak- el Sigurðardóttir sem lauk námi í næringarfræði frá Metropolitan University College í Kaupmanna- höfn og rekur Rakel Healthy Li- ving í Luxemborg þar sem hún sinnir næringarráðgjöf, kennslu, fyrirlestrum og heilsueflingu innan fyrirtækja. Að sögn Rakelar er hreinsun, eða detox, líkamanum bæði nauð- synleg og eðlislæg. „Líkaminn býr auðvitað yfir þeirra færni að hreinsa sig sjálfur. Hins vegar með mjög slæmu matarræði má mögu- lega deila um það hvort líkam- inn nái að sinna sínu hlutverki og hreinsa sig upp á eigin spýtur.“ Lélegt matarræði veldur meðal annars álagi á lifur, nýru og melt- ingarkerfi. „Slíkt matarræði skilar sér í slæmri þarmaflóru, lélegri meltingu, veldur svefntruflunum, aukinni streitu og almennum pirr- ingi. Þá getur skipt máli að þú takir skref til baka og lítir yfir heilbrigð- isvenjur þínar í heild sinni.“ Rakel mælir þó með því að fara varlega í allar breytingar. „Að ætla sér að vaða í detox í þrjá daga með því að drekka einungis vatn eða gulrótarsafa getur einfaldlega verið hættulegt. Almennt gildir að sinna heilsu sinni vel að jafn- aði. Stunda ánægjulega hreyfingu, borða holla og trefjaríka fæðu ásamt því að gæta vel að andlegri heilsu og vellíðan.“ Til þess að styðja líkamann í að hreinsa og sig og hvíla skiptir miklu máli að gefa meltingarkerf- inu hvíld. „Gott er að leyfa 3-4 klukkustundum að líða á milli mál- tíða og vera ekki stöðugt að narta þess á milli. Eins skiptir máli að gefa meltingarkerfinu hvíld frá síð- ustu máltíð dagsins til fyrstu mál- tíðar daginn eftir, helst 12 klukku- stundir.“ Að taka heilsuna föstum tökum inn á milli getur gefið manni mikla orku og vellíðan. „Að hreinsa bæði líkama og sál myndi ég segja að væri nauðsynlegt inn á milli. Að leyfa sér að borða hreina og óunna fæðu, útiloka áfengi og gosdrykki, ná góðum nætursvefni, fara í gufu, góða göngutúra og jóga. Takmarka streituvalda, slökkva á tölvunni og símanum, vera úti í náttúrunni og ná að tengja sig líkama og sál. Ég hugsa að það sé eitt af því besta sem maður getur gert fyrir sjálfan sig,“ segir Rakel. Norræna húsinu Sturlugötu 5, 101 Reykjavík Skipuleggjandi: GRAL-NORDEN www.gralsbodskapur.org Miðvikudaginn 27. apríl 2016 kl. 20:00 Aðgangseyrir 500,-- kr. vasey-leuze@gral-norden.net Sími: 842 2552 Að uppgötva okkur sjálf - Samkvæmt Gralsboðskapnum Fyrirlestur á ensku: Christopher Vasey frá heila til anda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.