Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 22.04.2016, Blaðsíða 62

Fréttatíminn - 22.04.2016, Blaðsíða 62
 Meira á frettatiminn.is Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir svanhildur@frettatiminn.is Í litlu stúdíói í Gautaborg hefur listakonan Kristín Dóra Ólafsdóttir iðkað list sína frá áramótum. Þar stundar hún skiptinám við myndlist og hefur blómstr- að sem listamaður frá deginum sem hún lærði að elska sjálfa sig. „Hér er allt aðeins betra en á Íslandi, aðeins betra veður, að- eins betri samgöngur og aðeins ódýrara kaffi. Þó svo ég hlakki líka til að koma heim.“ Í tvö ár hefur Kristín Dóra ver- ið í sjálfsástarátaki líkt og hún kallar það. Áður leið henni illa í eigin skinni og dró sjálfa sig niður með neikvæðum hugsunum. Hún sagðist ekki hafa elskað sjálfa sig og var sannfærð um að engum þætti hún aðlaðandi. „Ég varð að breyta því hvernig ég hugsaði um mig. Læra að elska mig og líða vel með sjálfri mér. Ég byrj- aði smátt og setti mér það mark- mið að lesa fleiri bækur. Ég gaf sjálfri mér þann tíma að fara ein á kaffihús að lesa, þá fann ég hvað lestur gefur mér mikið. Út frá því fór ég að skrifa meira, síðan mála meira og skapa meira. Þetta helst allt í hendur, það að njóta þess að vera ein að drekka gott kaffi var stórt skref.“ „Með auknu sjálfstrausti ger- ast góðir hlutir og ég er enn á því ferðalagi,“ segir Kristín sem í framhaldinu fór að einblína á það sem gerði hana hamingju- sama. „Ég stundaði jóga og hug- leiðslu og drakk mikið af góðu kaffi. Þessu ferli fylgdi aukið sjálfstraust og trú á það sem ég er að gera. Að kannski sé eitthvað af því sniðugt, einhvers virði eða allavega áhugavert. Ég losnaði við hömlur og þarf ekki vera best í heimi, maður þarf ekki að vera fullkominn.“ Sem listamaður er Kristín Dóra ekki að skilgreina sig. Hún blandar saman listformum sem byggja á orðum. „Kennarinn minn sagði að ég væri með flott- ljótan stíl, pínulítið barnalegan en með húmor. Húmor skiptir mig máli og barnalegt þarf ekki að vera slæmt. Útgangspunktur- inn minn er alltaf orð sem ég þróa síðan í eitthvert listform, hvort sem það er málverk, leir eða ljóð í gluggann.“ Áður hef- ur Kristín Dóra byggt verkefni á staðalímyndum þegar hún sat fyrir í módel fitness bikiníi undir heitinu „All I Want For Christmas Is a Healthy Body,“ sem var ádeila á lag Egils Einars- sonar, eða Gillz. Einnig gaf hún út ljósmyndabókina Prinsess- an í Mjódd sem skartar ungum konum í verslunarmiðstöðinni Mjódd. „Á mínum yngri árum var ég ekki að flagga því að ég væri úr Breiðholtinu. Ég fagna því hinsvegar í dag og hef sett fókus minn þangað, ég er Prins- essan í Mjódd.“ 62 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 22.APRÍL–24. APRÍL 2016 HAFÐU ÞÁ SAMBAND VIРDREIFING@FRETTATIMINN.IS FÉKKSTU EKKI BLAÐIÐ Í DAG? Þorsteinn Stefánsson, eða Steini eins og hann er kallaður, er trillukarl á smábátnum Úndínu. Steini segist fara út þegar vel viðrar og þegar hann nennir, til að fiska í soðið fyrir sig og sína. Hann er oft kominn út fyrir allar aldir og drekkur kaffi á brúsa, ýmist um borð í Úndínu eða á kaffistofu trillukarla í gömlu verbúðunum við Reykjavíkurhöfn. „Ég fylgist með flóðatöflu og reyni að vera kominn út á fallaskiptum eða í affalli, þá bítur fiskurinn frekar á,“ segir Steini. Hann segir fátt betra en að komast út á sjó og finna kyrrðina sem felst í því að velkjast um á hafi úti. Morgunstundin Kaffi á hafi úti Mynd | Rut „Júlíus sonur minn tekur svo við verkstæðinu eftir 15 ár,“ segir Björg- vin Tómasson orgelsmiður, sá eini á landinu. Sonurinn fussar og sak- ar föður sinn um að lengja tímann í hvert skipti sem þetta efni ber á góma. Starfsemi Björgvins á Íslandi spannar heil 30 ár, lengst af á Blika- stöðum í Mosfellsbæ, en frá árinu 2005 hefur verkstæðið verið í gamla frystihúsinu á Stokkseyri, alveg við fjöruborðið. Í samstarfi Björgvins við smiðinn Jóhann Hall Jónsson hanna þeir og smíða pípuorgel í kirkjur landsins ásamt því að við- halda þeim sem fyrir eru. Verkin, eða Ópusarnir, eru komin á fjórða tug og dreifð víða um land. Júlíus, sonur Björgvins, vinnur þétt við hlið föður síns og býr sig undir að taka við keflinu seinna meir og halda þannig þessari sér- stæðu þekkingu í landinu. Björg- vin var áður tónlistarkennari og spilar gjarnan á orgelin sem prýða sýningarsal verkstæðisins og það þarf ekki að suða lengi í honum til að fá hann til að snúa í lírukassa og syngja með þýskum slögurum sem spilast af gatarúllum. | rs Pípuorgelsmíði á Stokkseyri Björgvin Tómasson er eini orgelsmiðurinn á landinu, sonurinn tekur síðar við keflinu Júlíus, sonur Björgvins, vinnur þétt við hlið föður síns á verkstæðinu. Björgvin spilar gjarnan á lírukassa, milli þess sem hann smíðar orgel. Mynd | Rut Sjálfsástarátak eini kúrinn sem virkar Prinsessan í Mjódd, Kristín Dóra Ólafsdóttir, ákvað að elska sig sjálfa. Eftir mörg ár af niðurrifi reyndist það lykillinn að vellíðan, sjálfs- trausti og trú á sér sem listamanni. Breyting á hugarfari er stundum það eina sem þarf. „Ég losnaði við hömlur og þarf ekki vera best í heimi, maður þarf ekki að vera fullkominn.“ Mynd | Moa Gustafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.