Fréttatíminn - 22.04.2016, Síða 10
Myndir | Rut
Fjöldi verkamanna frá
Austur-Evrópu dvelur hér
við frumstæðar aðstæður til
að vinna í byggingabrans-
anum. Brotafl, sem sætir
rannsókn vegna gruns um
auðgunarbrot og mansal,
hefur starfað víða um
borgina, meðal annars við
framkvæmdir vegna nýrrar
fangelsisbyggingar á Hólms-
heiði.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Byggingaverktakar sem eru til
rannsóknar vegna auðgunarbrota
sem nema mörg hundruðum millj-
óna hafa áður komið við sögu lög-
reglunnar. Sigurjón Halldórsson í
Brotafli hefur verið dæmdur fyrir
skattalagabrot og komið við sögu í
lögreglumálum, þar á meðal man-
salsmáli á Suðurnesjum þar sem
starfsmenn hans fengu dóm.
Alls var gerð húsleit á fjórtán
stöðum og lagt hald á bókhalds-
gögn, tölvur og síma auk nokkurra
milljóna í reiðufé. Níu voru hand-
teknir, fimm settir í gæsluvarðhald.
Þeirra á meðal er Sigurjón Hall-
dórsson, eigandi Brotafls, og Þór-
katla Ragnarsdóttir, eiginkona hans
og fjármálastjóri fyrirtækisins, auk
bræðranna Róberts og Konráðs í
Kraftbindingum. Þeir fengu dóm
árið 2012 fyrir ræktun kannabiss
en annar þeirra er tengdasonur
Sigurjóns.
Þá hefur verið rætt við 20 til 30
manns vegna rannsóknarinnar.
Fimmti maðurinn á ekki brotafer-
il að baki, en hann tengist fólkinu
sem fyrr er nefnt og átti hundrað
kannabisplöntur í iðnaðarhúsnæði
í Höfðahverfinu.
Bull og kjaftæði
Sigurjón Halldórsson sagði í sam-
tali við Fréttatímann að hann ætlaði
að stefna lögreglunni fyrir gæslu-
varðhaldið og Fréttatímanum fyrir
að fjalla um málið. Þetta sé bull og
kjaftæði frá upphafi til enda. Það sé
verið að draga upp svarta mynd af
heiðarlegu fyrirtæki. Sannleikurinn
eigi eftir að koma í ljós.
Það var ríkisskattstjóri sem vakti
athygli lögreglunnar á fyrirtækinu
vegna gruns um brotastarfsemi
sem er vel þekkt í verktakabrans-
anum. Sigurður Jensson hjá emb-
ættinu segir að verktakafyrirtæki
séu þá að gera lág tilboð í stór verk
á grundvelli fyrirfram skipulagðra
vanskila á opinberum gjöldum.
Stundum er notuð keðja af undir-
verktökum, þar sem fjármunir fara
upp keðjuna en reikningarnir nið-
ur. Í sumum tilfellum er það efsta
fyrirtækið í keðjunni sem skipu-
leggur svindlið, það er þá að skila
einhverjum opinberum gjöldum
og kappkostar að líta vel út opin-
berlega.
Felur oft í sér mansal
Undirverktakarnir gefa út reikn-
inga sem engum virðisaukaskatti
er skilað af en eru engu að síður
nýttir sem innskattur í bókhaldi
verkkaupa. Ýmist er um að ræða
algjörlega tilbúna reikninga eða
svarta vinnu unna í skjóli vanskila
eða sambland af hvoru tveggja.
Ekki er haldið eftir staðgreiðslu,
tryggingagjaldi né nokkrum öðr-
um lögbundum launatengdum
gjöldum. Þegar síðan þrengist um
eru stofnuð ný félög og háttsemi
heldur áfram. Bent er á að svört
vinna af þessu tagi feli en oftar en
ekki í sér þvílík brot á réttindum
starfsmanna og aðstæðum þeirra
að það verður ekki skilgreint
öðru vísi en mansal. Félagsmála-
ráðherra hefur sagt að það komi
til greina að gera aðalverktakana
ábyrga fyrir undirverktökum til að
koma í veg fyrir slík brot.
Unnu við nýtt fangelsi
Fyrirtækið Brotafl hefur verið áber-
andi í framkvæmdum í borginni á
undanförnum árum og tekið að sér
mörg stór verk, til að mynda við
hótelbyggingu á Laugavegi 34 til
36, á Frakkastígsreit, svo eitthvað
sé talið. Það má þó segja að það sé
kaldhæðni örlaganna að fyrirtækið
sá um jarðvegsvinnu fyrir fyrirhug-
að fangelsi á Hólmsheiði.
Ríkisskattstjóri hefur rann-
Fréttaskýring Ólögleg starfsemi byggingaverktaka talin velta milljörðum króna
Ábatasöm glæpastarfsemi
í byggingabransanum
Brotafl er með aðstöðu að Breiðhellu 12 í Hafnarfirði en þar búa nokkrir verkamenn á efri hæðinni.
Sigurjón Halldórs-
son sagði í samtali
við Fréttatímann að
hann ætlaði að stefna
lögreglunni fyrir
gæsluvarðhaldið og
Fréttatímanum fyrir
að fjalla um málið.
Þetta sé bull og
kjaftæði frá upphafi
til enda. Það sé verið
að draga upp svarta
mynd af heiðarlegu
fyrirtæki. Sann-
leikurinn eigi eftir að
koma í ljós.
Brotafl hefur verið áberandi í framkvæmdum í miðbænum.Mynd | Rut
10 | fréttatíminn | Helgin 22.APRÍl–24. APRÍl 2016