Fréttatíminn - 22.04.2016, Blaðsíða 30
Ég heiti Héðinn, sonur Eddu
og Halldórs, á ættir að rekja
til Víkur og Hvolsvallar, og
svo auðvitað til prússnesku
ömmu Lottu. Ég er nýfluttur
til Beirút í Líbanon frá Kaup-
mannahöfn, þar sem ég hef
haft aðsetur í mörg ár og á
íbúð, Danmörk er sumsé líka
„heima“.
Er að vinna fyrir UNICEF, að því
að miðla upplýsingum um stöðu
sýrlenskra flóttamanna nú þegar
stríðið hefur staðið í fimm ár. Það
þýðir samskipti við fréttamenn,
viðtöl við Sýrlendinga, framleiðsla
á efni og þar fram eftir götunum.
Í dag þarf ég að fara í Bekaadal
inn í vinnuferð í átt að sýrlensku
landamærunum, þar sem flestir
flóttamannanna í landinu halda
til. Vinnan býður upp á töluverð
ferðalög, að mestu í Líbanon, en
líka í héraðinu. Í sumar kem ég
líklegast heim til Íslands í stuttan
tíma, meðal annars til að fara í
árlega göngu á Vestfjörðum með
hópnum sem ég hef gengið með í
mörg ár.
Stundum sakna ég fjölskyldu og
vina, lítilla frændsystkina, sumar
birtunnar, lyktarinnar af heita
vatninu, Sundhallarinnar, kanil
snúða, kaffis, lakkríss og að rekast
á vini á hverju götuhorni, eins og
maður gerir í Reykjavík.
En ég er óskaplega feginn, eftir
að hafa búið í nærri fimmtán ár
fjarri Íslandi, meira og minna, að
þurfa ekki að fylgjast með argaþrasi
og pólitískri menningu sem aldrei
virðist ætla að breytast. Ég sakna
heldur ekki vetrarmyrkursins.
Mér líkar vel „þetta reddast“ í
hugarfari Íslendinga, mér hefur
reynst það vel í vinnu í útlöndum
og reyni sjálfur að halda fast í
það, þó svo eitthvað hafi það nú
minnkað. Ég væri reyndar til í að
flytja Ísland töluvert sunnar í Atl
antshafinu, til að stytta flugtímann
og hækka meðalhitann. Og svo
mundi ég vilja danska hjólamenn
ingu á Íslandi.
Ég held að Íslendingar geti
klárlega lært af því að opna landið
meira fyrir fólki af ólíkum upp
runa, íslenskt samfélag er dálítið
einsleitt, þó það sé að breytast. Og
kannski líka að láta rjátlast af sér
feimni og gefa sig á tal við fólk.
Líbanon er þriðja landið í Mið
austurlöndum sem ég bý í, mér
líkar gríðarlega vel, og Líbanon er
svo margþætt land að það kæmi
örugglega mörgum á óvart hversu
auðvelt það er að aðlagast. Ég vinn
mest með Líbönum, en líka allra
þjóða kvikindum.
Líbanskur matur er hrikalega
góður og líbanskt eldhús er þekkt
um allan heim, hér geturðu fengið
allt. Mikið grænmeti, hummus,
kjöt og sætt kex og kökur. Og svo
auðvitað arabíska kaffið.
Það sem ég hef lært um Ísland
við að búa erlendis, er að smæð
samfélagsins heima hefur bæði
kosti og galla, tækifærin eru mörg
en olnbogarýmið er kannski
minna, og það er styttra í þakið.
Mér finnst frábært að koma heim,
það er pínu eins og að vera í loft
bólu þar sem allir þekkja alla. Mér
finnst líka gott hvað Íslendingar
eru lítið uppteknir af titlum og
félagslegri stöðu.
Ég heiti Dóra Sif Tynes. Ég
er reykvískur lögfræðingur
með norrænu ívafi undir
léttum ítölskum áhrifum. Ég
er alin upp í Osló, Reykjavík
og Gautaborg og stundaði
framhaldsnám á Ítalíu. Þá
hef ég átt vetursetu í Frakk-
landi og starfaði einnig hér
í Brussel á árunum 2000 til
2004. Eftir níu ár á Íslandi
flutti ég svo aftur hingað til
Brussel 2013.
Bý í hjarta Evrópu, Brusselborg.
Þrátt fyrir fullyrðingar Trump hins
bandaríska er hér gott að búa. Brus
sel er hæfilega stór höfuðborg með
mjög alþjóðlegu ívafi þar sem margir
menningarstraumar mætast. Hér
er öflugt lista og menningarlíf og
mikil fjölbreytni í matarmenningu.
Vegna stórs hlutfalls útlendinga í
borginni eru hér veitingastaðir með
matarhefð frá öllum heimshornum,
að ekki sé minnst á súkkulaði
gerð heimamanna eða tvísteiktar
belgískar kartöflur, frites eða fritjes,
sem hér í landi má ekki kenna við
Frakkland. Í borginni mætast einn
ig miklar andstæður enda eru hér
bæði hugguleg miðevrópsk hverfi í
Art Deco stíl þar sem þorri íbúa eru
vellaunaðir eurokratar og hverfi í
niðurníðslu þar sem félagsleg vanda
mál eru yfirgnæfandi, líkt og hið
alræmda Molenbeek.
Ég vinn við rekstur EES samn
ingsins sem forstöðumaður lög
fræðisviðs hjá EFTA skrifstofunni.
Í frístundum syng ég í íslenska ný
lendukórnum hér í Brussel og nýt
þess að geta ferðast nokkuð reglu
lega.
Er á leiðinni til Sviss í skíðaferð,
þarnæst í vinnuferð til Lúxemborgar
og svo liggur leiðin ávallt til fjöl
skyldunnar í Rómarborg með reglu
legu millibili. Í sumar ætla ég svo að
rækta nýfundinn knattspyrnuáhuga
í Frakklandi.
Sakna ég einhvers?
Stundum sakna ég ómótstæðilega
reddingargens Íslendinga og góðrar
og hnökralausrar þjónustu. Þar
eiga Belgarnir nokkuð í land. Síðan
eru það að sjálfsögðu samvistir við
fjölskyldu og vini og nálægðin við
náttúruna. Verður kona svo ekki að
minnast á sundlaugarnar?
Ég er fegin að vera laus við fjöru
tíu og eitthvað storma á vetri.
Einnig er ágætt á stundum að vera
laus við hið yfirgnæfandi argaþras
sem skellur á íslensku samfélagi með
reglulegu millibili, líkt og vetrar
stormar. Íslenski veturinn gleymist
líka furðufljótt þegar maður býr
erlendis.
Íslenska umræðuhefðin með til
heyrandi upphrópunum mætti alveg
taka varanlegum breytingum. Síðan
blessað matarverðið og fjölbreyttara
úrval í kjörbúðinni. Stöðugri gjald
miðill væri einnig til bóta. Það er
þó auðveldara að slökkva á íslenska
dægurþrasinu hér.
Hefur Belgía breytt mér?
Að vera heldur afslappaðari þegar
ekki verður átt við aðstæður eða
afstöðu manna. Ánægjan sem
felst í því að taka sér góðan tíma á
matarmarkaðinum í vikuinnkaupin
með tilheyrandi spjalli við sölu
fólk á hverjum bás. Svo er ég orðin
meistari í að flokka rusl af hárfínni
nákvæmni.
Orðin meistari í að flokka
rusl af hárfínni nákvæmni
Póstkort
Brussel
Ég bið að heilsa
Héðinn Halldórs í Líbanon
Héðinn Halldórsson.
Frá Beirút í Líbanon.
Dóra Sif Tynes.
30 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 22.APRÍL–24. APRÍL 2016
SVÍNSLEGA
GOTT
Í HÁDEGINU, Á KVÖLDIN
OG BARA ALLAN DAGINN
GASTROPUB
SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is
Kokteilar, bjór á
krana
og léttvín í glös
um – á hálfvirð
i!
HAPPY HOU
R
ALLA DAGA
15–18
DJÚSÍ BORGARI
úr sérvaldri rumbsteik og „short ribs“, í bjór-brioche brauði
með rauðlaukssultu, Búra, truu-mayo og vöufrönskum ...
... SVÍNVIRKAR
HREINN SÚKKULAÐIUNAÐUR
Ylvolg djöflakaka með mjúku kremi, vanilluís og rjóma ...
... DJÖFULLEGA GÓÐ!