Fréttatíminn - 22.04.2016, Qupperneq 58
58 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 22.APRÍL–24. APRÍL 2016
Íslenskar samsæriskenningar á flugi
Ólafur plottaði Magga í Texasborg-
urum í framboð, Vatnajökull verður
látinn gjósa og jörðin er hol, segja
íslenskir „samsæringar“
Í Facebook-hópnum íslenskar
samsæriskenningar eru um
800 meðlimir. Þar eru
ræddar hinar ýmsu sam-
særiskenningar um frétta-
mál líðandi stundar, kenn-
ingar vísindamanna og
eðlufólkið. Í hópnum er virð-
ing borin fyrir samsæriskenning-
um meðlima, ekkert er talið of frá-
leitt eða ómögulegt. Fréttatíminn
tók saman nokkrar samsæriskenn-
ingar sem hafa hlotið hljómgrunn
innan hópsins.
Maggi Texas er plott Óla
Framboð Magnúsar Inga Magnús-
sonar, sem er betur þekktur sem
Maggi á Texasborgurum, var til-
kynnt degi áður en Ólafur Ragnar
Grímsson tilkynnti að hann hygðist
bjóða sig fram aftur. Kenningin er
sú að „botninum hafi verið náð í
kjánahrolli á frambjóðendum“
þegar Maggi bauð sig fram.
Ólafur og öfl hans beittu sér
fyrir í framboði Texas Magga
svo Ólafur yrði hvíti riddari
þjóðarinnar.
Jörðin er flöt
Eitt helst hitamál Facebook
hópsins er hvort jörðin
sé flöt. Helstu talsmenn
þess benda á Youtube
þar sem ógrynni mynd-
banda má finna undir leit-
arstrengnum „flat earth“.
„Samsæringar“ velta fyrir sér
spurningunum um hvers vegna ekki
séu til myndbönd af jörðinni snúast
í geimnum og hvers vegna speglun
vatns brotni. Í skoðanakönnun kom
í ljós að 14 meðlimir trúa því að
jörðin sé flöt, 29 að hún sé hnöttótt
og 6 að hún sé hol að innan.
Vatnajökull látinn gjósa
Meðlimur hópsins birti röð mynda
af veður- og jarðskjálftakortum
og segir Vatnajökul verða
látinn gjósa. Einnig birti
hann ljósmynd af af-
girtu setri sem má
ætla að sé stjórn-
stöð gossins.
Meðlimir taka
undir kenninguna
og segja sennilegt og að „þeir
séu að ýta einhverju af stað“
og Vatnajökull verði látinn gjósa.
Hverjir „þeir“ eru kemur ekki fram.
Innflytjandinn
Yaelli Brewer: Leið eins og
alheimurinn væri að vinka mér
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
M ig dreymdi draum um Ísland sem eiginlega varð til þess að ég flutti hingað. Ég hafði aldrei
komið hingað en hafði heyrt að
landslagið hérna væri stórkostlegt,
hér væru norðurljós, hvalir, eld-
fjöll og hoppandi höfrungar,“ segir
Yaelli Brewer frá Ísrael sem hefur
búið á Íslandi í tæp þrjú ár.
„Draumurinn var reyndar
ekkert sérstaklega spennandi.
Reykjavík leit út eins og einsleitt
úthverfi en ég vissi samt að ég
væri í Reykjavík. Mér fannst samt
sérstakt þegar ég vaknaði að mig
hefði dreymt Ísland svo sterkt,“
segir Yaelli sem bjó á þessum tíma
í London.
„Stuttu seinna var ég stödd
í verslun í Tel Aviv þar sem ég
heyrði lag í útvarpinu um konu
sem var að hlaupast á brott, til Ís-
lands. Tuttugu mínútum seinna
var ég stödd í annari verslun þar
sem ég heyri ísraelskt lag sem
heitir Iceland. Þetta var allt mjög
skrítið og mér leið dálítið eins og
alheimurinn væri að vinka mér.
Stuttu seinna missti ég íbúðina
mína í London og ákvað að kaupa
flugmiða til Íslands. Það var vor
svo ég ákvað að taka bara sénsinn
og sjá hvað myndi gerast.“
„Þó ég hefði engin plön þá gekk
allt upp. Ég eignaðist íslenskan vin
hérna fyrsta daginn og við ákváð-
um að fara í Reykjadal að ganga.
Hann fór svo heim en ég stóð með
bakpokann minn við hringtorgið í
Hveragerði þegar Kanadamaður á
stórum jeppa bauð mér far. Hann
var að fara að sækja ítalska kær-
ustu sína og þýska vinkonu hennar
og þau buðu mér með sér í viku-
ferð um hálendið,“ segir Yaelli sem
hélt áfram að ferðast um Ísland og
kynnast allskyns fólki á leiðinni.
„Þegar ég kom aftur til Reykja-
víkur um haustið langaði mig ekk-
ert til London, heldur til að upplifa
veturinn hérna og sjá norður-
ljósin. Ég fékk vinnu í ferðabrans-
anum og fór út öll kvöld að fylgjast
með norðurljósunum. Þegar ég
fór aftur til London sumarið eftir
leið mér eins og Ísland væri frekar
heimili mitt, svo ég kom aftur,“
segir Yaelli sem vinnur í dag á far-
fuglaheimili auk þess að skrifa
ferðabók um Ísland á hebresku.
„Ég sakna þess helst að geta ekki
synt í sjónum á hverjum degi og að
geta ekki tínt appelsínur, sítrónur
og avocado beint af trjánum,“ seg-
ir Yaelli aðspurð hvers hún saknar
helst frá Ísrael. „Það besta við Ís-
land er fjallasýnin, hversu heitt er
í húsunum og hvað það er auðvelt
og öruggt að ferðast hér.“
„Samfélag Ísraela og
gyðinga á Íslandi er
mjög lítið, kannski
rúmlega tuttugu
manns samtals. Ég
þekki þá flest alla
og í þessari viku er
Passover, sem er ein
helsta hátíð gyðinga,
og þá koma tveir
rabbínar frá New
York sem skipu-
leggja hátíð fyrir
okkur.“
Mynd | Hari
Prentvörur kynna með stolti
Í fyrsta sinn á Íslandi
Hágæða samheitablekhylki fyrir prentara
hágæða og margvottað samheitablek
fyrir Canon prentara.
Þú borgar einfaldlega minna fyrir sömu
gæði.
Verð frá:
1390 KR
PGI-570XL & CLI-571XL
Ábyrgðaryfirlýsing: Samkvæmt ábyrgðarskilmálum prentaraframleiðenda og alþjóðalögum
fellur ábyrgð prentara ekki úr gildi við notkun endurnýttra eða samhæfðra prenthylkja nema
rekja megi bilun til notkunar á þeim hylkjum. Bili tæki eða eyðileggjast sem rekja má til
notkunar samheita prenthylkja frá Prentvörum munum við bæta þau tæki, séu þau enn í
ábyrgð.
Prentvörur Skútuvogi 11, sala@prentvorur.is, prentvorur.is, s. 553-4000
Samtökin Stelpur rokka! auglýsa eftir rafmagnshljóðfærum fyrir rokkbúðir í Tógó
fyrir 13 til 20 ára stelpur. Rokkbúðirnar verða haldnar í ágúst á vegum tógóskra
kvenna. Hljóðfærarsöfnunin fer fram 15. apríl til 7. maí í Tónastöðinni, Skipholti
50. Samtökin hafa staðið fyrir sumarbúðum þar sem ungum stelpum er kennd
tónlistar sköpun en færa sig nú til Tógó.
Stelpur rokka! til Tógó