SÍBS blaðið - 01.09.2000, Síða 10
jurtaríkinu. Má þar nefna avocado, ananas,
tómata, kiwi, kastaníuhnetur, banana,
melónur og fleiri ávexti. Af þeirri ástæöu er
ekki sjaldgæft að fólk meö latexofnæmi finni
einnig fyrir ofnæmiseinkennum við neyslu
þessara fæðutegunda, en að jafnaði eru þau
einkenni vægari en af latex. En ekki koma
sömu latexsameindirnar fyrir í öllum þessum
fæðutegundum og auk þess er það sjaldgæft
að sami einstaklingurinn myndi ofnæmi fyrir
öllum latexsameindunum sem þekktar eru að
því að valda ofnæmi. Þess vegna fær einn
einstaklingur einkenni af að borða banana og
kiwi og annar af að borða avocado o. s. frv.
Bráðaofnæmi fyrir latex er mun alvarlegri
sjúkdómur en snertiofnæmið sem minnst var
á í sambandi viö gúmmíhanska, og þaö getur
raunar verið lífshættulegt. A þeim 20 árum
sem liðin eru síðan latexofnæminu var lýst
öðru sinni virðist tíðni þess hafa aukist með
ótrúlegum hraða. Fyrir því kunna að vera
nokkrar orsakir. Notkun gúmmís hefur farið
ört vaxandi, sérstaklega meðai heilbrigðis-
stétta. Þær eru hvattar til að nota gúmmí-
hanska af ótta við lifrarbólgur og eyðni. Sem
dæmi um það má nefna, að í Bandaríkjunum
voru notaðir 1,4 billjón hanskar 1986 en 8
billjón hanskar árið 1993. Af sömu ástæðu er
lögð aukin áhersla á notkun smokksins við
kynmök. Vegna aukinnar eftirspurnar eftir
gúmmíi er hugsanlegt að breyting hafi orðið
á framleiðsluferli þess. Það gæti þýtt að
meira sé af ofnæmissameindum í
framleiðsluvörum úr gúmmíi en áður. Meðal
efnameiri þjóða hefur orðið gífurleg aukning
á tíðni bráðaofnæmis á síðustu áratugum sem
enn þá þarfnast skýringar. Aukin þekking og
betri rannsóknaraðferðir hafa leitt til
auðveldari greiningar á latexofnæminu. Allt
leggst þetta á sömu sveifina að magna þann
vanda sem latexofnæmið er.
Akveðnum hópum í samfélaginu hættir
fremur til að fá latexofnæmi en öðrum.
Einkum eru þrír hópar undir smásjánni. I
fyrsta hópnum eru sjúklingar, sem á ungum
aldri þurfa oft að gangast undir aðgerðir eða
vera með umbúðir sem að einhverju eða
mestu leyti innihalda latex. Þetta eru sérstak-
lega börn sem eru fædd með klofin hrygg
(spina bifida) eöa galla á þvagfærum.
Latexofnæmi hefur fundist hjá 28-67%
þessara barna samkvæmt nokkrum mismun-
andi rannsóknum. í öðrum hópnum eru
heilbrigðisstarfsmenn. 1 þeim hópi er
starfsfólk á skurðstofum í mestri hættu.
Orsakir þess eru öðru fremur mikil notkun
latexhanska. Margir fá exem af hönskunum.
Það, og mikill handþvottur, minnkar
mótstöðu húðarinnar svo að ofnæmisvakar
eiga auðveldari leið inn í ónæmiskerfið. I
sumum rannsóknum hafa allt að 10% þessara
starfsmanna haft latexofnæmi. í þriðja
hópnum eru þeir sem vinna viö framleiðslu á
vörum úr latex. Hér á landi mætti nefna
starfsfólk á dekkjaverkstæðum.
Líkurnar á aö fá latexofnæmi eru mestar ef
fólk hefur bráðaofnæmi af öðrum toga og er í
einhverjum þeirra áhættuhópa sem nefndir
hafa verið. Þeim er sérstaklega hætt sem eru
með barnaexem.
Einkenni latexofnæmis eru háð því hversu
sterkt ofnæmið er og frá hvaða líffæri
einkennin eru. Algengust eru einkenni frá
húð. Það er kláði, roði og bjúgur, sem koma
við beina snertingu við hanska, plástra,
gúmmiblöðrur, smokka o.s. frv. Hnerrar,
nefrennsli, nefstíflur, eða kláði, roði og
bjúgur í augum eru einnig algeng einkenni.
Sjaldgæfari en þeim mun alvarlegri eru
einkenni frá munni, endaþarmi, leggöngum,
sem og astmi, ofsakláði, ofsabjúgur, uppköst,
niðurgangur og ofnæmislost.
Gúmmíhanskar eru húðaöir innan með
kornsterkju til að auðveldara sé að komast í
þá. Kornsterkjan dregur í sig ofnæmis-
sameindir úr iatex. Oft orsakast einkenni frá
nefi, augum og lungum af latexögnum, sem
berast með kornsterkju úr hönskunum og
dreifast út í loftið þegar farið er í þá.
Ofnæmisviðbrögð af latex teljast með
alvarlegustu ofnæmisviöbrögðum. Hvað það
varðar er það í flokki meö vissu lyijaofnæmi,
skordýraofnæmi og sumu fæðuofnæmi. Það
hefur sérstöðu vegna mikillar notkunar á
gúmmíi í tæknivæddri heilbrigðisþjónustunni.
Þegar slys ber aö höndum getur ofnæmislost
af duldu latexofnæmi bæst ofan á aðrar
hættur sem sjúklingnum eru búnar. Líkurnar
á hættulegum ofnæmisviðbrögðum eru mestar
við aðgerðir þegar latex snertir slímhúðir i
kviðarholi, brjóstholi, munni, kynfærum,
endaþarmi og þvagfærum.
Latexofnæmi á íslandi
Af þeim sem greinst hafa með latexofnæmi á
Islandi eru 80% konur. Um 70% þessara