SÍBS blaðið - 01.09.2000, Blaðsíða 22
Ef notaðir eru 2 1/mín af súrefni endist 31 lítra
tankur með fljótandi súrefni í 213 klukku-
stundir eða tæpa 11 daga miðað við 20
klukkustunda notkun á dag. Þetta samsvarar
27000 lítrum af loftkenndu súrefni. 31 lítra
tankur vegur tæp 55 kg. Hægt er að tengja allt
að 15 m slöngur á tankana. Búnaðurinn er
algjörlega hljóðlaus og óháður rafmagni.
Töskurnar eru notaðar til að öðlast meira
frjálsræði og hreyfanleika innanhúss og þegar
farið er út af heimilunum. A mjög einfaldan
hátt er fyllt á töskurnar beint af tankinum. Við
áfyllingar verður að hafa í huga hversu kaldur
vökvinn er. Töskur eru fáanlegar í tveimur
Súrefnistankur og taska.
stærðum annars vegar 0,6 lítra og hins vegar
1,2 lítra. Við 2 1/min endist sú minni í rúmar 4
klst. og sú stærri í rúmar 8 klst. Ef notað er
súrefni beint af tankinum má setja á hann
sparara og eins á töskurnar. Töskur með spar-
ara endast tvöfalt lengur en án þeirra. Þegar
ekki er tekið út af tankinum verður nokkur
uppgufun þ.e. vökvatap u.þ.b. 2 °/o á dag.
Uppgufun í töskunum er mun meiri en á móti
kemur að þær eru tæmdar á mun styttri tíma.
Eins og áður segir hefur notkun fljótandi
súrefnis í för með sér rnesta hreyfimöguleika
fyrir notendur, en það er jafnframt dýrasti
kosturinn og stendur ekki öllum til boða. Þar
er einna helst afgerandi flutningsþátturinn,
þ.e. Qarlægð á milli áfyllingastaða og
notkunarstaða. Því er algengt að notendum í
strjálbýli standi þessi valkostur ekki til boða.
Létthylki
Hefðbundin þrýstihylki eru gerð úr stáli. Á
síðustu árum hafa komið fram á markaðnum
þrýstihylki úr mun léttari efnum, annars vegar
úr áli og hins vegar úr koltreijaefni. Álhylkin
eru léttari en stálhylki og
koltreQahylkin eru léttari
en álhylkin. Þyngd þrýsti-
hylkjanna sjálfra er afger-
andi íyrir heildarþyngdina
þar sem innihald stálhylkja
er ekki nema um 20 °/o af
heildarþyngdinni. Enn-
fremur eru nú nýlega
komin á markaðinn létt-
hylki með lokum sem hafa
innbyggðan þrýstijafnara
en það einfaldar til muna
alla meðhöndlun við hylk-
in. Þrýstijafnararnir eru
stilltir á fastan þrýsting
3.5 bör. Við þennan búnað
má svo tengja flæðistilla
annað hvort með
stillanlegu eða föstu flæði.
Létthylkin eru framleidd í
stærðunum 1.1 lítri og 2.0
lítrar. Þessi hylki hafa þó enn ekki verið tekin
í notkun á Islandi.
Súref nisspararar
Við allan súrefnisbirgðabúnaö má bæta
súrefnisspörurum. Algeng gerð er þannig
uppbyggð að hún opnar íyrir súrefnisflæði við
innöndun en lokar fyrir flæðið þegar andað er
frá sér. Algengt er að reiknað sé með að þetta
spari allt aö 50-60 °/o súrefnisins.
Súrefnissparari
Þegar andað er að sér súrefni með
svokölluðum súrefnisgleraugum þá er stöðugt
streymi fram í gleraugun og töluvert súrefni
fer forgörðum og nýtist ekki til innöndunar.
Sökum þessa hafa verið hannaðir svokallaðir
súrefnisspararar. Þeim er ætlað að spara
súrefnisbirgðir þ.a. aðeins sé af þeim tekið
það sem nýtist til innöndunar. Súrefnis-
spararar eru aðallega af þremur gerðum.
Algengasta gerðin (demand flow devices)
byggir á því að hún nemur innöndun þ.e.
Létthylki