Fréttatíminn - 14.05.2016, Qupperneq 18
18 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 14. MAÍ–16. MAÍ 2016
Útfararstjóri er það kallað þegar menn eru fengnir til að fara fyrir skuldug-um félögum sem á að
setja í þrot. Starfsemin heldur svo
áfram en með nýja kennitölu og
allir eru glaðir, nema skatturinn
og aðrir sem fyrirtækið skuldar
peninga. Frambjóðandi til for-
manns Samfylkingarinnar lýsti
þeirri framtíðarsýn að leggja niður
flokkinn og stofna nýjan, þar sem
hann nyti ekki lengur trausts.
En hvað var maðurinn að segja?
Er Samfylkingin gjaldþrota, af því
hún nýtur ekki lengur trausts eða
eru hugmyndir hennar dauðar? Ef
kjósendur hafa yfirgefið Samfylk-
ingu, eru þá rústir hennar rétti
staðurinn til að stofna nýjan flokk?
Er líklegt að kjósendurnir komi til
baka þegar búið er að taka gröfina?
Hvað með að stofna nýjan flokk
til höfuðs Samfylkingunni? Það
er búið, Björt framtíð er til, hún
mælist með þrjú prósent. En að
fara lengra til vinstri og stofna ann-
an flokk, nei, þar eru vinstri græn,
þau eru með 20 prósenta fylgi.
Það virðist í fljótu bragði sem til-
laga Magnúsar Orra gangi út á að
stofna nýjan flokk á rústum Sam-
fylkingarinnar. Hann á að vera
svolítið vinstri og grænn, en heita
eitthvað allt annað. Og hann á að
halda á lofti nýrri stjórnarskrá eins
og Píratar sem mælast með rúm
30 prósent. Og þar ætlar Samfylk-
ingin undir nýju nafni og kennitölu
að bjóða gömlu Vinstri grænum,
Pírötum og Bjartri framtíð, að eiga
heima undir handarjaðri Samfylk-
ingarinnar sem heitir það ekki
lengur, heldur eitthvað nýrra og
hressara.
Mér finnst þetta góð en djörf hug-
mynd hjá manni sem mælist með
13 prósenta fylgi til formanns í 7
prósenta flokki. En ég er ekki endi-
lega viss um að kjósendabankinn
sé til í að fjármagna þetta ævin-
týri að fullu. Ég held að það gerist
ekkert nema flokkarnir sem nú eru
stærstir taki frumkvæðið og bjóði
hinum með sér.
Samfylkingin á að vera á fullu í
málefnavinnu og frambjóðendur
ættu að takast á um áherslur sín-
ar í stjórnmálum, reyna að heilla
kjósendur og þjappa þeim saman
um raunveruleg mál. Af nógu er að
taka. Hún á ekki að vera að máta
ný föt fyrir framan kjósendur og
prófa nýjar hárkollur eins og hún
sé að falbjóða sig korteri áður en
hún fellur í kosningum. Hin op-
inbera umræða á ekki að snúast
um hvernig hún ætlar að selja sig,
heldur hvað hún ætlar að selja.
Stjórnmálamenn þurfa að tala til
hjartans, hrífa fólk með sér, til
að hrinda af stað raunveruleg-
um breytingum. Þeir eiga ekki
að koma fyrir eins og millistjórn-
endur í snyrtivörufyrirtæki sem
dreymir um að sameinast helsta
keppinautnum og slá í gegn með
nýjum hárlit.
Það þarf engar nýjar kennitölur
til að skuldbinda sig til samstarfs
eftir kosningar og það ætti stjórn-
arandstaðan vissulega að íhuga að
gera. Hún ætti líka að gera drög að
sáttmála slíks samstarfs svo kjós-
endur viti að hverju þeir ganga.
Slík vinna gæti orðið undanfari
löngu tímabærrar uppstokkunar í
íslenskum stjórnmálum.
Samfylkingin er of ung til að vera
svona útbrunnin. Ef þessi svokall-
aði jafnaðarmannaflokkur ætlar
að verða sjálfdauður úr leiðindum
á sama tíma og það eru ragnarök
í þjóðfélaginu vegna uppljóstrana
um skattaskjól hinna ríku, óheyri-
lega spillingu, rányrkju og mis-
skiptingu auðs, er kannski bara
ráð að leggja sig niður og gleymast.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
UM
SAMFYLKINGAR
ÓVISSA TÍMA
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir.
Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri:
Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti.
hari
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
ALICANTE f rá
12.999 kr.*
BARCELONA f rá
12.999 kr.*
NICE f rá
9.999 kr.*
EDINBORG f rá
9.999 kr.*
VERTU
WOW Í
SUMAR
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
maí - okt .
jún í - sept .
jú l í - okt .
jú l í - okt .
LYON f rá
9.999 kr.*
jún í - sept .