Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 14.05.2016, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 14.05.2016, Blaðsíða 28
Síðasta verk Sólveigar Anspach, The Together Project, verður frumsýnt í Cannes í næstu viku. Sól- veig lést stuttu eftir að hafa séð fyrstu útgáfu myndar- innar í ágúst í fyrra. Skúli Malmquist framleiðandi myndarinnar segir Cannes vera góðan endi á skrítnu og erfiðu ferðalagi. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is „Það var eftirvæntingin við að gera þessa mynd sem hélt Sólveigu gang- andi í gegnum hennar erfiðu veik- indi,“ segir Skúli Malmquist fram- leiðandi The Together Project, kvikmyndar Sólveigar heitinnar Anspach, sem hefur verið valin til þátttöku í Director‘s Fortnight hluta Cannes kvikmyndahátíðarinnar. Þetta er í þriðja sinn sem kvik- mynd eftir Sólveigu er valin til þátttöku í Cannes og í þriðja sinn sem leikin kvikmynd í fullir lengd eftir íslenskan leikstjóra er valin til þátttöku í Director‘s Fortnight hluta Cannes hátíðarinnar. Tökur á myndinni fóru fram á Íslandi og í Frakklandi árin 2014 og 2015 en á meðan á þeim stóð háði Sólveig bar- áttu við illvígt krabbamein. Hún lést í ágúst á síðasta ári, 54 ára gömul. „Sama dag og Sólveig sá fyrsta klippið af myndinni fór hún á spít- ala og kom svo aldrei aftur heim,“ segir Skúli sem þakkar öllu hennar nána samstarfsfólki hversu vel eftir- vinnslan gekk. „Auðvitað var erfitt að klára þetta án hennar. Allir vissu hvert förinni væri heitið en enginn vissi nákvæm- lega hvernig ætti að komast þangað. Það tók enginn einn við stjórninni heldur var lýðræði í gangi og flestir þekktu Sólveigu vel og þess vegna gekk þetta vel. Þetta voru mörg lítil skref og það er góð tilfinning að fara með myndina á Cannes,“ segir Skúli en myndin er ein af átján sem var valin úr 1900 myndum til að keppa í Director‘s Fortnight hluta Cann- es. „Þetta er góður endir á skrítnu og erfiðu ferðalagi. Síðasta mynd Sólveigar í fullri lengd, Lulu femme nue, var ein mest sótta myndin í frönskum bíóhúsum af sjálfstæð- um kvikmyndum það árið svo það er mikil eftirvænting eftir þessari nýju mynd. Síðast í fyrradag fékk hún risadreifingarsamning í Frakk- landi og mun opna í 150-200 bíóhús- um í Frakklandi 29. júní.“ 28 | FRÉTTATÍMINN | HELGIN 14. MAÍ–16. MAÍ 2016 Erfitt að klára án Sólveigar Ástfangnir erlendir karlmenn spila borðtennis Pingpongklúbburinn samanstendur af karl- mönnum sem allir eiga það sameiginlegt að hafa flutt til Íslands ástarinnar vegna og eiga íslenskar konur eða konur sem komið hafa hingað til að vinna. Annað sem sameinar þá er áhugi á borðtennisíþróttinni. Valur Gunnarsson valurgunnars@frettatiminn.is Svanhvít Tryggvadóttir hefur gert heimildarmynd um Pingpongklúbbinn sem frumsýnd verður á Skjald- borgarhátíðinni á Patreksfirði um helgina, en hún er nú haldin í 10. sinn. Í hópnum eru sex karlmenn hver frá sínu landi, Bandaríkjunum, Frakklandi, Hondúras, Suður-Afríku, Bretlandi og Argentínu. „Bretinn Ben Moody stofnaði þennan klúbb sem sameinast vikulega í TBR og ræðir hvað það er að vera erlendur karlmaður á Íslandi,“ segir Svanhvít sem er í námi í hagnýtri menningarmiðlun. „Þeir upp- lifa Ísland á mismunandi hátt, sem dæmi má nefna að Bandaríkjamanninum Steve Meyer finnst hér gott aðgengi að menntun og heilbrigðiskerfi miðað við það sem hann er vanur, en að það sé viss einangrun að búa á Íslandi. En borðtennisíþróttin er líka tek- in alvarlega og á dagskránni er að búa til búninga. Landslið Íslands er að æfa á sama tíma, en klúbbnum finnst þeir enn ekki nógu góðir til að takast á við þá. Fyrir mér er pingpong líka táknrænt fyrir að strák- arnir tilheyra tveim löndum.“ Svanfríður tilheyrði sjálf álíka kvennaklúbbi í Kata- lóníu, þangað sem hún flutti ásamt eiginmanni sínum Georg Hólm bassaleikara í Sigurrós. Næsta heimildar- mynd hennar fjallar einmitt um rótaralið Sigurrósar. „Ætla að klára hana þegar Sigurrós fer að túra í sumar. Þar er erfitt að komast inn í þetta samfélag en ég hef einstakan aðgang,“ segir hún. The Together Project fjallar um Samir, sem er staðráðinn í því að bæta ráð sitt gagnvart sundkennara sínum Agathe, sem hann er yfir sig ástfanginn af. Hann eltir hana alla leið til Íslands en það kemur babb í bátinn þegar hann verð- ur fyrir rafstraumi og missir minnið. Sólveig Anspach leikstýrði og skrifaði handritið ásamt Jean-Luc Gaget. Skúli Malmquist framleiddi myndina fyrir Zik Zak kvikmyndir ásamt Patrick So- belman sem framleiddi fyrir Ex Nihilo. Í stórum hlutverkum í myndinni eru Didda Jónsdóttir, Florence Loiret Caille, Samir Guesmi, Frosti Jón Runólfsson, Ingvar E. Sigurðsson og Kristbjörg Kjeld. PingPong íþróttin þykir táknræn fyrir þá sem eru staddir á milli tveggja heima. Sama dag og Sólveig sá fyrsta klippið af myndinni fór hún á spítala og kom aldrei aftur heim. Skjaldborgarhátíðin haldin í 10. sinn Síðasta mynd Sólveigar Anspach til Cannes Smáratorgi, Kópavogi Opið virka daga 11.00-18.00 Laugardaga 11.00-18.00 Sunnudaga 12.00-18.00 Vínlandsleið, Grafarholti Opið virka daga 11.00-18.00 Laugardaga 11.00-16.00 Sunnudaga 13.00-17.00 Markaður Smáratorgi Outlet Grafarvogi 60% 50% 50% 40% 40% LÁGMARKS- AFLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM NÚ 40%60% Myndlistaskólinn í Reykjavík Fjölbreytt og spennandi nám í myndlist og hönnun á framhalds- og háskólastigi Sjónlistadeild - listnámsbraut: Tveggja ára nám til stúdentsprófs Eins árs listnám ætlað fólki með stúdentspróf Tveggja ára diplómanám fyrir fólk með stúdentspróf af listnámsbraut: Keramik – hönnunarnám með áherslu á fjölbreytta efnisþekkingu og verklag Teikning – áhersla á fjölbreytta teiknitækni, myndskreytingar, myndræna frásögn og teiknimyndagerð Textíll – hönnunarnám með ríka áherslu á efnisþekkingu og verklag Málaralist - ný námsbraut, fjölbreytt tækni og hugmyndavinna Umsóknarfrestur er til 23. maí www.myndlistaskolinn.is/umsokn Hringbraut 121, 101 Reykjavik • sími: 5511990 farðu á facebook síðuna okkar og taktu þátt! VIÐ GEFUM HEPPNUM VINI MCCULLOCH 4X4 SLÁTTUVÉL! AÐ ANDVIRÐI 119.995KR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.