Fréttatíminn - 14.05.2016, Side 42
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Katla Hreiðarsdóttir lauk námi í
innanhúshönnun frá frá Istituto
Europeo di Design í Barcelona
rétt fyrir hrun. Hún taldi það
praktískra heldur en að fara í
nám í fatahönnun, sem hún hafði
einnig mikinn áhuga á. En svo
gripu örlögin í taumana. Það var
nefnilega þetta blessaða hrun sem
varð til þess að hún hefur aldrei
starfað sem innanhúshönnuður.
„Þegar Guð átti að blessa Ís-
land var ekki séns að fá vinnu við
innanhúshönnun. Ég ákvað því
að reyna fyrir mér í fatahönnun.
Þetta var gamall draumur, þannig
mér fannst það alls ekki verra,“
segir Katla sem hafði áður útskrif-
ast af textílbraut Fjölbrautaskóla
Garðabæjar, þannig hún var ekki
alveg ókunn fatahönnun þegar
hún hófst fyrst handa við nýtt ver-
kefni sem varð að Volcano Design.
„Það er auðvitað ákveðin írónía að
ég hafi aldrei starfað sem innan-
húshönnuður heldur starfað sem
Praktísk Katla hannar út frá því hana sjálfa vantar eða langar í. Hún segist svo bara vera
heppin að fleiri hafi sama smekk. Flíkurnar reynir hún að hafa tímalausar og klæðilegar.
Mynd | Rut
Katla ákvað að gerast
fatahönnuður eftir að
hún áttaði sig á því
að það var ekkert að
gera fyrir hana sem
innanhúshönnuð á
Íslandi. Hún fór af
stað með vörumer-
kið Volcano Design
árið 2008 og hafa
íslenskar og erlendar
konur kunnað vel að
meta flíkurnar
fatahönnuður síðan ég kláraði inn-
ahúshönnun,“ segir hún og skellir
upp úr.
Kvenlegar línur
Katla hefur lagt áherslu á að hanna
klassískar og klæðilegar flíkur
fyrir venjulegar konur. Flíkur
sem hún sjálf getur hugsað sér
að ganga í. „Ég er aðallega í því
að búa til eitthvað sem mig sjálfa
vantar í fataskápinn. Eitthvað sem
mig langar í. Ég er bara heppin að
margir eru sammála mér og langar
í það sama. Að sjálfsögðu reyni ég
líka að fylgjast með því hvað er í
tísku og reyni að haga hönnuninni
að einhverju leyti eftir því. En ég
hef mig sjálfa í huga. Ég hanna á
mig. Ég er hvorki í stærð núll né í
yfirstærð. Ég er venjuleg kona. En
venjulegar konur geta verið í öllum
stærðum og flíkurnar henta því öll-
um. Þær eru meira í að undirstrika
kvenleikann og kvenlegar línur
heldur en að sýna rassaskorur.“
Vendingarnir slógu í gegn
Í upphafi rak Katla verslun á
Laugavegi undir merki Volcano
Design en á síðasta ári ákváðu hún
og systir hennar, hönnuðurinn
María Krista, að sameinast undir
nafninu Systur og makar. Reka
þær nú verslanir á Laugavegi og á
Akureyri. Og eins og nafnið gefur
til kynna koma makar þeirra líka
við sögu með einum eða öðrum
hætti.
Þær flíkur sem hafa náð hvað
mestum vinsældum hjá Volcano
Design eru utanyfirflíkur sem
kallast Vendingar en á tímabili
klæddist önnur hver íslensk kona
slíkri flík. „Á þeim tíma sem ég
byrjaði með þá voru víðar erm-
ar mikið í tísku og það var alveg
ógerlegt að finna kápur yfir þannig
kjóla og peysur. Hugmyndin í upp-
hafi var því að hanna utanyfirflík
sem hentaði slíkum ermum,“ út-
skýrir Katla, en Vendingarnir njóta
enn mikilla vinsælda, bæði hjá
Íslendingum og erlendum ferða-
mönnum.
Stolt af íslenskri framleiðslu
Katla gengur aðallega í fötum sem
hún hannar sjálf en kaupir stund-
um fallegar og eigulegar flíkur eft-
ir aðra hönnuði, þá sérstaklega ís-
lenska. „Ég hef mjög gaman af því
að styðja við aðra í sama bransa.
Ég fæ alveg kikk út úr því.“
Aðspurð hvort það sé einhver
flík eftir íslenskan hönnuð sem
hana dreymir um að eignast, segir
hún erfitt að velja. „Ég er að fíla
mjög margt sem Helicopter er að
gera, líka sem Forynja og Júníform
eru að gera. Andrea stendur sig
líka rosa vel. Ég get talið enda-
laust upp og dáist að því hvað fólk
er duglegt að taka á því í þessum
bransa. Sérstaklega þegar um er
að ræða íslenska framleiðslu, sem
er alveg meira en að segja það.
Ég tek hattinn ofan fyrir þeim að
standa í því,“ segir Katla en allar
vörur Volcano Design hafa verið
framleiddar á Íslandi frá upphafi.
Þannig að hún þekkir af eigin raun
hvað það getur verið strembið.
„Það er samt mjög skemmtilegt að
geta haldið framleiðslunni hérna
heima og ég er mjög stolt af því,“
segir hún að lokum.
„Þegar Guð
átti að blessa
Ísland var ekki séns
að fá vinnu við inn-
anhúshönnun.“
Hannar föt sem
hana sjálfa vantar
í fataskápinn
…tíska 6 | amk… FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016GLÆSILEGAR
BORGIR Í A-EVRÓPU
Í BEINU FLUGI
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa,
fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4
daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt
að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum
uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki.
BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún
er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar
sem margar eru á minjaskrá Unesco,
forna menningu og spa/heilsulindir.
Þar hefur í árhundruði blandast
saman ýmis menningaráhrif sem
gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og
fallegasta borg Póllands, saga
hennar nær aftur til ársins 997.
Glæsilegur arkitektúr, forn menning
og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina
að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
RIGA Í LETTLANDI
Gamli og nýi tíminn mætast í borg
sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn í
Riga er virkilegt augnayndi hvert sem
litið er og setur borgina á stall með
fallegri borgum Evrópu. Þar ber hæst
kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs
og Dómkirkjan. Flogið er tvisvar í viku
frá maí til október.
VERÐ FRÁ 87.900.-
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
www.gilbert.is
NÝTT ELDFJALLAÚR
SIF N.A.R.T. VOLCANO
VIÐ KYNNUM