Fréttatíminn - 20.05.2016, Síða 2
Valur Grettisson
Valur@frettatiminn.is
„Kona sem vann í afgreiðslunni til-
kynnti mér að ég þyrfti að greiða
54 þúsund krónur fyrir aðhlynn-
inguna,“ segir Malsor Tafa, hæl-
isleitandi frá Kósovó, en sonur hans,
hinn átta mánaða gamli Emir, þurfti
að fara á spítala eftir að heitt vatn
helltist á fót barnsins. Íslenskur fjöl-
skylduvinur brunaði á bíl til fjöl-
skyldunnar og keyrði móðurina og
drenginn upp á spítala.
Malsor, sem er prófessor í landa-
fræði og alþjóðlegur meistari í
Taekwondo, hringdi í félaga sinn
sem kom svo og ók þeim upp á spít-
ala. Malsor er 29 ára gamall og kom
hingað til lands í desember árið
2014 ásamt eiginkonu. Þau eignuð-
ust Emir hér á landi á síðasta ári og
því er drengurinn fæddur og alinn
upp hér á landi.
„Ég hélt í fyrstu að að ég þyrfti
ekki að borga mikið þar sem
barnið er fætt á Íslandi,“ seg-
ir Malsor sem gat ekki tek-
ið saman slíka fjárhæð
þegar þess var krafist
af honum. Hann segist
hafa haldið í fyrstu að
hann þyrfti að greiða upp-
hæðina strax og því kom fjölskyldu-
vinur þeim til bjargar og fékk starfs-
fólkið til þess að senda honum víxil
heim, enda ekki hlaupið að því að
útvega slíka fjárhæð.
„Það var ekki fyrr en klukkutíma
síðar sem okkur var sagt að við
Það er dýrt fyrir
hælisleitendur að
leita til læknis.
Faðir borgaði 50 þúsund
fyrir lækni þegar barn
hans brenndist illa
Drengurinn sem
slasaðist er fæddur
á Íslandi.
þurftum ekki að greiða upphæðina
strax,“ segir Malsor.
Fjölskylda Malsor hefur verði vís-
að úr landi en hann fékk tilkynn-
ingu þess eðlis frá Útlendingastofn-
un fyrr í mánuðinum. Ástæðan er sú
að í reglugerð Útlendingastofnunar
kemur fram að hælisleitendur mega
ekki vera hér á landi á meðan unnið
er í málum þeirra. Malsor sótti um
undanþágu, þar sem hann er nýbak-
aður faðir, en því var hafnað.
Þar af leiðandi þarf fjölskyldan að
taka lán fyrir flugi til Þýskalands þar
sem þau vonast til þess að geta verið
á meðan Útlendingastofnun vinn-
ur úr málinu. Áður en þau yfirgefa
landið munu þau fara með Emir litla
á heilsugæslu til þess að skipta um
umbúðir. Spurður hvort hann þurfi
að borga annað eins fyrir þá heim-
sókn segist hann ekki vita það.
„Líklega þurfum við nú samt
að borga eitthvað fyrir það,“ segir
Malsor.
Þegar haft var samband við upp-
lýsingafulltrúa Landspítalans feng-
ust þau svör að gjaldið sé ákveðið
með reglugerð sem heilbrigðisráð-
herra setur og starfsfólki Landspít-
alans er skylt að fara eftir.
Emir litli
er átta
mánaða
gamall.
Heitt vatn
slettist á
fótlegginn
fyrir slysni.
SIKILEY
Bókaðu sól á
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
74
0
84
Sikiley kemur á óvart með áhugaverða blöndu af öllu því helsta sem ferðamenn óska sér. Samfelld 3000 ára menningarsaga, einstök náttúrufegurð, ótrúlegar
fornminjar, fallegar byggingar og söfn, ásamt áhugaverðri
matarmenningu og blómlegu mannlífi – allt þetta og miklu
meira finnur þú á Sikiley. Heimsferðir bjóða beint leiguflug til
Sikileyjar 10. október á yndislegum tíma. Hitastigið er ennþá
notalegt og hentar bæði til sólbaða og fyrir þá sem vilja verja
tímanum til að skoða þessar stórbrotnu eyju.
Flogið er til Palermo og dvalið á Fiesta Garden Beach hótelinu
á Campofelice di Roccella ströndinni í 5 nætur, þá er haldið
til austurstrandarinnar og dvalið á Naxos Beach Hotel á
ströndinni í bænum Giardini Naxos í 5 nætur.
Gönguferð til Vindeyja – Le Isole Eolie – hins ævintýralega eldfjallaeyjaklasa norður af Sikiley. Í ferðinni verður farið í valdar dagsgöngur eftir ægifögrum göngustígum
á milli litskrúðugra þorpa, gróðursællra unaðslunda
og fjallstinda með óviðjafnanlegu útsýni yfir nokkrar af
rómuðustu náttúruperlum Suður-Ítalíu. Meðal annars verður
gengið á eldfjöllin á eyjunum Vulcano og Stromboli, þar sem
látlaus eldvirknin hefur réttilega fært þeim viðurnefnið „Viti
Miðjarðarhafsins“. Í ferðinni kynnumst við einstakri menningu
Sikileyinga er rekja má allt aftur til forsögulegs tíma, í gegnum
hámenningu fornaldarinnar hjá Grikkjum og Rómverjum, til
yfirtöku Mára, Normanna og Spánverja á seinni öldum. Við
kynnumst ómótstæðilegu mannlífi og ósnortinni náttúru, þar
sem tækifæri gefst til að njóta sérstakrar matarmenningar og
gestrisni sem á sér engan sinn líkan í veröldinni.
Frá kr. 199.900
m/hálft fæði innifalið og drykkjum m/kvöldverði
Netverð á mann frá kr. 199.900 m.v. 2 í herbergi. Innifalið er hálft
fæði ásamt ¼ vínflaska og ½ vatnsflösku með kvöldverði.
Frá kr. 239.900
m/morgunverði o.fl.
Netverð á mann m.v. 2 í herbergi með morgunverði alla morgna og
5 kvöldverðum.
Bókaðu göngu á
SIKILEY
10. október
í 10 nætur
10. október
í 10 nætur
Malsor Tafa er alþjóðlegur meistari í Tae
kwondo og er vel þekktur innan íþrótta
samfélagsins sem dómari í íþróttinni.
Skólinn mun ekki hafa forgöngu um að kæra málið til lögreglunnar.
„Júlíus er ekki lengur í borgar-
stjórnarflokknum. Hann sagði af
sér. Því höfum við í borgarstjórn-
arflokknum ekkert um þetta mál
að segja og tjáum okkur ekkert
um það,“ segir Halldór Halldórs-
son, oddviti sjálfstæðismanna í
borginni, um þátt Kastljóss Sjón-
varpsins, þar sem sagði að Júlíus
Vífill hefði játað fyrir systkin-
um sínum að hann hefði stofnað
aflandsfélag á Panama í kringum
sjóð sem faðir hans stofnaði með
umboðslaunum sem hann hafði
þegið frá erlendum viðskiptavin-
um. Systkini hans segir að móðir
þeirra heitin hafi leitað að fénu í á
annan áratug en Ingvar Helgason
lést árið 1999.
Í sama streng tóku aðrir borg-
arfulltrúar flokksins sem Frétta-
tíminn ræddi við. Jón Gnarr,
fyrrverandi borgarstjóri, tjáir sig
hinsvegar á Facebook-síðu sinni
með þessum orðum: „Ég hef verið
laminn saklaus af handrukkara
en það var saklaus skemmtiferð
samanborið við að standa dag-
lega frammi fyrir Hönnu Birnu,
Júlíusi Vífli, Davíð Oddssyni og
þeirri klíku allri. Það er verulega
harðsvírað lið. Úff.“ | þká
Fór yfir velsæmismörk í
samskiptum við nemendur
Félagsmálafulltrúi Fjöl
brautaskólans í Breiðholti
var rekinn úr starfi eftir að í
ljós kom að hann hafði farið
yfir strikið í samskiptum
sínum við nemendur.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Maðurinn, sem er um fertugt, hafði
starfað í skólanum í talsverðan tíma
en samkvæmt heimildum Frétta-
tímans var honum borið á brýn að
hafa farið yfir velsæmismörk um
samskipti nemenda og kennara.
Málið var kannað eftir kvörtun frá
nemendum.
Samkvæmt heimildum
fréttastofu brugðust skólayfirvöld
fljótt við eftir að málið kom inn á
borð til þeirra og það endaði með
brottrekstri. Guðrún Hrefna Guð-
mundsdóttir, skólameistari Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti, sagðist
vera bundin trúnaði og hún gæti
ekki tjáð sig um mál einstakra nem-
enda og kennara.
Samkvæmt heimildum Frétta-
tímans ætlar skólinn ekki að hafa
forgöngu um að kæra málið til lög-
reglunnar, enda sé hann ekki aðili
máls, en ef viðkomandi einstak-
lingar hefðu ákveðið að kæra væri
það hugsanlega refsivert.
Ragnheiður Elín á ekki að segja af sér
Svandís segist ekki
kalla eftir afsögn
ráðherrans
Iðnaðarráðherra
tjáir sig ekki
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnað-
arráðherra vill ekki tjá sig um
dóm hæstaréttar sem felldi úr
gildi stjórnvaldsákvarðanir henn-
ar um að heimila Landsneti að
taka land eignarnámi á fimm
jörðum á Reykjanesi vegna
byggingar Suðurnesjalínu.
Ragnheiður Elín segir að
hún eigi eftir að kynna
sér málið til hlítar og hún
vilji ekki baka sér van-
hæfi ef málið rati aftur á
hennar borð.
Ragnheiður Elín
krafðist þess að Svandís
Svavarsdóttir, þáverandi
umhverfisráðherra, segði af sér
árið 2011 þegar hæstiréttur komst
að þeirri niðurstöðu að Svandís
Svavarsdóttir hefði ekki mátt sam-
þykkja skipulag Flóahrepps nema
í heild sinni. Nú hefur hún sjálf
verið dæmd fyrir brot á stjórnar-
skrá vegna eignarnáms.
Svandís Svavarsdóttir, fyrrver-
andi umhverfisráðherra, segir að
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnað-
arráðherra þurfi auðvitað að svara
fyrir sín embættisverk, þetta eins
og önnur, gagnvart sínum kjós-
endum – og ekki síður þurfi hún
að svara fyrir þá ómálefnalegu og
rakalausu aðför sem hún hafi tekið
þátt í gagnvart henni sjálfri á sín-
um tíma.
Svandís segist hinsvegar ekki
ætla að fara í þann leik að kalla eft-
ir afsögn Ragnheiðar Elínar
„Stjórnsýslan yrði bæði óskilvirk
og ákvarðanafælin ef embættis-
menn ættu yfir höfði sér að þurfa
að fara frá við það að dómstólar
reynist síðar ekki sammála laga-
túlkun þeirra. Nú hafa dómstólar
komist að þeirri niðurstöðu að ekki
hafi öll skilyrði verið uppfyllt til
eignarnáms en ekki að Ragnheiður
Elín hafi misbeitt valdi sínu. Þess
vegna er þetta mál ekki tilefni til
afsagnar.“ | þká
Svandís kallar ekki eftir afsögn
Ragnheiðar Elínar.
Borgarstjórnarflokkur
sjálfstæðismanna tjáir sig ekki
Júlíus Vífill Ingvarsson sagði af
sér sem borgarstjórnarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins um leið og
Panamaskjölin urðu opinber.
Aflandsfélag hasn hefur nú dregist
inn í deilur fjölskyldunnar um arf
eftir Ingvar Helgason bílasala.
Arngrímur Jóhannsson .
Greiðir tíu milljónir
af hrapaðri flugvél
Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur í gær um
að Arngrímur Jóhannsson, flugstjóri
og fyrrum forstjóri Atlanta flugfé-
lagsins, þurfi að greiða rúmlega tíu
milljónir króna vegna aðflutnings-
gjalda af sjóflugvél sem hann flutti
til landsins árið 2008. Örlögin haga
því þó þannig að hæstiréttur stað-
festir dóminn nú, tæplega ári eft-
ir að Arngrímur hrapaði á flugvél-
inni ásamt félaga sínum, sem lést
í slysinu.
Ágreiningur snéri að því hvort
sjóflugvélin, sem skrásett var í eigu
bandarísks eignarhaldssjóðs en
Arngrímur hafði til umráða, væri
tollskyld hér á landi svo greiða bæri
af henni aðflutningsgjöld. Komust
dómstólar að þeirri niðurstöðu að
Arngrímur þyrfti að greiða milljón-
irnar tíu. - vg
2 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016