Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 20.05.2016, Page 8

Fréttatíminn - 20.05.2016, Page 8
SIKILEY Bókaðu sól á Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th . a ð v er ð g etu r b re ys t á n f yri rva ra . E N N E M M / S IA • N M 74 0 8 4 Sikiley kemur á óvart með áhugaverða blöndu af öllu því helsta sem ferðamenn óska sér. Samfelld 3000 ára menningarsaga, einstök náttúrufegurð, ótrúlegar fornminjar, fallegar byggingar og söfn, ásamt áhugaverðri matarmenningu og blómlegu mannlífi – allt þetta og miklu meira finnur þú á Sikiley. Heimsferðir bjóða beint leiguflug til Sikileyjar 10. október á yndislegum tíma. Hitastigið er ennþá notalegt og hentar bæði til sólbaða og fyrir þá sem vilja verja tímanum til að skoða þessar stórbrotnu eyju. Flogið er til Palermo og dvalið á Fiesta Garden Beach hótelinu á Campofelice di Roccella ströndinni í 5 nætur, þá er haldið til austurstrandarinnar og dvalið á Naxos Beach Hotel á ströndinni í bænum Giardini Naxos í 5 nætur. Gönguferð til Vindeyja – Le Isole Eolie – hins ævintýralega eldfjallaeyjaklasa norður af Sikiley. Í ferðinni verður farið í valdar dagsgöngur eftir ægifögrum göngustígum á milli litskrúðugra þorpa, gróðursællra unaðslunda og fjallstinda með óviðjafnanlegu útsýni yfir nokkrar af rómuðustu náttúruperlum Suður-Ítalíu. Meðal annars verður gengið á eldfjöllin á eyjunum Vulcano og Stromboli, þar sem látlaus eldvirknin hefur réttilega fært þeim viðurnefnið „Viti Miðjarðarhafsins“. Í ferðinni kynnumst við einstakri menningu Sikileyinga er rekja má allt aftur til forsögulegs tíma, í gegnum hámenningu fornaldarinnar hjá Grikkjum og Rómverjum, til yfirtöku Mára, Normanna og Spánverja á seinni öldum. Við kynnumst ómótstæðilegu mannlífi og ósnortinni náttúru, þar sem tækifæri gefst til að njóta sérstakrar matarmenningar og gestrisni sem á sér engan sinn líkan í veröldinni. Frá kr. 199.900 m/hálft fæði innifalið og drykkjum m/kvöldverði Netverð á mann frá kr. 199.900 m.v. 2 í herbergi. Innifalið er hálft fæði ásamt ¼ vínflaska og ½ vatnsflösku með kvöldverði. Frá kr. 239.900 m/morgunverði o.fl. Netverð á mann m.v. 2 í herbergi með morgunverði alla morgna og 5 kvöldverðum. Bókaðu göngu á SIKILEY 10. október í 10 nætur 10. október í 10 nætur „Ég hafði mest gaman af þeirri fyrstu, Davíð og þeir voru voðalega áhugasamir og þetta sló í gegn,“ segir Steingrímur Gautur Kristjánsson um leiksýninguna Bubba kóng, sem kall- ast nú Ubbi kóngur í nýrri þýðingu. Fékk níu geðklofaköst og fann rödd sína sem listamað- ur á geðdeild í Svíþjóð Valur Gunnarsson valurgunnars@frettatiminn.is „Fram að 1990 brenndi ég allar myndir sem ég málaði, en ég fór að ná þessu eftir að hafa verið á réttargeðdeild í Västervik í Sví- þjóð,“ segir Bjarni Bernharður, myndlistarmaður og skáld, sem hefur marga fjöruna sopið. „Þá heyrði ég einhverja rödd sem sagði mér að nú væri þetta komið.“ Hann heldur nú sína fyrstu einkasýningu í Menningarhúsinu Gerðubergi í Breiðholti, en hefur áður sýnt á kaffihús- inu Mokka auk þess að selja ljóðabækur sínar í Austur- stræti. Sýningin samein- ar þessi tvö form, því á veggjunum má einnig finna ljóð eftir hann sjálf- an. Eitt þeirra er hjart- næmt ljóð um dreng sem settur er utan sand- kassa. „Þetta er 30 ára gamalt ljóð sem stend- ur enn fyrir sínu. Það er hætta á að þeir sem lenda fyrir utan kassann hrekist út á auðnina, en ég er búinn að finna mér kassa fyrir utan kassann,“ segir Bjarni. Hann er þegar búinn að selja tvö verk af sýningunni. Eitt þeirra heitir „Stríðsmaður ljóssins“ en hver er það? „Það er ég sjálfur,“ segir listamaðurinn. Hitt nefnist „Anno 86.“ Þetta lýsir harðasta geðklofakasti sem ég hef fengið um ævina, það sjöunda af níu. Þetta gerðist aldrei inni á geðdeild heldur alltaf þegar ég var einn. Ég hef oft staðið tæpt í geðklofaköst- um en þarna var ég alveg á brún- inni,“ segir Bjarni. Á 8. áratugnum flutti Bjarni til fríríkisins Kristjaníu í Kaup- mannahöfn þar sem hann komst í kynni við ofskynjunarlyfið LSD, eða sýru, með afdrifaríkum af- leiðingum. Það vakti nokkra athygli þegar hann tilkynnti á samfélags- miðlum í haust að hann hefði neytt efnisins á ný. „Ég skildi illa við sýruna ´82 en þetta hreinsaði það allt út. Ég er með langa edrú- sögu að baki og lít svo á að ég sé ennþá edrú. Sú sýra sem ég tók í haust afbyggði mig eins og nú þykir fínt að segja og reisti mig alveg upp frá grunni. Ég hef sjaldan haft jafn mikla orku.“ Þessa daganna varar lögreglan við því að ungmenni séu aftur farin að nota LSD og Bjarni tekur undir það. „Þau er ekki að gera þetta rétt, nota hana bara til að flippa út og það má ekki. Þá losna allar skrúfur í hausnum. Sýra er stórhættuleg og velflestir sem nota hana nota hana vitlaust. Þetta var rússnesk rúlletta og ég hefði getað fengið kúluna í hausinn.“ Dýrustu verkin á sýningunni nefnast Hel og Uppheimar og kosta rúma milljón stykkið. „Þetta eru himnaríki og helvíti. Auðvitað er þetta ekki til en við erum kannski að finna þetta í okk- ur sjálfum, hið góða og hið illa. Ég er þegar búinn að fara til Heljar svo ég þekki það.“ Eliza Reid er fædd í Ottawa en hefur búið á Íslandi í 13 ár Það hefur vakið athygli meðal Kanadamanna að sú kona sem er líklegust til að verða forsetafrú Ís- lands er kanadísk að uppruna. Eliza Reid er búin að vera gift Guðna Th. Jóhannessyni í 12 ár og eiga þau fjögur börn. Viðtali við hana á vef- síðunni Hit Iceland hefur meðal annars verið dreift af sendiherra Kanada á Íslandi, á kanadískum spjallsíðum og af helsta blaði Vest- ur-Íslendinga, Lögberg-Heimskr- ingla. „Mér finnst frekar svalt að kanadísk kona gæti orðið „First Lady“ á Íslandi,“ segir Alicyn Good- man, einn stjórnarmanna blaðsins. „Mér brá samt að sjá viðbrögðin frá sumum á Íslandi sem sögðu að for- setafrúin ætti að vera íslensk. Er ekki núverandi forsetafrú einmitt af erlendum uppruna?“ Guðni hefur verið bókaður á fyr- irlestur Vestra í haust. „Við höfum oftast verið með eldri fræðimenn en Guðni er nýr og ferskur. Við von- umst til þess að hann komi, en ef hann er orðinn forseti verður þetta líklega eitthvað formlegra.“ |vsg Kanadamenn spenntir fyrir konu Guðna Guðni og Eliza með börnin. Lengst til vinstri er Rut sem heldur á Donald Gunnari, þá Duncan Tindur. Guðni situr með Sæþór Peter og Edda Margrét er í fangi Elizu, móður sinnar. Örlagavaldur í lífi Davíðs Steingrímur Gautur Krist- jánsson þýddi Bubba kóng og kenndi lögfræði við HÍ Leikritið Bubbi kóngur, eftir franska súrrealistann Alfred Jarry, vakti fyrst athygli hérlendis þegar Davíð Oddsson forsetaframbjóðandi lék í því árið 1969. Ágústa Skúladóttur leikstýrði því nýlega í Hafnarfirðin- um og var sú uppfærsla valin til þátt- töku á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Strawanz í Austurríki í sumar. Steingrímur Gautur Kristjánsson lögmaður þýddi verkið á sínum tíma og nýja útgáfan heitir Ubbi kóngur, en á frummálinu Ubu Roi. „Ég vissi ekki að Ubbi væri til í ís- lensku, en fann svo víkingakónginn Ubba í fornsögunum. Ég hef fært margt í réttara horf.“ Steingrímur lærði bókmennta- fræði í Frakklandi en skipti yfir í lögfræði. „Það er náttúrulega ekkert vit í að læra bókmenntir ef maður ætlar að hafa ofan af fyrir sér, en ég hef haft þær sem áhugamál.“ Og um hvað snýst verkið? „Ubbi, sem er háttsettur við pólsku hirðina, fremur valdarán og fer síðan að innheimta skatta handa sjálfum sér. Honum steypt og hann fluttur til Frakklands, en í minni út- gáfu er það til Íslands.“ | vgu Stríðsmaður ljóssins Þetta eru himnaríki og helvíti. Auðvitað er þetta ekki til en við erum kannski að finna þetta í okkur sjálfum, hið góða og hið illa. Ég er þegar bú- inn að fara til Heljar svo ég þekki það. 8 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.