Fréttatíminn - 20.05.2016, Síða 12
Launin hrundu og sitja eftir
undan lífsafkomunni. Húsbóndan-
um bar að gæta hjarðar sinnar.
Með frjálsu framsali breyttist
þetta. Kvótaeigandi gat selt kvótann
úr plássinu og stungið af með sölu-
verðið. Í næsta skattaskjól ef svo bar
undir. Litið var svo á að hann bæri
enga ábyrgð gagnvart lífsafkomu
þeirra sem höfðu lifað og starfað
við fyrirtækið.
Við þekkjum samskonar dæmi úr
mannkynssögunni. Breska krúnan
náði að róa skosku hálöndin með
því að skilgreina land sem áður var
almenningur sem einkaeign höfð-
ingjanna. Við það rofnuðu tengsl
höfðingjanna við meðbræður sína
og það liðu ekki nema nokkrir ára-
tugir þar þeir hröktu fólk af löndum
sínum. Þetta var kölluð Hálanda-
hreinsunin.
Það þekkjast því mörg dæmi þess
úr sögu og samtíma hversu mik-
il áhrif það hefur þegar rofin eru
tengsl fyrirtækja og auðlinda við
samfélagið.
Bullið í bólunni
Samkvæmt samandregnum skatt-
framtölum rekstraraðila voru laun
og launatengd gjöld um 860 millj-
arðar króna á núvirði að meðal-
tali síðustu þrjú ár síðustu aldar,
frá 1997 til 1999. Útgreiddur arður
úr þessum fyrirtækjum til eigenda
sinna var á þessum árum 61 millj-
arður króna. Launafólkið fékk með
öðrum orðum um 14 sinnum hærri
fjárhæð en eigendurnir.
Árið 2007, á hápunkti bólunn-
ar fyrir Hrun, þegar eigendur mis-
notuðu fyrirtækin hvað mest og
drógu úr þeim mesta fjármuni, fóru
launagreiðslur upp í 1285 milljarða
króna á núvirði. Þá var samanlagð-
ur útgreiddur arður til eigenda hins
vegar um 680 milljarðar króna.
Launþegar fengu til sín tæplega
tvöfalda þá upphæð sem eigendur
drógu til sín.
Þar sem eitt einkenni áranna fyrir
Hrun var flókinn fyrirtækjastrúktúr
þar sem hvert eignarhaldsfélagið
stóð upp af öðru má búast við að í
samandregnum framtölum sé hluti
af arðinum tvítalinn og í sumum til-
fellum jafnvel þrí- og fjórtalinn.
Laun frosin en arður rýkur upp
En þessi flókni fyrirtækjastrúktúr
var að mestu fallinn þegar komið
var fram á árin 2013 og 2014. Árið
2013 voru samanlögð laun og launa-
tengd gjöld fyrirtækjanna 737 millj-
arðar króna á núvirði eða um 14
prósent lægri en meðaltal áranna
1997 til 1999. Árið 2014 hækkuðu
launin upp í 763 milljarða en voru
samt 13 prósent lægri en á síðustu
árum síðustu aldar.
Árið 2013 var útgreiddur arður
og aðrar útgreiðslur til eigenda úr
fyrirtækjum 204 milljarðar króna
á núvirði eða 240 prósent hærri en
arðurinn var í lok síðustu aldar. Og
2014 hækkaði arðurinn enn, fór í
234 milljarða króna á núvirði eða
258 prósent yfir því sem var í lok
síðustu aldar.
Ef við gerum ráð fyrir að hlutfall-
ið milli launa og arðs hefði verið það
sama 2014 og það var að meðaltali
1997 til 1999 má segja að launþegar
hafi fengið 120 milljörðum minna í
sinn hlut árið 2014 af samanlögðum
launum, leigu, vöxtum og arði. Með
sama hætti má segja að eigendur
fyrirtækja hafi á þessu ári tekið til
sín 171 milljarð króna í arð umfram
það hlutfall sem almennt var ríkj-
andi í lok síðustu aldar.
Úr 14 niður í 4 sinnum meira
Sem kunnugt er greiddu bankarn-
ir út ríkulegan arð árið 2014 og var
það byggt á gríðarlegum hagnaði
þeirra. Það er því ef til vill eðlilegt
að skera bankanna frá öðrum fyrir-
tækjum þar sem stór hluti hagnað-
ar þeirra var byggður á endurmati
eigna og lýsa ekki eðlilegu árferði
eða viðvarandi rekstrarstöðu.
Ef við skerum stóru bankanna
þrjá frá heildinni þá lækka launa-
greiðslur ársins 2014 um 42 millj-
arða króna á núvirði og arðurinn
um 47 milljarða króna. Eftir situr
721 milljarður króna í launagreiðsl-
ur á móti 187 milljörðum krónum
í arð.
Eins og fyrr segir fengu laun-
þegar um 14 sinnum meira í sinn
hlut en eigendurnir í lok síðustu ald-
ar en þeir fengu minna en fjórum
sinnum meira en eigendurnir árið
2014. Ef bankarnir eru hafði með
fengu launþegar rúmlega þrisvar
sinnum meira en eigendur fyrir-
tækja árið 2014.
Vantar milljón í launaumslagið
Það hafa því orðið miklar breytingar
á því hvernig kökunni er skipt á
þessum árum. Ef við reiknum með
um 110 starfandi hjá framtalsskyld-
um rekstraraðilum, en opinberar
stofnanir eru ekki inn þessum töl-
um, felur þessi breyting í sér að
sneið hvers starfsmanns var rúm-
lega einni milljón krónum minni
2014 en hún hefði verið ef hlutfall-
ið á milli launagreiðslna og arðs úr
fyrirtækjum hefði verið lík því sem
það var í lok síðustu aldar.
Það erfitt á áætla hversu mikið
hagur hvers eigenda hefur batnað
að sama skapi. Eigendur fyrirtækja
eru miklum mun færri en launafólk-
ið. Þessi færsla frá launagreiðslum
til arðs er því ein birtingarmynd
þeirrar þróunar sem verið hefur á
Vesturlöndum undanfarna áratugi;
að fjöldinn fær minna í sinn hlut á
meðan hinir fáu fá sífellt meira.
Því var almennt trúað á tímabili
nýfrjálshyggjunnar að því meira
sem fáir fengju því betur hefði
heildin það. Hrunið afhjúpaði þetta
sem bábilju og nú leggur meira að
segja Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
áherslu á að besta leiðin til að bæta
kjör heildarinnar sé að lyfta upp
þeim sem minnst bera úr býtum.
Það er með öðrum orðum
heillavænlegra að láta þennan 171
milljarð króna, sem tiltölulega fáir
eigendur fyrirtækja tóku til sín um-
fram það sem þeir gerðu í lok síð-
ustu aldar, renna til fjöldans, launa-
manna. En þótt þetta séu orðin
almennt viðurkennd sannindi í hag-
stjórn hafa þau ekki náð að breyta
kerfinu. Það virðist halda áfram
eins og ekkert hafi orðið Hrunið.
Ef við skerum stóru bank-
anna þrjá frá heildinni
þá lækka launagreiðslur
ársins 2014 um 42 millj-
arða króna á núvirði og
arðurinn um 47 millj-
arða króna. Eftir situr
721 milljarður króna í
launagreiðslur á móti 187
milljörðum krónum í arð.
Neðsti flöturinn, sá rauði, sýnir þróun launa og
launatengdra gjalda í samandregnum framtöl-
um rekstraraðila á föstu verðlagi. Launakostnaður
byggðist upp fram eftir öldinni, reis svo hátt á árun-
um fyrir Hrun en steyptist svo niður við Hrunið og
var nánast sá sami frá 2009 og fram til 2014. Næsti
flötur sýnir leigukostnað og sá þar fyrir ofan vaxta-
greiðslur. Þetta er sneið fjármagnsins. Glórulaus
rekstur áranna fyrir Hrun og uppgjörið við Hrunið
brenglar þessar stærðir út úr öllu korti. En þegar
bornar eru saman þessar stærðir á árunum kring-
um aldamótin og árin 2013 og 2014 sést að þær
eru merkilegar líkar. Það á hins vegar ekki við um
arð og aðrar útgreiðslur úr fyrirtækjum til eigenda.
Arðgreiðslur jukust mjög á árunum fyrir Hrun þar
til þær voru orðnar um helmingur af öllum launa-
kostnaði árið 2007. Við Hrunið skruppu arðgreiðsl-
ur skiljanlega saman, það voru engin verðmæti
eftir í fyrirtækjunum til að greiða út. En á meðan
launagreiðslur hafa nánast staðið í stað voru arð-
greiðslurnar fljótar að taka við sér aftur. Á meðan
launagreiðslur voru um 13 prósent lægri árið 2014
en þær voru á aldamótaárinu 2000 þá voru arð-
greiðslur til fyrirtækja 250 prósent hærri.
12 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016
0
500
1000
1500
2000
2500
3000
2004 2014
Arður
Vextir
Leiga
Laun
Lægra verð
í Lyfju
lyfja.is
Notkunarsvið: Glinor nefúði inniheldur natríumcromoglicat og er ætlaður við ofnæmisbólgu í nefi.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir natríumcromoglicati, benzalkonklóríði eða einhverju hjálparefnanna.
Varúð: Innihaldsefnið benzalkonklóríð getur valdið ertingu í húð. Meðganga og brjóstagjöf: Engin
skaðleg áhrif á fóstur hafa komið fram við notkun natríumcromoglicats. Engu að síður skal forðast
notkun á fyrsta þriðjungi meðgöngu og einungis skal nota lyfið á seinni stigum meðgöngu ef þörf er
á. Natríumcromoglicat skilst í litlu magni út í brjóstamjólk. Þessi útskilnaður er sennilega skaðlaus en
einungis skal nota lyfið hjá mæðrum með barn á brjósti ef þörf er á. Skömmtun: Fullorðnir og börn, 4 ára
og eldri: Einn úðaskammtur í hvora nös tvisvar til fjórum sinnum á dag. Algengustu aukaverkanir: Erting
í nefslímhúð getur komið fram i upphafi meðferðar en þessi áhrif eru skaðlaus og tímabundin. Lesið
vandlega fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. SmPC: Desember 2015.
Fyrirbyggir og
meðhöndlar einkenni
ofnæmisbólgu í nefi:
Nefúði við ofnæmi
9 Hnerri
9 Nefrennsli
9 Kláði í nefi
9 Nefstífla