Fréttatíminn - 20.05.2016, Side 14
„Þetta var bara erfiðisvinna. Ég
var að vinna hjá honum sjö daga
vikunnar í átta mánuði. Ég fékk
aldrei borgað fyrir vinnuna. Vinnu-
veitandinn minn sagði mér að hann
væri að safna fyrir mig peningum
og myndi greiða mér síðar,“ út-
skýrir Bilal. Um var að ræða erfiða
vinnu án lögbundins frís og í ljósi
aldurs Bilal verður vinnunni varla
lýst öðruvísi en sem vinnumansali,
af lýsingum hans að dæma. Und-
ir það tekur lögmaður hans, Ás-
laug Gunnlaugsdóttir, í samtali við
blaðamann.
Bróðirinn atvinnuglæpamaður
Bilal segist hafa áttað sig á því í
hvaða aðstæður hann var búinn
að koma sér í eftir nokkra mánuði.
Hann hafi því íhugað að leita til
lögreglu. Vinnuveitandinn sann-
færði Bilal um að hann yrði sendur
rakleiðis aftur til Marokkó leitaði
hann hjálpar hjá yfirvöldum. Það
var áhætta sem Bilal vildi ekki taka.
Ofan á allt annað átti vinnuveit-
andinn bróður sem var atvinnu-
glæpamaður, að sögn Bilal. „Hann
var stundum með byssu á sér og
kom ítrekað með þýfi heim til bróð-
ur síns,“ segir hann og bætir við að
hann hafi verið afar hræddur við
bræðurna. Hann segir glæpamann-
inn, bróður vinnuveitandans, hafa
að auki reynt að nauðga sér þríveg-
is.
„Einu sinni þegar ég var fjórt-
án og tvisvar þegar ég var orðinn
fimmtán ára,“ segir hann. Bilal
tókst að komast í burtu af sjálfs-
dáðum í tvö skipti en í það þriðja
kom félagi hans honum til hjálpar,
að hans sögn.
„Hann sagði honum bara að ég
væri ekki fyrir svona lagað,“ útskýr-
ir Bilal sem var hættur að lítast á
blikuna þegar þarna var komið.
Að lokum kom að því að félagi
Bilal, sem var tæplega tíu árum
eldri, fór með hann á fund vinnu-
veitandans þar sem hann ætlaði
bæði að krefjast eigin launa og svo
hjálpa Bilal að fá laun fyrir vinnu
sína. Sá hefur verið dæmdur fyrir
árásina.
„Vinnuveitandinn sagðist þá ekki
kannast við okkur og þverneitaði að
borga okkur fyrir vinnuna,“ segir
Bilal.
Vonar að dómari hlusti á sig
Lýsingar hans á atvikinu eru ólík-
ar þeim sem eru tilteknar í úr-
skurði Hæstaréttar. Þannig heldur
vinnuveitandinn því fram að Bilal
og vinnufélagi hans hafi lamið sig
illa, hellt yfir hann bensíni, stolið
um 1400 evrum auk farsíma og bif-
reiðar.
Bilal segir þetta ekki sannleik-
anum samkvæmt. Hann játar þó
að hafa lent í ryskingum við hann.
„Ég sparkaði í hann og sló hann, en
ég rændi hann ekki. Hann kastaði
1300 evrum á gólfið og sagði okkur
að hirða þann pening fyrir vinnu
okkar. Það er náttúrulega ekki mik-
ið fyrir átta mánaða vinnu,“ segir
Bilal en það eru tæplega 200 þús-
und krónur. Varðandi bensínið seg-
ist Bilal hafa skvett vatni úr glasi
framan í hann.
„Ég vona bara að dómararn-
ir hlusti á mig. Það er ekki ég sem
braut lögin hérna,“ segir Bilal sem
flúði til Íslands eftir atvikið af ótta
við hefndir. Þá tók þó ekki betra við,
enda fékk hann að dúsa í níu daga
í fangelsi á Suðurnesjum og úr varð
fréttamál árið 2012. Forstjóri Barna-
verndarstofu sagði þá í viðtali við
fjölmiðla að ekkert land á Norður-
löndunum hefði brugðist eins við;
það er að segja að fangelsa barn-
ungan flóttamann.
Tengdamamma með út
Kærasta Bilal, Kolgríma, hefur
áhyggjur af kærastanum og segir
móður sína ætla að verða honum
innan handar úti í Finnlandi.
„Hún ætlar að reyna að fara út,
vera hjá honum og hjálpa honum,“
segir Kolgríma. Bilal er með dvalar-
leyfi hér á landi af mannúðarástæð-
um, enda kom hann hingað til lands
aðeins barn að aldri og var undir
umsjón barnaverndaryfirvalda hér
á landi í fyrstu.
„Mig langar að búa hér,“ segir
Bilal, enda líður honum vel hér á
landi. Hann vinnur við matreiðslu
á veitingastaðnum Roadhouse og
stefnir á nám.
Bilal var handtekinn í gær-
morgun og fluttur úr landi. Hann
verður færður í hendur finnskra
lögregluyfirvalda, en fjölskylda Bilal
vissi ekki til hvaða borgar í Finn-
landi honum var flogið.
Flúði vinnumansal
en var framseldur til baka
Bilal Fathi Tamimi og
Kolgríma Gestsdóttir hafa
verið kærustupar í tvö ár.
Bilal vann sleitulaust í átta
mánuði án þess að fá greitt
fyrir. Að lokum réðst hann
á vinnuveitanda sinn.
Fjórtán ára unglingur vann
sleitulaust í átta mánuði án
þess að fá greitt fyrir. Verð-
ur framseldur fyrir að hafa
ráðist á vinnuveitandann.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Hæstiréttur Íslands hefur sam-
þykkt að framselja tæplega
tvítugan pilt frá Marokkó til Finn-
lands vegna meintrar líkamsárás-
ar. Pilturinn, sem kom hingað til
lands á unglingsaldri og var á for-
ræði barnaverndaryfirvalda, segist
hafa lent í klónum á glæpamönnum
sem hnepptu hann í vinnuþrælkun
á barnsaldri. Hann braust út úr að-
stæðunum árið 2012 en verður nú
framseldur til baka á næstu dög-
um.
„Hann átti mig eins og þræl,“
segir Bilal Fathi Tamimi sem kom
hingað til lands aðeins fimmtán ára
gamall. Þá hafði hann flúið frá Finn-
landi, þar sem hann lenti í klónum
á manni sem lét hann vinna á hverj-
um degi í átta mánuði án þess að
greiða honum svo mikið sem eina
evru fyrir vinnuna. Samskipti Bilal
við manninn enduðu með ofbeldi
og samþykkti Hæstiréttur Íslands
fyrr í vikunni að framselja hann
til Finnlands vegna meintrar lík-
amsárásar gegn manninum sem
Bilal sakar um að hafa haldið sér í
vinnumansali.
„Ég var svona lítill,“ segir hann
við blaðamann á góðri íslensku,
og undirstrikar með höndunum
hversu lítill hann var. Með Bilal
er íslensk kærasta hans, Kolgríma
Gestsdóttir, en þau kynntust við
nám í Tækniskólanum og búa hjá
móður hennar.
„Mér fannst hann bara sætur,“
svarar Kolgríma þegar blaðamaður
spyr hvernig kom til að þau drógust
saman. Þau kynntust þegar hann
var sautján og hún sextán.
Þetta var bara erfiðisvinna
Fram kemur í dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur að Bilal hafi verði
fimmtán ára og tveggja mánaða
þegar hann á að hafa lamið og rænt
vinnuveitanda sinn. Í ljósi þess að
sakhæfisaldur er fimmtán ár á Ís-
landi úrskurðuðu dómarar að heim-
ild væri fyrir hendi að framselja
Bilal til Finnlands.
Það er óhætt að fullyrða að stutt
ævi hans sé viðburðaríkari en ævi
flestra jafnaldra hans hér á landi.
„Ég flutti frá Alsír til Marokkó
þegar ég var tveggja ára gamall. Þar
ólst ég upp,“ segir Bilal. Hann átti í
slæmu sambandi við móður sína og
segir að þau hafi ekki tengst mikið,
eins og hann orðar það sjálfur.
„Ég var því bara að flækjast um
Marokkó þar sem ég gat ekki alltaf
verið hjá mömmu minni,“ segir
hann. „Ég og nokkrir krakkar ráf-
uðum um, sváfum úti og stálum
mat og svona.“
Það kom svo að því að hann vildi
betra líf og hann var tilbúinn að
leggja mikið á sig fyrir aukin tæki-
færi. Þá vildi hann einnig mennta
sig; nokkuð sem var ómögulegt í
þeim aðstæðum sem hann var í á
þeim tíma. Bilal tók því afdrifaríka
ákvörðun, aðeins fjórtán ára gam-
all; hann ákvað að leggja í hættu-
legt ferðalag til Evrópu í leit að
betra lífi. Hann fór til Finnlands
þar sem hann komst í kynni við
samlanda sinn sem var með finnsk-
an ríkisborgararétt. Sá hélt úti bíla-
partasölu og réði Bilal til vinnu við
að rífa í sundur bíla. Sá veitti hon-
um einnig húsaskjól. Bilal var með
öllu réttindalaus og því upp á náð
og miskunn vinnuveitanda síns
kominn.
Mynd | Rut
14 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016
Tollalækkun Salomon skór á enn betra verði en áður!
Verð
áður 49.995 kr.
nú 39.995 kr.
Salomon Quest
Origin GTX
Stærðir 36-48
lÍs en ku
ALPARNIR
s
SWALLOW 250
Kuldaþol: -8
þyngd: 1,7 kg.
11.995 kr. 9.596 kr.
MONTANA, 3000mm vatnsheld
2. manna 16.995 kr. 12.796 kr.
3. manna 19.995 kr. 15.996 kr.
4. manna 26.995 kr. 21.596 kr.
30%
SNJÓBRETTAPAKKAR
Góðar
fermingargjafir
FAXAFENI 8, SÍMI 534 2727
alparnir.is