Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 20.05.2016, Side 20

Fréttatíminn - 20.05.2016, Side 20
Á Íslandi búa um 15.000 Pól- verjar og segja þær Sylwia og Katarzyna að það sé fáránlegt að allt þetta fólk hafi engan stað til að hittast á. Þær hafa undanfarin ár skipulagt pop-up veitingaviðburðinn Polka Bistro en dreymir um að stofna pólskt veitingahús. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Sylwia og Katarzyna hafa verið vin- konur frá því að Katarzyna hringdi í Sylwiu og bað hana um að baka með sér köku. Ein kaka varð fljót- lega að pólsku matarboði sem varð svo að pop-up veitingastaðnum Polka Bistro. Ef draumar þeirra ræt- ast munu þær næst stofna pólskan veitingastað. Við settumst niður með kaffi og ræddum næsta matar- viðburð, pólska stéttaskiptingu og góð grill. Katarzyna: „Ég var frekar nýflutt til Íslands, með tvö lítil börn og var að deyja úr einmanaleika. Ég þráði félagsskap og hafði engan til að tala pólsku við. Þá fór ég að venja komur mínar í Samtök kvenna af erlend- um uppruna og heyrði af Sylwiu og hversu mikill snillingur hún væri í eldhúsinu. Mig langaði til að elda pólskan mat fyrir konurnar í félaginu og hringdi meðal annars í Sylwiu til að spyrja hvort hún gæti verið með og bakað köku.“ Sylwia: „Þetta var auðvitað ótrú- lega gaman. Eftir þetta fórum við að hittast reglulega og elda saman heima hjá einhverri okkar. Stund- um erum það bara við en stundum erum við margar.“ Katarzyna: „Ég var að detta í þunglyndi á þessum tíma en þessi kvöld björguðu lífi mínu. Ég elska Ís- land í dag og mér líður ótrúlega vel hérna og ég held að flestum Pólverj- um líði vel hérna. Lífið í Póllandi er erfitt því landið á sér erfiða sögu. Það kemur mér svo sem ekki á óvart að amma eigi erfitt með að brosa eftir allt sem hún hefur þurft að upplifa. En hugarfar Pólverja hjálp- ar ekki til við erfiðleikana, við get- um verið allt of neikvæð. Mér fannst svo mikill léttir að koma hingað og upplifa þetta jákvæða viðhorf til lífsins.“ Sylwia: „Það sem er svo erfitt í Póllandi er samkeppnin á milli fólks. Fólk á það til að vera biturt og öfundsjúkt ef það fær ekki allt sem efri stéttin fær. Það er þægilegt að búa í samfélagi eins og Íslandi þar sem stéttaskiptingin er ekki jafn mikil. Fólk er sjálfstæðara og öruggara hérna. En Pólverjar og Ís- lendingar eru samt að mörgu leyti líkir. Við erum mikið fjölskyldufólk og elskum að grilla og að vera úti í náttúrunni. Um leið og vorið kemur hlaupa Pólverjar út með grillin sín.“ Katarzyna: „Nú eru um 15.000 Pólverjar á Íslandi en við höfum engan stað til að hittast á, sem er fáránlegt! Það vantar svo pólskan veitingastað á Íslandi.“ Sylwia: „Akkúrat núna er ég að eyða öllum peningunum mínum í sumarhús í Póllandi en kannski í framtíðinni. Þetta er svo stórt sam- félag sem hefur engan samastað. Þegar ég var að vinna í London, sem framkvæmdastjóri á veitingastað, byrjaði ég fyrst að láta mig dreyma um að opna stað.“ Dreymir um að opna pólskan veitingastað Síðasti Polka Bistro viðburður var haldinn í garðinum við listasafn Einars Jónssonar. Ég var að detta í þunglyndi á þessum tíma en þessi kvöld björguðu lífi mínu. Ég elska Ísland í dag og mér líður ótrúlega vel hérna og ég held að flestum Pólverjum líði vel hérna. Katarzyna Maria Sosnowska Smáratorgi, Kópavogi Opið virka daga 11.00-18.00 Laugardaga 11.00-18.00 Sunnudaga 12.00-18.00 Vínlandsleið, Grafarholti Opið virka daga 11.00-18.00 Laugardaga 11.00-16.00 Sunnudaga 13.00-17.00 Markaður Smáratorgi Outlet Grafarvogi 60% 50% 50% 40% 40% LÁGMARKS- AFLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM NÚ 40%60% Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 Nevada Torino Mósel Roma Basel Rín Með nýrri AquaClean tækni er nú hægt að hreinsa nánast alla bletti aðeins með vatni! Erfiðir blettir eins og eftir tómatsósu, léttvín, kaffi, te, meira að segja kúlupenna, nást á auðveldan hátt úr áklæðinu. OG DRAUMASÓFINN ÞÍNN ER KLÁR GERÐ (90 mismunandi útfærslur) STÆRÐ (engin takmörk) ÁKLÆÐI (yfir 3000 tegundir) ÞÚ VELUR ÍSLENSKIR SÓFAR SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM Áklæði 20 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.