Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 20.05.2016, Síða 42

Fréttatíminn - 20.05.2016, Síða 42
Ein stór fjölskylda Ana Geppert segir íslensku hjólabrettasenuna ólíka þeirri á Spáni, veðurfar og aðstaðan spila stóra rullu Frá ellefu ára aldri stundaði Ana hjólabretti ásamt bræðrum sínum sem hún gefur ekkert eftir. Ana er þýsk, uppalin á Spáni en fyrir þremur árum fluttist Ana til Íslands. Landið tók henni opnum örmum og lengdi hún því dvölina. Hjólabretti er hennar helsti sam- göngumáti til og frá vinnum milli þess sem hún nýtir sér þá brettaað- stöðu sem borgin býður upp á. „Senan á Íslandi er gjörólík þeirri á Spáni. Bróður- part ársins þarf að stunda sportið inn- andyra, en á Spáni eru brettagarð- ar út um allt og með flestum almenningsgörðum fylgir brettasvæði. Þannig er mikið komið til móts við samfélagið.“ Á Íslandi er helsti brettagarðurinn í Dugguvogi en Brettafélag Íslands flutti aðstöðu sína þangað þegar það missti húsnæði sitt í Loftkastalanum. „Ég sé mikla möguleika fyrir brettasamfélag- ið, því mætti í raun gera meira fyrir það. Þetta sport heldur mörgum krökkum frá vandræð- um, það er svo margt jákvætt við það.“ Aðstaða er ekki það eina sem skilur íslensku senuna frá þeirri spænsku heldur einnig skortur á konum. „Ég hef ekki rekist á margar konur á mínu reki, hinsvegar virðast ungar stúlkur sækja íþróttina í vaxandi mæli. Í Barcelona er gríðarlega mikið af konum sem eru ótrúlega góðar og ég á ekki roð í. Ég gerði tilraun til þess að keppa á íslensku móti en flest allar konurnar skráðu sig úr keppni á síðustu stundu svo hún féll niður. Það sýnist mér vera að breyt- ast með ungu kynslóðinni, sem er frábært.“ Jóhann ásamt brettakrökkunum sínum. F.v: Boggi, Sölvi, Laufey, Jóhann, Arnar Freyr, Ásgeir Örn og Ísak. Ana Geppert hefur iðkað hjólabretti frá ellefu ára aldri. Hún segir margt jákvætt við íþróttina sem heldur krökkum frá vandræðum. Mynd|Rut Jóhann Óskar í Brettafélagi Reykjavíkur vinnur forvarnarstarf með hjólabrettaiðkun „Hjólabrettin verða örugglega alltaf á jaðrinum því þetta er kringlótt íþrótt. En það sem við reyndum að gera var að setja kringlótta íþrótt í kassa til að fá aðstöðu fyrir krakkana okkar að stunda hana“, segir Jó- hann Óskar Borgþórsson í Brettafélagi Hafnarfjarðar. Svo virðist sem hjólabrettahæfileikar séu fjölskyldu Jóhanns í blóð bornir. Þegar Fréttatímann bar að garði voru þar sjö einbeittir brettakrakkar á öllum aldri, börn Jóhanns og vinir þeirra. Sjálfur hefur hann stundað brettið í meira en tuttugu ár en réðst í stofnun Bretta- félags Hafnarfjarðar, ásamt foreldrum annarra brettakrakka, svo þeir gætu rennt sér í öruggri inniaðstöðu. „Þegar ég var krakki á bretti var maður oft í bílageymslum eða ein- hversstaðar þar sem maður gat lent í slæmum félagsskap,“ segir Jó- hann. Hann stendur því vaktina í húsi Brettafélags Hafnarfjarðar í Flatahrauni, þar sem fjölmargir krakkar geta æft sig á brettið óáreittir með þjálfara sem segir þeim til. „Hér er fullt af krökkum sem festust ekki í fótbolta eða öðrum íþróttum en finna sig á hjólabrettinu.“ Synir Jóhanns, þeir Ásgeir, Boggi og Arnar, eru á aldrinum 5 til 14 ára og hafa stundað íþróttina frá blautu barnsbeini. Brettið er eins og framlenging af þeim sjálfum þar sem þeir þeysa um rampana í Brettafélaginu. Jóhann segir starfið hafa forvarnargildi, enda ólíklegra að krakkar á fullu í íþróttum fari að fikta við áfengi eða eiturlyf: „Við erum að reyna að vinna gegn staðalímynd hjóla- brettagaursins. Hjólabrettaiðkun er íþrótt sem fær ekki þá viðurkenningu sem hún á skilið.“ Hjólabrettið heldur krökkum frá vandræðum Það þarf einbeittan vilja og ástríðu til að stunda hjólabretti á landi eins og Íslandi. Þó hefur hjóla- brettamenningin þrifist hér gegnum aðstöðuleysi, veður og vinda í meira en tuttugu ár og sífellt fjölgar krökkum sem finna sig á brettinu. Fréttatíminn ræddi við ástríðufulla hjólabrettaiðkendur á öllum aldri. Þó áherslur þeirra séu ólíkar eru þeir allir sammála um að meira þurfi að koma til móts við hjólabrettaiðkendur. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir salka@frettatiminn.is Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir svanhildurfrettatiminn.is er ástríða Hægt að skeita hvar sem er Ólafur Ingi Stefánsson er einn færasti hjólabrettakappi lands- ins og einn aðstandenda hjólabrettakompanísins Make. Ólafur Ingi eyðir flestum dögum á hjólabretti, enda snýst vinna þess sem vill verða atvinnumaður eða -kona á hjólabretti að miklu leyti um að vekja athygli brettafyrirtækja á sér og sínum stíl á brettinu, í þeirri von að fyrirtækin styrki hann eða hana með vörum: „Þú þarft að vinna keppnir og taka upp myndbönd af þér á brettinu og senda þau út. Í mínu tilviki var ég heppinn, þekkti starfsmann fyrirtækisins og fékk stórt tækifæri,“ segir Ólafur, sem hann fékk nýlega styrk frá hjólabrettafatnað- armerkinu HUF. Aðeins nokkrir íslenskir hjólabrettaiðkendur hafa fengið slíkan styrk, en Ólafur segir marga efnilega hjólabrettakappa á Íslandi: „Ef við hefð- um betri aðstöðu væri meiri möguleiki á að fara út í fagmennsku. Það er erfitt fyrir okkur að halda í við lönd þar sem yfirvöld styðja við þetta sport og byggja góða hjólabrettagarða.“ Ólafur hefur sömu sögu að segja og allir þeir sem hafa ástríðu fyrir að stunda hjólabretti af alvöru. Jafnvel þótt borgin hafi búið til aðstöðu til brettaiðkunar í Laugardal og víðar eru þau svæði lítið nýtt, enda var ekkert samráð haft við brettaiðkendur við byggingu þeirra. Þvert á móti var golfvallahönnuður fenginn til verksins í Laugardal. Aðstaða eins og sú í Laugardal er því beinlínis peningasóun, að mati vanra hjólabrettaiðkenda. Nú er uppáhalds árstími hjólabretta- iðkenda að hefjast og Ingólfstorg að fyllist af hjólum. Þó verður sumarið á Ingólfstorgi stutt fyrir þá enda verður torgið lagt undir EM þegar líður á sum- ar. Óli hefur þó ekki miklar áhyggjur af þeim missi, enda segir hann hægt að „skeita“ hvar sem er. Bara ef mann langar það nógu mikið. Ólafur Ingi Stefánsson segir marga efnilega hjólabrettakappa að finna á Íslandi. Mynd|Hari 42 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016 Helgarblað 8. apríl–10. apríl 2016 • 14. tölub lað 7. árgangur www.frettatim inn.is ritstjorn@fretta timinn.is auglysingar@fre ttatiminn.is Hemúllinn Fjölskyldufaðir í Breiðholti − pönkari á Austurv elli Mannlíf 62 Mynd | Hari Jóhannes Kr. Kr istjánsson 28 Panama-skjölin Viðhald húsa FRÉTTATÍMIN N Helgin 8.–10. ap ríl 2016 www.frettatimi nn.is Við getum tekið sem dæmi sólpa lla þar sem algenga sta aðferðin er að g rafa holur og steypa hólka. Með þess um skrúfum er ferlið mun einfaldara, öruggara og kostnaðarminna . 17 Dýrleif Arna Guðm undsdóttir, verkfræðingur hjá Áltaki. • Steinsteypa • Mynsturstey pa • Graníthellur • Viðhaldsefni • Stoðveggjake rfi • Múrkerfi • Einingar • Gólflausnir • Garðlausnir Fjárfesting sem steinliggur 20 YFIR TEGUNDIR AF HELLUM Hafðu samband í s íma og láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við að finna réttu l ausnina. 4 400 400 4400 600 4 400 630 4 400 573 Hringhellu 2 221 Hafnarfjörðu rHrísmýri 8 800 SelfossSmiðjuvegi 870 Vík Malarhöfða 10 110 Reykjavík Berghólabraut 9 230 Reykjanesbæ r Sími 4 400 400 www.steypustod in.is Húsið var herseti ð af köngulóm Auður Ottesen o g eiginmaður he nnar keyptu sér hús á Selfossi eftir hrun. Þau þ urftu að vinna b ug á myglusvepp i og heilum her af köngulóm en eru ánægð í e ndurbættu húsi í dag. Auk hússins hefur ga rðurinn fengið a ndlitslyftingu og nú eru þau að taka bílskúrin n í gegn. 8 Mynd | Páll Jökull Pétursson Sérblað Maðurinn sem fe lldi forsætisráðherr a Sven Bergman Illnauðsynleg aðferð í viðtalinu Sænski blaðama ðurinn 8 Ris og fall Sigmundar Upp eins og rake tta, niður eins og pri k Spilltasta þjóðin 10 Bless 18 332 ráðherrar í V estur-Evrópu 4 í skattaskjóli þa r af 3 íslenskir KRINGLUNNI IST ORE.IS Sérverslun með A pple vörur MacBook Air 13" Þunn og létt með rafh löðu sem dugar daginn Frá 199.990 kr. MacBook Pro Re tina 13" Alvöru hraði í nettri o g léttri hönnun Ótrúleg skjáskerpa Frá 247.990 kr. Mac skólabækur nar fást í iStore Kring lunni 10 heppnir sem versla Apple tæki frá 1. mars til 15. maí vin na miða á Justin Bieb er. www.sagamedic a.is SagaPro Minna mál me

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.