Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 20.05.2016, Page 56

Fréttatíminn - 20.05.2016, Page 56
barnanna leiða för og líkt og í öll- um ferðum Ferðafélags barnanna er gengið á forsendum barnanna, farið rólega og þess notið að vera úti í náttúrunni. Gott er að vera í göngu- eða íþróttafatn- aði, göngu- eða íþróttaskóm og klæða sig eftir veðri og taka með sér nesti í bak- poka. Boðið verður upp á glaðn- ing í síðustu göngunni. Nánari upplýsingar má finna á Facebook og heimasíðu SÍBS og FÍ. Þátttaka er ókeypis – allir velkomnir Guðrún Veiga Guðmundsdóttir gudrunveiga@amk.is Hildur Karen Sveinbjarnardótt- ir frá Seyðisfirði var ein af hinum fjölmörgu sem gengu á Hvanna- dalshnjúk um síðustu helgi við frá- bær skilyrði. „Ég var nú eiginlega plötuð út í þetta, haldandi að þessi ganga yrði aldrei að veruleika,“ segir Hildur Karen sem kveðst ekki hafa verið mikill göngugarp- ur eða fjallageit áður en hún skellti sér upp á Hvannadalshnjúk. „Ég missti til dæmis lífsviljann á Snæfellsjökli fyrir ekki svo löngu,“ segir Hildur Karen hlæjandi. En gangan á Snæfellsjökul var hluti af undirbúningnum fyrir hæsta tind Íslands. „Það er auðvitað mikil- vægt að undirbúa sig vel og það gerir maður með því að ganga á fjöll. Mælt er með því að taka fjóra mánuði í að búa sig undir gönguna á Hnjúkinn og fara á miserfið fjöll á því tímabili. Ég fór nú svolítið seint af stað, en með látum, eins og ég á til og var að taka aðra gönguæfinguna mína á Snæ- Göngugarpur Hildur Karen fór á Hvannadalshnjúk ásamt fleirum í frábæru veðri. Hildur Karen Svein- bjarnardóttir fór fremur geyst af stað þegar hún hóf að undirbúa sig fyrir göngu á Hvannadals- hnjúk Missti lífsviljann á Snæfellsjökli fellsjökli, sem var 9 tíma ganga í vondu veðri. Lífsvilji minn var ekki mikill á köflum.“ Hildur Karen hélt áfram æfing- um eftir ævintýrið á Snæfellsjökli og segir mikilvægt að vera hluti af góðum hópi til þess að gera fjallgöngur skemmtilegar. „Áður en gönguhópurinn sem myndað- ist í kringum þess ferð á Hvanna- dalshnjúk varð til hafði ég afar lítinn áhuga á fjallgöngum. Það er merkilegt hvað góður félagsskap- ur gerir mikið og núna verð ég að játa að mér þykir þetta sport ansi skemmtilegt,“ segir Hildur sem hikar þó þegar hún er spurð hvort hún ætli sér aftur á Snæfellsjökul. Gangan á hæsta tind Íslands reyndist auðveldari en Hildur Karen hélt. „Þessi ganga er alveg á allra færi, þó ég mæli eingöngu með að fara í góðu veðri. Það er ekkert stuð í þessu nema það sé gott útsýni og hægt að taka reglu- legar sólbaðspásur. Gangan sjálf var alls ekki erfið, nema kannski helst á leiðinni niður þegar það var komin sólbráð. Annars voru þetta stórskemmtilegir 15 tímar í frá- bæru veðri og góðum félagsskap,“ segir Hildur Karen sem ætlar sér í næstu göngu á Fimmvörðuháls í lok júní. Unnið í samstarfi við SÍBS og Ferðafélag Íslands Sameiginlegt mark-mið SÍBS og FÍ er að stuðla að bættri heilsu þjóðarinn- ar. Ferðafélag barnanna var stofnað til að hvetja börn og foreldra til útiveru og samveru í náttúru landsins en einnig má nefna fjallaverkefni FÍ og Biggest winner. Í starfi SÍBS er lögð áhersla á vitundarvakningu, endurhæf- ingu, virkni og fræðslu, samanber Reykjalundarnámskeið SÍBS, SÍBS blaðið og gönguáskoranir SÍBS með gönguklúbbnum Veseni og vergangi og nú einnig með FÍ og Ferðafélagi barnanna. Fararstjórar frá Ferðafélagi Sunnudagsgöngur fjölskyldunnar í júní SÍBS, Ferðafélag barnanna og Ferðafélag Íslands (FÍ) bjóða upp á gönguferðir á sunnudögum í júní fyrir alla fjölskylduna Dagskráin er sem hér segir: Sunnudagur 5. júní kl. 11 – 12.30 Nauthóll – gengið um í Öskjuhlíðinni Sunnudagur 12. júní kl. 11 - 12.30 Bílastæði við Rauðhóla – ratleikur í reit FÍ um Heiðmörk Sunnudagur 19. júní kl. 11 – 12.30 Árbæjarlaug – gengið um í Elliðaárdal Sunnudagur 26. júní kl. 11 – 12.30 Grótta – gengið um í fjörunni við Gróttu Góðar stundir Stoltir krakkar í Laugavegsgöngu Ferðafélags barn- anna í fyrrasumar. Dömubindi og bómull sem fara betur með þig og umhverfið …útivist 12 | amk… FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.