Fréttatíminn - 11.06.2016, Blaðsíða 2
Móðir mannsins segist hissa
á þeirri hörku sem inn-
heimtufyrirtæki á vegum
Landspítalans sýna við að
innheimta skuldir sem aug-
ljóslega fáist ekki greiddar
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
„Sonur minn fær reglulega póst
frá innheimtufyrirtækjum fyrir
meðferð á geðdeild og hótanir um
frekari aðgerðir verði ekki greitt,“
segir móðir manns á fertugsaldri
sem hefur um árabil glímt við geð-
sjúkdóm. Alls átti Landspítalinn
640 milljóna króna útistandandi
kröfur á einstaklinga í fyrra sam-
kvæmt ársreikningi, þar af voru 216
milljónir vegna ósjúkratryggðra.
Einungis fjórir af hverjum tíu sem
leita til geðdeildarinnar staðgreiða
komugjöldin.
„Sonur minn er iðnmenntaður
og vill vinna þrátt fyrir veikindin
en stendur ekki til boða að vinna
hlutastarf í sínu fagi og ræður ekki
við álagið sem fylgir fullri vinnu,“
segir hún. „Þá er hann ekki tilbúinn
til að sækja um örorkubætur.“
Móðir mannsins leigir fyrir hann
íbúð ásamt föður hans, en sjúk-
dómurinn auðveldar honum ekki
að ná endum saman eða hafa yf-
irsýn yfir skuldir. Hann er núna
í gjaldþrotameðferð en hún segir
erfitt að sætta sig við að Landspít-
alinn eigi hlut að máli með enda-
lausum bréfum frá
innheimtufyrirtækj-
um. Hún segist
vilja taka fram
að syni sín-
um hafi aldrei
verið neitað
um þjónustu
vegna þessa,
greiðsluseðl-
arnir fari bara
sína leið í kerf-
inu. Það
sé þó
ljóst
að
vanskil í hvaða mynd sem er séu
líkleg til að gera honum erfitt fyrir
að ná tökum á lífi sínu. „Mér finnst
þetta bara svo grimmt, ég er afar
ósatt við þetta,“ segir hún.
Ekki fæst uppgefið hversu stór
hluti af útistandandi kröfum
Landspítalans vegna komugjalda
er vegna sjúklinga sem hafa leitað
til geðsviðs, en minnihluti þeirra
staðgreiðir komugjöldin sem gæti
bent til þess að þetta sé út-
breitt vandamál.
Sigrún Guðjónsdóttir,
deildarstjóri innheimtu
og fjársýslu Landspít-
ala, segir að alls lendi
um fjórðungur sjúk-
linga í vanskilum vegna
komugjalda. Sjúklingar
sem ekki staðgreiða fá
innheimtuseðil og sé
hann ekki greiddur fari
skuldin í milliinnheimtu
hjá Íslandsbanka, sem
sendir út tvo greiðsluseðla.
Fáist þeir ekki greiddir tekur
lögfræðiinnheimta við.
Mansal „Við ætlum að fara
og kæra hann í vikunni,“
segir Bilal Fathi Tamimi
sem hyggst kæra finnskan
mann, Yosef Benani, fyrir
vinnumansal þegar hann
var fjórtán ára gamall.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn
Bilal var sleppt úr finnsku fangelsi
á mánudaginn eftir að réttað var
yfir honum vegna ásakana um að
hann hefði gengið í skrokk á mann-
inum, sem Bilal segir að hafi þrælað
sér út á unglingsaldri við að rífa í
sundur bílhræ.
Bilal flúði hingað til lands þegar
hann var fimmtán ára gamall, eins
og Fréttatíminn greindi frá í maí, en
sjálfur er hann ríkisfangslaus.
Bilal mátti dúsa í fangelsi í tvær
vikur í Finnlandi á meðan hann
beið þess að réttað yrði í málinu.
Réttarhöldin fóru fram á mánu-
daginn.
„Þetta var kannski sérkennilegt
að því leytinu til að öll vitni báru
fyrir sig minnisleysi, og menn virt-
ust ansi hræddir við Yosef,“ segir
Ida Jensdóttir, tengdamóðir Bilal,
en hún og unnusta Bilal, Kolgríma
Gestsdóttir, hafa verið úti í Finn-
landi síðan hann var framseldur.
Bilal játaði undanbragðalaust að
hann hefði gengið í skrokk á mann-
inum þegar hann var fimmtán ára,
en ástæðan var sú að hann krafð-
ist þess að fá greitt fyrir vinnu sína
eftir að hafa starfað hjá mannin-
um í tæpt ár. Nokkuð ber í milli
þegar kemur að frásögn Bilal og
mannsins, sem segir Bilal, ásamt
eldri manni sem einnig fékk ekki
greitt, hafa lamið sig illa, hellt yfir
sig bensíni og rænt 1400 evrum og
bíl af sér.
„Við gátum fylgst ágætlega með
þar sem við vorum með íslenskan
túlk,“ segir Ida um réttarhöldin og
bætir við: „Og þarna kom í ljós að
framburður Yosef stangaðist á við
fyrri framburð hans.“
Ida segir dómarann, sem var
kona, hafa virst skilningsrík á að-
stæður Bilal og dæmdi hann í skil-
orðsbundið fangelsi. Hann er því
laus allra mála, haldi hann skilorð.
Dómurinn sjálfur verður þó ekki
kveðinn upp fyrr en 21. júní. Það
breytir því þó ekki að Bilal og fjöl-
skylda koma hingað til lands í dag,
föstudag.
Bilal er sáttur við úrslit málsins.
„Ég er bara ánægður með að þessu
sé lokið,“ segir hann.
Tónlistarflakk í Hörpu
Víkingur Heiðar býður til
hátíðarinnar í fimmta sinn.
Það styttist í björtustu daga ársins
og um það leyti fer tónlistarhátíðin
Reykjavík Midsummer Music fram í
Hörpu, dagana 16.-19. júní. Á hátíð-
inni verður boðið upp á fjölbreytt
ferðalög um forvitnilega heima tón-
listar frá ýmsum tímum. Þema há-
tíðarinnar að þessu sinni er flakkið
á hinum frjálsa förusveini eða
„Wanderer“ eins og hann þekktur
úr tónlistarsögunni. Farið er víða, út
í geim og inn í sálina.
Listamennirnir á hátíðinni koma úr ýmsum heimshornum og safn-
ast saman undir forystu Víkings Heiðars Ólafssonar, píanóleikara og
listræns stjórnanda hátíðarinnar. Fréttatíminn er samstarfsaðili há-
tíðarinnar og fagnar samstarfinu. Allar nánar upplýsingar er að finna
á slóðinni reykjavikmidsummermusic.com. | gt
Eftirsóttar lúxusíbúðir á Nesinu
Dýrustu íbúðirnar rifnar út
Íbúðirnar eru glæsilegar og staðsetningin eftirsótt.
Fasteignaviðskipti Flestar íbúðir í nýju glæsi-
húsi við Hrólfsskálamel seldust fyrir metverð
eftir að hafa verið boðnar til sölu í rúman
mánuð
Dýrustu íbúðirnar í nýju 34 íbúða fjölbýlishúsi á Sel-
tjarnarnesi fóru á annað hundrað milljónir. Alls er um
að ræða 34 íbúðir en einungis þrjár íbúðir á jarðhæð
eru óseldar.
Mikil eftirspurn var eftir íbúðunum en dýrustu
íbúðirnar eru glæsilegar þakíbúðir, sex herbergja með
bílskúr. Íbúðirnar seldust upp á um það bil mánuði, en
engum samningum hefur verið þinglýst.
Pétur Hannesson hjá Upphafi, fasteignafélagi sem eru
í eigu sjóðs á vegum Gamma, sagðist ekki staðfesta neitt
um kaupverðið enda væri um kauptilboð að ræða. Við-
skiptin hefðu formlega ekki farið fram og því ekki hægt
að fullyrða um endanlegt kaupverð. Samkvæmt heim-
ildum Fréttatímans er kunnur lýtalæknir í borginni
einn þeirra sem hefur fest sér þakíbúð í húsinu fyrir um
150 milljónir. Það fékkst þó ekki staðfest. | þká
Kærir vinnumansal sem hann lenti í sem unglingur
Bilal og Kolgríma, unnusta hans, en
þau eru úti í Finnlandi ásamt móður
Kolgrímu.
Bilal var 14 ára
gamall þegar hann
lenti í vinnumansali
í Finnlandi. Hann
ætlar að kæra atvik-
ið til lögreglu.
14
Samgöngur Framsóknar-
maður mótmælir umferð
ökutækja yfir Fossvogsbrú
„Við í Framsókn teljum að strætó
eigi ekki að fara yfir þessa brú, en
vagnarnir geta auðvitað stoppað við
brúarsporðinn sitt hvoru megin,“
segir Kristinn Dagur Gissurarson,
varabæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins í Kópavogi, en hann bók-
aði sérstaklega mótmæli á fundi
bæjarráðs síðasta fimmtudag, við
því að strætisvögnum yrði hleypt
yfir fyrirhugaða brú yfir Fossvog-
inn. Bæjarfulltrúi Vinstri grænna
tók undir það.
Hugmyndin um brúna var fyrst
kynnt árið 2013 og var þá kynnt
sem göngu- og hjólabrú með
möguleika á strætisvagnaumferð.
Um er að ræða samstarfsverkefni
á milli Reykjavíkurborgar og Kópa-
vogs og virðist nokkur áhersla á að
strætó geti nýtt sér leiðina, sem
styttir allverulega ferðatímann yfir
í Kópavog
„Maður óttast líka hvað gerist ef
það er opnað á þetta. Til að mynda
hvort leigubílaumferð eða annað í
þeim dúr myndi fylgja á eftir,“ segir
Kristinn Dagur en á fundinum var
samþykkt að stofna starfshóp um
framkvæmdina. | vg
Vill ekki strætó
yfir Fossvogsbrú
Ungur maður með geðsjúkdóm í gjaldþrotameðferð
Hótunarbréf vegna
skuldar við geðdeild
Innheimtuseðlar frá Landspítala
vegna komugjalda á geðsvið.Fjórðungur lendir í vanskilum
Samkvæmt upplýsingum frá
Landspítalanum staðgreiða
um 76 prósent sjúklinga
komugjöldin að meðaltali á
spítalanum. Á geðdeildinni
staðgreiða hinsvegar einungis
40 prósent sjúklinganna og
60 prósent á bráðadeildum.
Á hverju ári afskrifar spít-
alinn um 3 til 4 prósent van-
goldinna komugjalda.
2 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 11. júní – 12. júní 2016
Grillbúðin
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
gasgrill 3ja brennara
Niðurfellanleg
hliðarborð
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveiking í öllum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrað lok
• Postulínsemaleruð efri grind
• Hitamælir
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Vönduð yfirbreiðsla fylgir
• Afl 10,5 KW
Á R A
grillbudin.is
AFMÆLISTILBOÐ
79.900
VERÐ ÁÐUR 98.900
50 áraAFMÆLISTILBOÐ
Nr. 12934
Brúin var fyrst
kynnt árið 2013,
en ekki er búið
að samþykkja
endanlegt útlit
hennar.