Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 11.06.2016, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 11.06.2016, Blaðsíða 40
…ferðir kynningar 16 | amk… LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2016 Unnið í samstarfi við Ferðafélag Akureyrar Ferðafélag Akureyrar er áhugamannafélag sem tel-ur um 400 meðlimi og rek-ur nokkra skála hálendinu. Félagið hélt upp á 80 ára afmæli sitt í apríl á þessu ári og á afmæl- isárinu er að sjálfsögðu boðið upp á úrval fjölbreyttra ferða. Um 80 skipulagðar ferðir eru skráðar í ferðaáætlun ferðafé- lagsins á þessu ári, svo það er af nógu að taka og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Öskjuvegurinn vinsæll „Við bjóðum upp á miserfiðar dagsferðir og lengri ferðir, eins og Öskjuveginn, sem er frábær ferð. Svo bjóðum við upp á skíðaferðir á veturna,“ segir Hilmar Antonsson hjá Ferðafélag Akureyrar. Allir eru velkomnir í ferðirnar, hvort sem þeir eru félagsmenn eða ekki. Hilmar segir Öskjuveginn vera vinsæla leið en hann er hægt að fara á tvo vegu. „Það er hægt að ganga úr Herðubreiðarlindum í Bræðrafell, þar sem við erum að byggja nýjan skála, sem við vonumst til að geta tekið í notkun í sumar. Þá verðum við komin með 16 manna skála á öllum Öskjuveginum. Svo er hægt að byrja í Bræðrafelli, ganga þaðan í Drekagil og niður í Botna. Dagleið- irnar eru um 17 til 20 kílómetrar.“ Aðspurður hvort fólk þurfi ekki að vera í þokkalegu gönguformi til að fara þessa leið, segir Hilmar það betra. En ferðafélagið býður þó upp á farangursflutninga á milli skála, sem léttir á göngunni. Skemmtilegar kvöldgöngur Fyrir utan Öskjuveginn eru vinsælustu ferðirnar hjá ferða- félaginu gönguferðir á fjöllin í kringum Eyjafjörðinn. Til dæmis upp á Kerlingu, sem er töluvert krefjandi ganga. Þá hafa kvöld- göngur félagsins einnig verið að festa sig í sessi og hafa notið töluverðra vinsælda. „Þetta eru göngur af ýmsum toga, til dæmis giljagöngur. Þá er farið af stað klukkan átta og gengið fram á kvöld. Við reynum að vera með staðkunnuga fararstjóra í öllum ferðunum okkar svo fólk getur notið þess að ganga undir smá leiðsögn.“ Góð þátttaka í Þaula-verkefni Líkt og fyrri sumur er í gangi hjá ferðafélaginu svokallað Þaula- -verkefni, þar sem þátttakendur safna stimplum á ákveðnum stöð- um sem þeir heimsækja. „Fólk fær líka bók þegar það byrjar og skrifar í hana ákveðin stikkorð. Það hefur verið gríðarlega góð þátttaka í þessu verkefni,“ segir Hilmar og ekki spillir fyrir að frá- bær verðlaun eru í boði fyrir þá sem bera sigur úr býtum. „Í tilefni 80 ára afmælisins ákváðum við að gefa eina ferð á Öskjuveginn með ferðafélaginu sem verður örugg- lega um 70 þúsund króna virði á næsta ári. Svo eru smærri vinn- ingar sem styrktaraðilar leggja okkur til.“ Kvöldgöngur njóta vinsælda Ferðafélag Akureyrar fagnar 80 ára afmæli og býður upp á úrval fjölbreyttra ferða á Norðurlandi Bræðrafell Ferðafélagið er að byggja nýjan skála í Bræðrafelli sem fer vonandi í notkun í sumar. Sumarsólstöður Frá ferð ferðafélagsins á Múkollu á sumarsólstöðum.Vinsælt Giljagöngur eru farnar bæði á daginn og á kvöldin, en vinsældir kvöldganga eru alltaf að aukast. Laufskálshnúkur Allir eru velkomnir í ferðir á vegum Ferðafélagsins, hvort sem þeir eru félagar eða ekki. Unnið í samstarfi við Akureyrarbæ Aðdráttarafl Akureyr-ar er margvíslegt og bærinn einstaklega fallegur, bæði af manna og náttúrunnar höndum. Gaman er að rölta um innbæinn og kíkja í Nonnahús og á Minjasafnið, njóta sumarsins í Lystigarðinum eða leika sér í Sundlaug Akureyr- ar sem er ein flottasta sundlaug landsins. Iðandi hafnarstemning er að skapast við Torfunefið í miðbænum og Íslensku sumar- leikarnir eru meðal nýjunga sem bærinn býður upp á í sumar. „Veðrið er búið að vera dásam- legt og lítur út fyrir að það verði gott í allt sumar,“ segir Ragnar Hólm Ragnarsson, kynningarfull- trúi Akureyrarbæjar. Gleðifréttir, ekki bara fyrir heimamenn, heldur einnig þá fjölmörgu ferðamenn sem ætla að heimsækja Akureyri í sumar. „Akureyri er smám saman að verða ein höfuðhöfn hvalaskoðun- ar á Íslandi. Eyjafjörður er lengsti fjörður landsins og býður upp á frábærar aðstæður til hvala- skoðunar fjarri þungum undiröld- um úthafsins eða þegar menn eru að sigla fyrir opnu hafi. Amba- ssador og Whale watching Akur- eyri eru að koma sér vel fyrir núna við Torfunefsbryggju þar sem eru komnar nýjar landfyllingar og flotbryggjur í dokkinni við Menn- ingarhúsið Hof. Þar er að mynd- ast skemmtileg hafnarstemning,“ segir Ragnar. Í sumar gefst fólki einnig tæki- færi til að sigla til Grímseyjar við heimskautabaug beint frá Akur- eyri. Fyrirtækið Ambassdor býður upp á siglingar frá Torfunefs- bryggju til Grímseyjar á afar hrað- skreiðu skipi. Hvalir eru skoðaðir á leiðinni út í eyju en á áfanga- stað er boðið upp á fiskisúpu að hætti heimamanna á meðan sagt er frá sögu Grímseyjar á leikræn- an hátt og á heimleiðinni má njóta einstakrar fjallasýnar og sólarlags. Ragnar segir einnig að heim- sókn í Hrísey þurfi að vera á dag- skrá allra sem koma í Eyjafjörð. Þangað er aðeins 15 mínútna sigling frá Ársskógssandi. „Hrísey er perla sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Þar er fallegt og friðsælt og auðvelt á aftengjast dagsins amstri og njóta þess bara að vera til.“ Meðal spennandi viðburða sumarsins er Vaka þjóðlistarhá- tíð sem haldin er dagana 15.- 18. júní með tilheyrandi tónleikahaldi, námskeiðum og samspilastund- um. Listasumarið hefst 16. júlí og stendur fram að Akureyrarvöku og Íslensku sumarleikarnir verða haldnir um verslunarmanna- helgina í stað hátíðarinnar Einnar með öllu. „Á Íslensku sumarleikunum verða hjólreiðar, hlaup, sund, fjallgöngur, leikir og alls konar útivist í brennidepli. Nefna má heimsmótaröð unglinga í golfi, Súluhlaup, fjallahjólakeppni og strandblakmót og heilmargt fleira, en bærinn mun iða af lífi frá morgni til kvölds. Markmiðið er að fjölskyldan öll fái notið sín í heilnæmu umhverfi og leiki sér saman,“ segir Ragnar. Frábært sumar framundan Iðandi hafnarstemning, einstök miðbæjarstemning og gott veður á Akureyri í sumar Iðandi mannlíf Búast má við iðandi mannlífi á Akureyri í sumar þar sem margt spennandi er um að vera og spáð er góðu veðri. Einstakt Dásemdir Akureyrar við sólsetur. Myndir: Ragnar Hólm Ragnarsson Sívinsæl Sundlaug Akureyrar er ein af bestu sundlaugum landsins og vinsæll áfangastaður ferðalanga. Ljósmyndari Ragnar Hólm Ragnarsson

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.