Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 11.06.2016, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 11.06.2016, Blaðsíða 30
Krydd & Tehúsið er einstök sérverslun með krydd sem mun án efa auka fjölbreytni í ís- lenskri matargerðarlist. Kryddin eru marg- vísleg og sum hver framandi og ættu allir sem leggja metnað í matreiðslu að láta það eftir sér að líta við í Krydd & Tehúsinu í Þverholti 7 Ólöf Einarsdóttir og Ormy Avraham reka Krydd & Tehúsið í Þverholti. Þar er einstakt úrval af sérinnfluttu kryddi og framandi kryddblöndum. Unnið í samstarfi við Krydd & Tehúsið Einstakt úrval af sérinn-fluttu kryddi og framandi kryddblöndum er sérkenni verslunarinnar Krydd & Tehúsið sem hjónin Ólöf Einars- dóttir og Ormy Avraham reka í fallegu gráu húsi í Þverholti. Þau flytja jafnframt sjálf inn kryddin sem flest er hvergi hægt að finna annarsstaðar. „Kryddið er okkar sérstaða en við erum líka með flott úrval af tei, heilsusamlegan nammibar, morg- unkorn og aðra sælkeravöru,“ segir Ólöf. Áhersla er lögð á umhverfis- vernd og býðst fólki að kaupa kryddin og aðra lausavöru umbúð- alaust en yfir 70 vörutegundir eru seldar í lausavigt. „Umbúðalaus viðskipti hafa fallið vel í kramið hjá fólki, auk þess sem flestar okkar vörur koma beint frá býli, þar sem við reynum að versla helst við litla aðila á markaði með áherslu á „fair-trade“.“ Kryddblöndurnar sem má finna í Krydd & Tehúsinu eru nýjung á Íslandi og má þar á meðal nefna sérstakar blöndur sem hægt er að blanda saman við hrísgrjón og kínoa og gerir eldamennsk- una auðveldari. Auk þess eru á boðstólum krydd- og grillsósur að hætti hússins sem henta sérstak- lega vel á þessum árstíma. Í Krydd og Tehúsinu geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi, þar á meðal „take-away“ súpur. „Við bjóðum núna upp á 3 nýjar súpur ásamt nýbökuðu súrdeigsbrauði. Við munum einnig bjóða upp á hummus á fimmtudögum sem fólk getur tekið með heim.“ Þar að auki eru haldin kynn- ingarkvöld í versluninni sem hafa notið mikilla vinsælda eru vel sótt. „Á slíkum kvöldum kynnum við framandi krydd og erum með sýnikennslu í einfaldri en ljúffengri matreiðslu. Við breytum einföldu hráefni í gómsæta hollustu með því að nota gæða krydd, jurtir, ávexti, fræ og hnetur frá náttúr- unnar hendi. Alls konar smakk er í boði og að lokum geta allir verslað að vild með 10% afslætti. Svona kvöldstund kostar 1.000 krónur á mann,“ segir Ólöf. Framandi krydd í tilveruna Fyrir sex til átta 800 g lambahakk 3 hvítlauksrif 1 tsk broddkúmen 1 tsk kóríander 1 tsk paprikuduft 1 msk mynta 1 msk steinselja 3-4 msk jómfrúarolía salt og pipar 1 avókadó 1 haloumiostur sólþurrkaðir tómatar 1 rauður laukur nokkrar radísur blandað salat 6-8 pítubrauð „Ekta“ pítusósa 4 msk majónes 2 msk sýrður rjómi 1 tsk óreganó 1 tsk majoram 1 tsk ferskt timían hlynsíróp ef vill salt og pipar 1. Setjið lambahakk í skál og blandið saman við það möluðu broddkúmeni, kóríanderdufti, paprikudufti og maukuðum hvít- lauk. 2. Blandið smátt söxuðum krydd- jurtum, jómfrúarolíu, salti og pipar saman við og hnoðið vandlega saman. 3. Hafið meðlætið tilbúið á diski svo kjötið og brauðið þurfi ekki að bíða. 4. Mótið kjötið í buff og grillið þar til kjötið er eldað í gegn (tvær til fjórar mínútur á hvorri hlið – háð þykkt buffsins). Leggið til hliðar. 5. Skerið ostinn í sneiðar, penslið með jómfrúarolíu og grillið í 30-60 sekúndur á hvorri hlið (háð þykkt). 6. Vætið pítubrauðin og skellið á grillið. Eldið þar til þau blása upp. Fyrir pítusósuna Setjið majónes í skál ásamt sýrðum rjóma. Látið óreganó, majoram og timían saman við. Smakkið til með salti og pipar (stundum þarf að sæta svona sósur lítillega og þá er gott að nota hlynsíróp). Ljúfar lambapítur læknisins Ragnar Freyr Ingvarsson er snillingur við grillið, eins og sannast á nýjustu matreiðslubók hans, Grillveislunni. Hér leggur hann okkur til frábæra uppskrift fyrir helgina Pítur draga heiti sitt af brauðinu sem þær eru bornar fram í. Saga þessa brauðs er löng og nær aftur til Mesópótamíu 2.500 árum fyrir Krists burð. Það er ekki sérlega flókið að baka þessi brauð sjálfur en hér stytti ég mér leið og kaupi þau hálfbökuð úti í búð – þá þarf bara að hressa þau aðeins við. Best er þá að væta brauðin að- eins með vatni og setja rök inn í blússheit- an ofn eða á rjúkandi grillið. Oftast er okkar ljúf- fenga lambakjöt vissulega snætt í heilum steikum, en lambahakk unnið úr framparti eða slög- um getur sannarlega lagt grunninn að góðri veislu- máltið eins og hér er gert. Með þessum rétti er síðan gerð sósa sem margir kann- ast við – pítusósa. Hún er lygilega einföld að útbúa og ekki nokkur einasta ástæða til að kaupa tilbúna sósu út úr búð, gleymið henni. Læknirinn í eldhúsinu Ragnar Freyr Ingvarsson hefur bloggað um mat og matargerð um árabil sem Læknirinn í eldhúsinu. Lambapítur með grilluðum haloumi, avókadó og „ekta“ pítusósu 6 | amk… laugardagur 11. júní 2016…matur kynningar

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.