Fréttatíminn - 11.06.2016, Blaðsíða 26
20% afsl.
af öllum stökum
Úlpum,
Jökkum,
Kápum
Lykillinn að farsælu
hjónabandi
Freddie Prinze Jr. og Sarah
Michelle Gellar urðu strax vinir þegar
þau léku saman í myndinni I Know
What You Did Last Summer árið 1997.
Það var svo ekki fyrr en árið 2000
sem þau urðu kærustupar. Þau hafa í
dag verið gift í 14 ár og eiga saman 2
börn og allt gengur ljómandi vel hjá
þessum hjónum. Freddie sagði
Huffington Post að lykillinn að því að
halda eiginkonu sinni hamingjusamri
væri í gegnum magann. „Ég elda og
þríf. Þannig að þegar komið er kvöld
og þig langar að gera eitthvað með
frúnni þá svarar hún ekki „ah, ég er of
þreytt ástin“,“ sagði Freddie og hló.
Channing Tatum á leið í skóla
Hinn 36 ára gamli leikari Channing Tatum er að fara endurmenntun-
arnámskeið í Harvard Business School, en hann mun vera þar allan
júnímánuð. Channing sagði í viðtali við New York Times árið
2014 að hann hafi alltaf litið á sig sem slakan nemanda, en
hann er lesblindur með ADHD. „Það að ganga illa í skóla á
barnsaldri ruglar mann alveg í ríminu. Þú ert kannski settur í
bekk með börnum sem eru með einhverfu eða Downs
heilkenni og horfir í kringum þig og hugsar: „Já ég skil, ég
er svona.“ Ef þú ert svo með venjulega bekknum þínum í
stofu líturðu í kringum þig og hugsar: „Ég er augljós-
lega ekki eins og þau heldur.“ Þú upplifir svolítið að
passa hvergi inn af því þú ert öðruvísi,“ sagði
Channing í þessu viðtali. Channing er spenntur
fyrir náminu og sagði í viðtali að hann hefði aldrei
misst áhugann á námi þrátt fyrir erfiðleika.
Madonna orðlaus
Það er örugglega fátt sem gerir drottningu
poppsins, Madonnu, orðlausa. Það gerðist
þó samt á dögunum þegar Madonna hitti
forseta Bandaríkjanna, Barack Obama.
Madonna deildi mynd af þeim saman á
Instagram þar sem hún viðurkennir að
hafa orðið alveg orðlaus þegar hún hitti
hann. Madonna og Obama hittust
baksviðs í þætti Jimmy Fallon og
Madonna fékk mynd af sér með forsetan-
um. Undir myndina skrifaði hún svo: „Í
fyrsta skipti gerist það að ég er orð-
laus……. Obama forseti.“
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Ég vissi ekkert hvað ég var að fara út í. Hvort ég væri að fara að keppa í fótbolta á háhæluðum skóm, eða hvað,“ segir
Arna Ýr Jónsdóttir, Ungfrú Ísland
og nýkrýnd Ungfrú EM., Keppn-
in Miss EM er haldin á fjögurra
ára fresti í tengslum við EM í
knattspyrnu og var Örnu boðið að
vera með í ár vegna þátttöku ís-
lenska landsliðsins í mótinu.
Bjóst alveg við að vinna
„Ég fékk boð um að taka þátt í
þessari keppni í janúar á þessu ári
en skilaboðin fóru í „spam“ hólfið
á facebook. Yfirleitt fær maður sím-
töl með svona tilboðum en þetta
fór í gegnum facebook. Ég var svo
bara heppin að rekast á skilaboðin í
mars og sagði strax já.“
Þrátt fyrir að Arna vissi lítið við
hverju hún sagði já, þá skýrðist
það fljótlega, enda skipulagið á
keppninni mjög gott og upplýs-
ingagjöfin til fyrirmyndar, en Miss
EM er í eigu Miss Germany cor-
poration.
Aðspurð segist Arna alveg eins
hafa búist við því að vinna, enda
það tilgangurinn með því að taka
þátt. „Ég ætlaði mér að vinna og
bjóst alveg við því að geta staðið
mig vel. Þetta var lítil keppni og
ég er með góða enskukunnáttu.
Stelpurnar töluðu reyndar allar
þýsku og ég hélt á tímabili að ég
væri út úr myndinni vegna þess.
Ég væri utanaðkomandi og talaði
ekki tungumálið. Hélt að það væri
klíka í þessu,“ segir Arna, en í ljós
kom að svo var ekki. Hún fékk svo
að vita það síðar að hún hefði ver-
ið með helmingi fleiri stig en kepp-
andinn í öðru sæti.
Með einka sundlaug
Arna fer út aftur í lok júlí þar
sem hún mun starfa fyrir Miss
Germany corporation í tvær vikur
í ýmsum verkefnum. Og það mun
ekki væsa um hana á meðan.
„Ég fæ svítu á fimm stjörnu
hóteli með einka spa og sundlaug
uppi á toppnum á byggingunni og
einka líkamsræktarstöð. Svo fæ ég
kort og má kaupa það sem ég vil.
Þau koma fram við mig eins og al-
gjöra drottningu. Það verður gam-
an að fá að upplifa það í tvær vik-
ur,“ segir Arna sem að öllu jöfnu
er bara venjuleg stelpa sem vinnur
í World Class og stundar nám í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti,
en hún stefnir á að útskrifast um
jólin.
Sátt við allar ákvarðanir
Arna frestaði útskriftinni sinni
vegna þátttöku í Miss World í lok
síðasta árs og segist alls ekki sjá
eftir því. Hún var reyndar farin að
dragast aftur úr í náminu vegna
flutninga til Akureyrar og stífra
æfinga með landsliðinu í frjálsum
íþróttum. „Ég er vön að elta mína
drauma og skólinn er þarna alltaf,
en ekki líkaminn, íþróttirnar og
þessar keppnir. Ég er glöð með allt
sem ég hef gert og allar ákvarðan-
ir sem ég hef tekið. Ég veit hvað ég
ætla að gera í framtíðinni og liggur
ekkert á,“ segir Arna sem stefnir á
að verða ljósmóðir. „Ég er búin að
fá að ferðast mikið og fá að upplifa
meira en flestir jafnaldrar mínir
og ég hefði alls ekki vilja missa af
því.“
Fær að lifa eins og
drottning í tvær vikur
Arna Ýr Jónsdóttir var krýnd Ungfrú EM á dögunum. Hún fær afnot af
svítu með öllu tilheyrandi og kort til að kaupa það sem hugurinn girnist á
meðan hún sinnir verkefnum fyrir keppnina
Ungfrú EM Arna Ýr bjóst alveg eins við að þurfa að spila fótbolta á hælaskóm þegar hún sagði já við þátttöku í keppninni. Mynd | Rut
Ég fæ svítu á fimm stjörnu
hóteli með einka spa … Svo fæ
ég kort og má kaupa það sem ég vil.
Söngkonan Demi Lovato er
óhrædd við að vera hún sjálf
og í viðtali í People Magazine á
dögunum ræddi hún opinskátt
um kynhneigð sína, sem henni
finnst óþarfi að skilgreina. Hún
hefur áður gefið í skyn að hún
væri tvíkynhneigð en var enn op-
inskárri í viðtalinu. „Mér finnst
kynhneigð bara eitthvað sem er
óþarfi að skilgreina. Þetta snýst
einfaldlega um að ná sérstökum
tengslum við aðra manneskju og
það skiptir ekki máli af hvaða
kyni hún er.
Aðspurð um afstöðu sína til
samfélags hinsegin fólks og bar-
áttu þess fyrir réttindum sínum,
sagðist Lovato vera mjög ástríðu-
full baráttukona, enda væri um
mikilvæga baráttu að ræða. „Að
vera öðruvísi í Texas, eða einhver
staðar í Suðurríkjunum, getur
verið mjög erfitt. Fólk getur orðið
fyrir miklum fordómum. Ég er
hins vegar alin upp við að það sé
ekkert að því að vera trans eða
laðast að fólki af sama kyni. Fólk
í kringum mig segir einfaldlega:
„Takk fyrir að vera þú sjálf.“ Mitt
svar við því er: Það er bara eitt-
hvað sem allir eiga að gera.“
Skilgreinir ekki kynhneigð sína
Demi Lovato segir kynhneigð fólks ekki skipta máli
Baráttukona Lovato
tekur þátt í baráttu
hinsegin fólks og segir
hana mikilvæga.
…fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2016