Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 11.06.2016, Side 6

Fréttatíminn - 11.06.2016, Side 6
árið 2020, en til að ná sama hlut- falli yrði Íslendingar að vera komnir í 24.000 bíla eftir fjögur ár. Fjöldi rafbíla í dag er 710 en var 315 í lok árs 2014. Á Íslandi hafa ýmis gjöld og skatt- ar verið lögð niður tímabundið og má leggja í stæði einn og hálfan tíma endurgjaldslaust. Píratar hafa ályktað í eigin hóp um rafbílavæð- ingu og telja að helstu tálmanir séu skortur á hleðslustöðvum. Í þingsá- lyktunartillögu til aðgerðaráætlun- ar um orkuskipti, sem lögð hefur verið fram af ríkisstjórnarflokkun- um, er gert ráð fyrir að rafhleðslu- stöðvar verði nægjanlegar til að mæta fjölda rafbifreiða árið 2020, en ekki er sagt hve margar þær skuli vera. Á að veita 67 milljónum króna úr ríkissjóði næstu þrjú árin til uppbyggingar innviða fyrir raf- bíla hérlendis Í Noregi er reiknað með að þar þurfi að byggja 5000 nýjar hleðslustöðvar á hverju ári. 12 hraðhleðslustöðvar eru á Íslandi, þar af helmingurinn á höfuðborgar- svæðinu og tvær á Akureyri. Þá eiga að vera raftenglar í öllum höfnum árið 2025 og að 10 prósent skipa gangi fyrir rafmagni árið 2030. Húsvíkingar hafa nú tekið ann- að rafdrifna hvalaskoðunarskipið í notkun, en hvert rafskip sparar eldsneyti á við 30 fólksbíla. Henta vel á Íslandi Þingsályktunartillagan var lögð fram af ríkisstjórnarflokkunum í vor, en ekki tókst að afgreiða hana fyrir sumarfrí. Katrín Jakobsdótt- ir, formaður Vinstri grænna segir: „Það eru mörg jákvæð skref í þessari áætlun, en ég tel að ekki sé gengið nógu langt, Ísland ætti að vera orðið kolefnishlutlaust árið 2050. Rafbíl- arnir eru mjög mikilvægur hluti af þessu, við erum búin að setja okkur sama markmið um samdrátt í losun og Norðmenn og ættum að fylgjast vel með þeirra aðgerðaáætlun.“ Noregur og Ísland hafa bæði skuldbundið sig til að minnka los- un gróðurhúsalofttegunda um 40 prósent fyrir árið 2040. Sáttmálinn hefur ekki enn öðlast lagalegt gildi á Íslandi, en stefnt er að því að Alþingi taki málið fyrir í haust. Olíuverð fer nú hækkandi í fyrsta sinn í meira en ár, sem aftur bein- ir sjónum að nauðsyn þess að finna nýjar lausnir á orkuþörfum heims- ins. Norðmenn hafa sett sér það markmið að árið 2025 muni all- ir seldir bílar í landinu ganga fyrir endurnýjanlegri orku og þeir gerð- ir hagkvæmari fyrir notendur en bensínbílar. Hérlendis tvöfaldaðist fjöldi rafbíla í fyrra, en er raunhæft að skipta alfarið yfir? Orka Náttúrunnar, dótturfyrir- tæki Orkuveitu Reykjavíkur, hefur borið saman rekstarkostnað á bens- ínbílnum Toyota Yaris við Nissan Leaf, sem er vinsælasti rafmagns- bíllinn hérlendis. Var komist að því að eigandi síðarnefnda bílsins spar- ar 133.200 krónur í bensínkostn- að á ári. Á Íslandi eru um 234.000 skráðar bifreiðar, og ef allar yrðu rafvæddar myndu um 31 milljarð- ur sparast á ári. Þetta jafngildir allri leiðréttingu fasteignaveðlána sem ríkistjórnin bauð upp á árið 2014 á þriggja ára fresti. Fjórðungur rafbílar eftir 25 ár Koltvísýringsútblástur fólksbíla á Ís- landi í fyrra var samanlagt 586 þús- und tonn. Rafbílavæðing hérlend- is myndi því minnka mengunina sem því nemur, eða um 13 prósent af heildarútblæstri þjóðarinnar. Þá eru rafbílar mun hljóðlátari. Bloomberg fréttaveitan spáir því að árið 2040 verði 25 prósent bíla í heiminum rafbílar. Þetta þýðir rúm- lega tíu prósent minnkun á olíunotk- un í heiminum miðað við í dag, en einnig að þau ríki sem nú flytja inn olíu verða óháðari olíuútflytjend- um, sem gæti breytt heimsmyndinni mjög. Í Noregi eru rafbílar þegar 22 pró- sent af seldum bílum í landinu og eiga að ná hundraðinu næsta ára- tuginn. Orkuspárnefnd reiknar með að hérlendis verði talan orðin sex prósent árið 2020, en stökkvi síð- an upp í 68 prósent árið 2030. Við náum 90 prósentunum ekki fyrr en 2050. Skortur á hleðslustöðvum Í Noregi er ýtt undir rafbílanotkun með ýmsum hætti. Það er ókeyp- is fyrir þá að leggja í stæði og keyra um göng, leyfilegt að keyra á strætóakreinum, sérstakt árgjald á bíla er minnkað um 5/6, virðis- aukaskattur felldur niður og boðið upp á ókeypis áfyllingu á opinberum hleðslustöðvum. Reiknað er með að rafbílar þar verði orðnir 200.000 MARGSKIPT GLER og SELESTE UMGJÖRÐ 49.900 kr! Fullt verð: 95.800 kr KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI SPÖNGINNI, GRAFARVOGI Helstu rafbíla framleiðendurnir Tesla S og Nissan Leaf eru vinsælustu rafbílategundirnar til þessa. Volkswagen stefnir að því að verða helsti raf- bílaframleiðandi heims, enda vilja þeir ólmir bæta mann- orð sitt eftir að hafa svindlað á fyrri umhverfismælingum. Þá hefur þýska ríkið ákveðið að veita 141 milljarði króna í að auka rafbílanotkun. Munu 500.000 krónur verða niður- greiddar af hverjum rafbíl, en restinni varið til uppbyggingu innviða. Í dag eru um 50.000 raf- bílar í Þýskalandi, en stefnt er að koma þeim upp í eina milljón árið 2020. Orkustofn- un Bandaríkjanna reiknar með að bílarnir muni lækka í verði um að meðaltali um 0.7 prósent á ári fram til 2040, þökk sé bættri tækni og hag- ræðingu sem hlýst af aukinni framleiðslu. 2025 Árið sem Norðmenn ætla að rafbílar sé komnir upp í 100 prósent af seldum bílum. 710 Fjöldi rafbíla á Íslandi í dag. 2050 Árið sem Íslendingar reikna með að rafbílar séu komnir upp í 90 prósent af seldum bílum. 60.000 Fjöldi rafbíla í Noregi í dag. 31 milljarður Það sem íslenskir neytendur myndu spara á ári ef allir væru á rafbíl. Húsvíkingar. Verið er að breyta gömlum hvalveiðiskipum í rafknúin hvalskoðunarskip. Norðmenn. Eru leiðandi í rafbílavæðingunni. Drægni rafbíla verður stöðugt meiri. Rafbílar eru það sem koma skal Norðmenn hætta að selja bensínbíla árið 2025. Þjóð- verjar niðurgreiða rafbíla fyrir milljarð evra. Um- hverfisvænir, hljóðlátir og ódýrir í rekstri. Henta sérstaklega vel á Íslandi, en hvar eru þeir? Valur Gunnarsson valurgunnars@frettatiminn.is Oddný G. Harðardóttir, nýkjör- inn formaður Samfylkingarinnar, sagði í blaðagrein í fyrra að rafbíla- þróunin henti okkur mjög vel því við eigum nóg af rafmagni. Ekkert þyrfti að virkja til viðbótar þar sem mestur hluti hleðslunnar færi fram á nóttinni þegar almenn raforkunotk- un er í lágmarki. Hálendisrafbílar í framtíðinni Hægt er að keyra rafbíl 100-150 kíló- metra á milli hleðslna, sem dugar til daglegra þarfa í borgum en hentar síður í dreifbýli. Mun langdrægari bílar verða þó komnir á markað und- ir lok áratugarins, sem geta keyrt upp í 450 kílómetra án hleðslu. Kjartan T. Hjörvar, rafmagns- verkfræðingur sem vann skýrslu um rafbíla, segir: „Maður treystir ekki hlutunum fyrr en maður hefur reynt þá, en nú hefur komið í ljós að rafbílar duga algerlega innan borga- marka. Það þarf enn bensín- dísilbíla til að komast upp á hálendið, en það breytist líklega í framtíðinni.“ 6 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 11. júní – 12. júní 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.