Fréttatíminn - 11.06.2016, Page 43
Tiger Balsam er náttúrulegt undrasmyrsl
unnið úr einstakri jurtablöndu sem kemur
jafnvægi á daglegt líf og gefur líkama og sál
nauðsynlega friðsæld frá verkjum.
Verkjalaus
í sumarfríið
Unnið í samstarfi við Balsam
Tiger Balsam er þekkt fyrir ótrúlegan lækningamátt og hefur verið selt í nú-verandi mynd í yfir 100 ár
til yfir 100 landa. Balsam kynnir
nú nýja vöru á íslenskum markaði
– Tiger Balsam Neck & Shoulder
Rub – krem sem vinnur sérstak-
lega á vöðvabólgu, kvilla sem
fjölmargir stríða við, allan ársins
hring.
„Ástæðan fyrir því að við tókum
þessa vöru inn er að við vorum að
fá svo margar fyrirspurnir frá fólki
sem hafði kynnst henni erlendis
og vildi meina að þetta væri það
eina sem virkaði,“ segir Margrét
Rós Einarsdóttir, sölu- og mark-
aðsstjóri Balsam. Hún bætir við
að þeir sem einu sinni kaupi Tiger
Balsam smyrslin verði undantek-
ingarlaust fastakúnnar. „Þetta er
aldagömul og náttúruleg upp-
skrift sem hefur virkað lengi,
smyrslið er búið til úr 100% nátt-
úrulegum jurtum sem virka svona
vel á verki.“
Er alltaf með Tiger Balsam í
töskunni
Margrét hefur sjálf átt við meiðsli
að stríða eftir tvö bílslys og
glímir einnig við slit í hálsliðum.
„Mér finnst þetta svínvirka og
ég er alltaf með þetta í töskunni.
Smyrslið linar verkinn strax og
dregur úr spennunni í herðum og
hálsi. Í hvert sinn sem mér finnst
ég vera að festast ber ég þetta
á mig og það losar um,“ segir
hún. Margrét segir nýja kremið
vinna á verkjum sem orsakast af
vöðvabólgu, draga úr höfuðverk
sem fylgir gjarnan vöðvabólgu
og dragi úr spennu og annarri
vanlíðan.
Tiger balsam hitameðferð og
kælimeðferð virkar á verkina
Tvær aðrar vörur frá Tiger Bals-
am eru einnig sívinsælar og
standa fyrir sínu. Það er annars
vegar Tiger Balsam Red, sem
er hitameðferð við verkjum og
margir hafa prófað með góðum
árangri. Tiger Balsam White er
hins vegar kælimeðferð við verkj-
um og með dálítið öðruvísi virkni
en þó ekki síðri.
„Tiger Balsam White virkar til
dæmis ótrúlega vel á frunsur,
þetta er besta frunsukrem sem
ég hef prófað en ég fæ reglu-
lega frunsur eins og svo margir.
Ég hef heyrt af fólki sem fær
krónískar frunsur og þekk-
ir einkennin þegar þær eru að
koma. Þetta krem nær að koma
í veg fyrir að þær láti sjá sig,“
segir Margrét. Tiger Balsam
White virkar einnig frábærlega
á flugnabit, að sögn Margrétar,
og margir hafa notað það gegn
nefstíflum og kvefi. Auk þessa
virkar það líka vel við hvers kon-
ar verkjum en það er persónu-
bundið hvort fólk kýs fremur
hita- eða kælimeðferð.
Tiger Balsam er fáanlegt í öll-
um betri apótekum um land allt,
heilsuhillum Hagkaupa, Heilsuver,
Fjarðarkaup og Heimkaup.is.
Margrét Rós Einarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Balsam.
Kælimeðferð: Vikrar vel á verkina
og einnig á flugnabit og frunsur.
Hitameðferð: Virkar vel á verkina
t.d háls, bak og liðverki.
Fljótvirk lausn við verkjum í
hálsi, öxlum og vöðvabólgu.
Unnið í samstarfi við Artasan
Nú eru öll skemmtilegu sumarhlaupin framund-an, Color Run er nú um helgina og svo eru fjöl-
margir byrjaðir að æfa sig fyrir
Reykjavíkurmaraþonið í ágúst.
Það fjölgar líka stöðugt í hópi
þeirra sem stunda utanvegahlaup,
eins og t.d. Jökulsárhlaupið og að
hlaupa Laugaveginn.
Harðsperrur, aumir og stífir
vöðvar eru vel þekkt vandamál
þegar við reynum mikið á okkur
en þá kemur Sore No More sterkt
inn. Hitagelið er gríðarlega vin-
sælt og það er fátt betra fyrir
æfingar, hlaup eða aðra hreyfingu
að bera það á auma
vöðva og fá blóðrásina
af stað. Sore No More
kæligelið er svo alveg
upplagt að nota eftir
átökin til að minnka
harðsperrur og stífleika
og eymsli í vöðvum.
Einnig er það verkjastill-
andi og dregur úr bólgum.
Sore No More á í raun
heima í öllum íþróttatösk-
um og að ekki sé nú talað
um í göngubakpokanum
því það virkar strax og get-
ur komið í veg fyrir óþarfa
óþægindi eða meiðsl.
Virkar á alla
Matthildur Rósenkranz Guð-
mundsdóttir, eða Lóló, hefur
starfað sem íþróttakennari
og einkaþjálfari í World
Class í hátt í 20
ár. Hún hefur
notað Sore No
More, bæði
hita- og kælig-
elið, síðan það
kom á markað og
hefur þetta að segja:
„Fólk kemur til mín í alls
konar ástandi og með mis-
munandi markmið en stór
hluti finnur fyrir vöðva-
bólgu, eymslum hér og þar,
er með gigt eða einhvers
konar krankleika. Ég mæli
alltaf með Sore No More
því það virkar strax og það
er borið á og maður finn-
ur gríðarlegan mun. Svo er
frábært að nota það á gagn-
augun við höfuðverk, á
efri vörina við kvefi og
á bringuna við hósta.
Ég er rosalega hrifin
af þessari vöru enda er
hún náttúruleg og án allra
kemískra aukaefna og hentar
því öllum aldri. Ég á tvo stráka
sem æfðu fótbolta og ég notaði
Sore No More mikið á þá sem ég
hefði auðvitað ekki gert nema ég
hefði 100% trú á vörunni.“
Náttúrulegt og
án kemískra efna
Sore No More er náttúrulegt gel
sem gott er að nota á tímabundna
verki og ónot. Í þúsundir ára
hafa frumbyggjar í Mexíkó not-
að jurtakjarna til að lina verki og
þjáningar. Með þekkingu og nú-
tímatækni tókst framleiðendum
Sore No More að þróa einstaka
blöndu af virkum plöntukjörnum í
gelformi án alkóhóls og kemískra
íblöndunar- og geymsluefna.
Veiðiferðir og flugnabit
Til gamans skal þess getið að
margir hafa uppgötvað, sér til
mikillar ánægju, að þegar Sore
No More er notað, koma flug-
urnar ekki nærri. Því er upplagt
að nota þessa náttúrulegu vörn
gegn bitvargnum í veiðiferðinni
nú eða í sólarfríinu en við vitum
flest hversu hvimleið og óþægileg
flugnabit geta verið.
Hlaup, fjallgöngur og líkamsrækt
Sore No More er náttúrulegt hita- og kæligel sem er verkjastillandi og öflug meðferð við tímabundnum vöðvaeymslum,
bólgum, harðsperrum og þreytu eftir stífar æfingar. Sore No More er einstök blanda af virkum plöntukjörnum í gelformi,
án alkóhóls og kemískra íblöndunar- og geymsluefna
„Ég mæli alltaf með Sore No More því það virkar strax
og það er borið á og maður finnur gríðarlegan mun.“
Matthildur Rósenkranz Guðmundsdóttir
Kælimeðferð
• Hjálpar til við að lina bráða
verki vegna byltu eða höggs.
• Frábært á vöðvabólgu og
sem kæling eftir meðferð hjá
kírópraktor.
• Góð og öflug kælivirkni án
þess að valda óþægindum
og ofkælingu á húð.
• Kælir rólega og djúpt inn í
vöðvann.
• Upplagt eftir íþróttaæfingar
til þess að minnka
harðsperrur og vöðvaverki.
• Náttúrulegur sítrónuilmur.
• Án alkóhóls, dýraafurða og
festist ekki í fötum eða skilur
eftir bletti.
…heilsa
kynningar
19 | amk… laugardagur 11. júní 2016
Sölustaðir:
flest apótek,
heilsubúðir og
heilsuhillur
verslana.
Hitameðferð
• Virkar best á þráláta verki
t.d. liðagigt, sinabólgur,
tennisolnboga, frosna öxl og
vefjagigt.
• Hjálpar að auka hreyfigetu
sem eykur blóðrás og
náttúrlegan lækningamátt.
• Hitar upp! Mjög hentugt til
að mýkja upp stífa vöðva
fyrir æfingar.
• Náttúrulegur appelsínuilmur.
• Án alkóhóls, dýraafurða og
festist ekki í fötum eða skilur
eftir bletti.
Áríðandi er að bera Sore No
More ekki á opin sár eða í augu.