Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 01.07.2016, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 01.07.2016, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 1. júlí 2016 Fyrir fullorðna og börn, 4 ára og eldri. Fyrirbyggir og meðhöndlar einkenni ofnæmisbólgu í nefi: 9 Hnerri 9 Nefrennsli 9 Kláði í nefi 9 Nefstífla án lyfseðils á góðu verði Notkunarsvið: Glinor nefúði inniheldur natríumcromoglicat og er ætlaður við ofnæmisbólgu í nefi. Frábendingar: Ofnæmi fyrir natríumcromoglicati, benzalkonklóríði eða einhverju hjálparefnanna. Varúð: Innihaldsefnið benzalkonklóríð getur valdið ertingu í húð. Meðganga og brjóstagjöf: Engin skaðleg áhrif á fóstur hafa komið fram við notkun natríumcromoglicats. Engu að síður skal forðast notkun á fyrsta þriðjungi meðgöngu og einungis skal nota lyfið á seinni stigum meðgöngu ef þörf er á. Natríumcromoglicat skilst í litlu magni út í brjóstamjólk. Þessi útskilnaður er sennilega skaðlaus en einungis skal nota lyfið hjá mæðrum með barn á brjósti ef þörf er á. Skömmtun: Fullorðnir og börn, 4 ára og eldri: Einn úðaskammtur í hvora nös tvisvar til fjórum sinnum á dag. Algengustu aukaverkanir: Erting í nefslímhúð getur komið fram i upphafi meðferðar en þessi áhrif eru skaðlaus og tímabundin. Lesið vandlega fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. SmPC: Desember 2015. Nefúði við ofnæmi Stjórnmál Öryrkinn Hans Jónsson gæti orðið fyrsti transmaðurinn til þess að ná kjöri á Íslandi Hans Jónsson lenti í þriðja sæti í prófkjöri Pírata í Norðaustur- kjördæmi. Miðað við spár þá nær hann kjöri inn á Alþingi næsta haust. Hann yrði þá fyrsta trans- manneskjan á Íslandi til þess að ná kjöri, og önnur transmanneskjan í Evrópu til þess að komast á þing. „Ég er pínulítið búinn að gantast með það að ég yrði önnur trans- manneskjan í gjörvallri Evrópu til þess að komast inn á þing, nái ég kjöri,“ segir Hans Jónsson sem lenti í þriðja sæti í prófkjöri Pírata í Norð- austurkjördæmi sem fram fór í vik- unni. Alls voru 14 í framboði og 78 greiddu atkvæði í prófkjörinu sem var lokað. Samkvæmt því fylgi sem Píratar hafa núna nær Hans kjöri í næstu þingkosningum sem fram fara í haust. Það er þó ekkert öruggt í stjórnmálum, frekar en öðru. Hans titlar sig sem öryrkja og segir að sá veruleiki, að hafa lítið á milli handanna, hafi í raun vegið þyngra þegar kom að því að kjósa í prófkjörinu. „Mín upplifun af prófkjörinu er sú að það hafi ekki skipt máli að ég væri transmanneskja. Frekar að ég væri öryrki,“ útskýrir Hans. Hann yrði þá önnur transmann- eskjan til þess að vera kjörin á al- þingi í Evrópu, nái Píratar þeim ár- angri sem þeim er spáð, en á undan honum var Anna Grodzka kjörin í neðri deild pólska þingsins árið 2011. „Líklega eru þetta ekki nema um tíu manneskjur allt í allt sem sitja á þingum út um allan heim,“ útskýr- ir Hans, enda óhætt að fullyrða að transfólk hafi mætt töluverðu skilningsleysi af hálfu samfélagsins í gegnum áratugina. Spurður út í þá gagnrýni sem hefur heyrst um prófkjör Pírata, segir Hans að hann sé algjörlega ósammála þeirri gagnrýni sem hef- ur birst. „Þetta fyrirkomulag hef- ur legið lengi fyrir, og það eru fáar manneskjur í flokknum þrátt fyrir að Píratar njóti mikils fylgis þessa dagana.“ | vg „Mín upplifun af próf- kjörinu er sú að það hafi ekki skipt máli að ég væri transmanneskja. Frekar að ég væri öryrki.“ Hans Jónsson er transmaður og öryrki. Hann gæti orðið annar transmaðurinn í Evrópu til þess að komast inn á þing. Gæti orðið fyrsta transmanneskjan á Alþingi Ferðaskrifstofan Olivia hefur verið að í 26 ár og ferðast með yfir 200 þúsund konur út um allan heim. Olivia Newton John með í för 200 lesbíur sigla í kringum Ísland Ferðalög Fjölmenn skemmtisigling um Ísland verður einn fjölmennasti viðburður hinsegin fólks í sumar. Rúmlega tvö hundruð lesbí- ur munu sigla í kringum Ísland í lok júlí með skemmtiferðaskipinu Ms. Star Legend, samkvæmt frétt GayIceland.is. Þar er rætt við Judy Dlugacz, stofnanda ferðaskrifstof- unnar Oliviu, sem sérhæfir sig í skemmtisiglingum fyrir lesbíur. Uppselt er í skemmtisiglinguna. Fyrirtækið hefur skipulagt skemmtisiglingar fyrir konur frá ár- inu 1990 og siglt með yfir tvö hund- ruð þúsund konur út um allan heim – og nú er komið að Íslandi. Með í för verður Grease-stjarn- an Olivia Newton-John sem mun skemmta um borð ásamt kanadísku söngstjörnunni Sarah McLachlan. Judy segir í viðtali við Gay- iceland.is að enn sé verið að leita að skemmtikröftum, og þá er helst litið til þeirra íslensku. Karlmönnum er ekki bannað að koma með í siglingar á vegum ferða- skrifstofunnar, en Judy segir að dag- skráin sé svo kvenlæg að hún efist um að karlar hafi sérstaka ánægju af slíku ferðalagi. Þá er gagnkyn- hneigðum konum velkomið að koma með, að sögn Judy. „Það eru ekki margar ferðaskrif- stofur sem bjóða upp á samskonar þjónustu þar sem konur geta verið frjálsar í sínu,“ útskýrir Judy í við- tali við Gayiceland, en þess vegna leggja þær heilt skip undir sig til þess að skapa öruggt umhverfi, eins og Judy orðar það. Ferðalagið mun taka átta daga og verður lagt af stað hringinn í kring- um landið 28. júlí næstkomandi. Skipið mun stoppa í allnokkrum höfnum hér á landi, meðal annars í Vestmannaeyjum, á Seyðisfirði, Ak- ureyri, Ísafirði og Grundarfirði. Skipið, Ms. Star Legend, rúmar 212 farþega. Þá eru ótaldir starfs- menn og áhöfn og því ætti heildar- fjöldinn að vera nær þrjú hundruð manns. Þetta er því líklega einn fjöl- mennasti viðburður hinsegin fólks hér á landi í sumar, sé Gleðigangan undanskilin. | vg Samanlagðar vaxta- og barnabætur hafa farið minnkandi í tíð núverandi ríkisstjórnar. Þær eru nú að upphæð aðeins helmingur af því sem þær voru 2011 og rúmur þriðjungur sem hlutfall af skattgreiðslum einstaklinga. 30 25 20 15 10 5 0 12% 11% 10% 9% 8% 7% 6% 5% 4% 3% 2% 1% 0% 20162008 Skattamál Frá árinu 2011 nemur lækkun barna- og vaxtabóta rúmum 57 millj- örðum króna samanlagt. Gunnar Smári Egilsson gse@frettatiminn.is Samanlagðar barna- og vaxtabætur vegna tekna síðasta árs, sem koma til útborgunar núna, eru 14,5 millj- arðar króna. Það er um 2,8 milljörð- um króna lægri upphæð en í fyrra á verðlagi dagsins í dag og 3,6 millj- örðum króna lægri upphæð en fyrir tveimur árum. Barna- og vaxtabætur hafa stór- lækkað í tíð þessarar ríkisstjórnar. Árið áður en hún tók við völdum voru vaxta- og barnabætur um 24,2 milljarðar króna að núvirði. Það er um 9,7 milljörðum hærri fjárhæð á núvirði en greidd verður út í ár. Miðað við að um 50 þúsund fjöl- skyldur fái annað hvort barna- eða vaxtabætur eða hvorar tveggja, gerir það rétt tæplega 200 þúsund krónur á hverja fjölskyldu. Ef hins vegar er miðað við hlut- fall bótanna af skatttekjum þá var hlutfallið 9,1 prósent 2012 en er nú aðeins 4,7 prósent. Ef bæturn- ar næmu sama hlutfalli í ár og 2012 hefði endurgreiðslan numið um 28 milljörðum króna eða næstum tvö- faldri þeirri upphæð sem greidd verður í barna- og vaxtabætur í ár. Lægri vaxta- og barnabætur hækkar skatta á almenning. Sé miðað við álagningu 2008 vegna tekna ársins 2007 þá lækkuðu skatt- tekjur ríkisins vegna tekjuskatts einstaklinga að frádregnum barna- og vaxtabótum eftir Hrun og fóru lægst niður árið 2011, voru þá um 17,6 prósent lægri en 2008. Eftir það hækkaði tekjustofninn og þegar ríkisstjórnin snarlækk- aði bæturnar jukust skatttekjurnar mikið. Í fyrra voru skatttekjurnar orðnar 6,5 prósent hærri en 2008 og í ár verða þær 11,9 prósent hærri. Ríkið tekur því meira til sín en deil- ir út minna til barna og þeirra sem eru að kaupa sér húsnæði. Samanlögð skerðing barna- og vaxtabóta frá 2011 nemur nú um 57,7 milljörðum króna á núvirði. Með áframhaldandi skerðingu má reikna með að almenningur hafi sjálfur fjármagnað að fullu niður- greiðslu húsnæðislána, kosninga- loforð Framsóknarflokksins, með skertum vaxta- og barnabótum á þar næsta ári. Vaxtabætur hafa stórlækkað Kosningaloforðin fjármögnuð með skertum bótum Vaxta- og barnabætur í milljörðum króna á verðlagi dagsins í dag (súlur) og sem hlutfall af skattgreiðslum einstaklinga (lína, hægri ás) Samgöngur Búið er að stofna formlega eignarhaldsfélag í kringum fyrirhugaðar lest- arsamgöngur frá Keflavíkur- flugvelli Ljóst er að það þarf að skerpa á laga- legum ramma í kringum fyrirhug- aða fluglest sem áætlað er að þjóni samgöngum á milli Keflavíkurflug- vallar og Reykjavíkur ef áætlanir ganga eftir. „Við erum að hefja viðræður við ráðuneytin þar sem orðið lest er ekki til í íslenskum lögum,“ útskýrir Run- ólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri verkefnisins, en eignarhaldsfélagið Fluglestin – þróunarfélag var form- lega stofnað í byrjun júní. Áætlað er að kostnaðurinn muni verða rúmlega 100 milljarðar króna þegar upp verður staðið, en nú þegar hefur verið fjárfest fyrir 200 milljónir í verkefninu. Markmiðið er að lestin verði orðin að veruleika innan átta ára. Stærsti hluthafi félagsins er danska verkfræðifyrirtækið Per Aarsleff sem er skráð fyrir 23 pró- sent af hlutafénu. Kadeco, þróunar- félag Keflavíkurflugvallar, á næst mest í félaginu, eða um 20 prósent hlut. Þá á Reykjavíkurborg 2,7 pró- sent hlut í félaginu. Eins á Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 1,5% hlut. Aðspurður út í gífurlegan vöxt ferðamanna og hvort það séu ekki kjörforsendur nú fyrir lestarsam- göngum á milli Reykjaness og flug- vallarins, svarar Runólfur því til að þeir nálgist allar spár um aukinn ferðamannastraum með varúð. „Þessi árlega fjölgun upp á tugi prósenta fær varla staðist til lengd- ar. Við teljum að það muni draga úr henni og þá mun það gerast hratt,“ segir Runólfur. | vg Gangi áætlanir eftir munu ferðamenn geta valið á milli lestar og rútu til að komast í bæinn. „Þessi árlega fjölgun upp á tugi prósenta fær varla staðist til lengdar.“ Vantar orðið lest í íslensk lög
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.