Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 01.07.2016, Qupperneq 6

Fréttatíminn - 01.07.2016, Qupperneq 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 1. júlí 2016 Íþróttir Ein af stærstu spurningunum sem brenna á knattspyrnuáhugamönn- um í Evrópu þessa stundina er spurningin, hvernig getur verið að svo fámenn þjóð sé komin í átta liða úrslit í Evrópumeistarakeppninni. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is Sendiherra Íslands í Frakklandi, Berglind Ásgeirsdóttir, sagði meðal annars í viðtali við fréttavefinn Vísi í fyrradag að hún svaraði þessari spurningu ávallt á sömu leið; hér á landi væri hreint loft og vatn, Ís- lendingar borði lambakjöt og fisk og að harðbýlt landið herði fótbolta- mennina. Sannleikurinn er þó víðs- fjarri þegar rætt er við þá sem til þekkja, menn eins og Daða Rafnsson, yfirþjálfara yngri flokka Breiðabliks, sem meðal annars þjálfaði landsliðs- manninn Alfreð Finnbogason á yngri árum. Fréttatíminn bar greiningu sendi- herrans undir Daða sem hló á móti og sagði: „Mikið ofboðslega væri Nýja Sjáland gott í fótbolta ef lambakjötið væri það sem til þyrfti.“ Ástæðan fyrir frábæru gengi ís- lenska landsliðsins er náttúrulega mun flóknari. Þannig ákvað Daði fyrir nokkrum árum að hætta til að mynda að veita verðlaun fyrir bestu og efnilegustu leikmennina. Þess í stað útskrifa þeir alla upp um flokk í staðinn. Því heimspekin er einföld að sögn Daða: „Fótbolti er hópíþrótt. Og það á að styrkja hópinn, ekki sundra.“ Hann segir fáa, ef nokkra, sakna þeirra daga þegar örfáir voru dregnir út úr hópunum og verðlaunaðir fyr- ir afrek sín. Fleiri íþróttafélög höfðu riðið á vaðið og í dag er varla nokkurt félag sem gerir slíkt. Í grein sem Daði skrifaði árið 2013, og fjallaði meðal annars um Alfreð Finnbogason, landsliðsmann í fót- bolta, útskýrði hann að Alfreð komst ekki alltaf í liðið þegar hann var yngri. Hann var aldrei valinn í yngri landslið Íslands. Alfreð var lítill og seinþroska og átti erfitt með að kom- ast framhjá mönnum sem voru orðnir líkamlega sterkari. Hann segir að Alfreð hafi þó aldrei gefist upp, aldrei hætt, og það skipti máli að hlúa að þeim sem í stað þess að draga úr þeim. Í dag eru fá ef nokkur lið sem verð- launa með sama hætti og var gert á árum áður, meðal annars vegna þess að þjálfarar yngri flokkanna eru menntaðri, klárari og reyndari. Þegar Daði er spurður hversvegna við séum með svona gott lið, fyrst það er ekki hreinu vatni og lambakjöti að þakka, svarar hann: „Mín kenning er sú að hvergi í heiminum fá börn að þjálfa jafn lengi, við jafn góðar að- stæður og fyrir jafn litla peninga. Þá eru þjálfarar orðnir mjög menntaðir í þessum fræðum og virkilega góðir.“ Daði segir að erlendis sé umhverfið annað og miskunnarlausara. Þannig séu þeir allra hæfileikaríkustu tekn- ir strax inn í mjög metnaðarfull- ar íþróttaakademíur, og upphefst íþróttauppeldi sem fáir en útvaldir eiga kost á. „Þeir sem komast ekki inn, fá bara ekki séns,“ segir Daði. Hann segir að það sé einnig leyndur eiginleiki ís- lenska samfélagsins; að á meðan fáir fá tækifæri hjá stórum þjóðum, fái all- ir tækifæri til þess að blómstra hér. Út komi menn eins og Alfreð Finnboga- son og fleiri, drengir sem blómstra síðar. Þeir fá að blómstra á sínum forsendum og þannig verða þeir ekki aðeins betri fótboltamenn, heldur einnig einstaklingar. www.husgagnahollin.is 558 1100 Þú finnur útsölubæklinginn á www.husgagnahollin.is Reykjavík, Akureyri og Ísafirði www.husgagnahollin.is ÚTSALA Sumar afsláttur 60%Allt að CLEVELAND Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga. Ljós- og dökkgrátt slitsterkt áklæði. Stærð: 231 × 140 × 81 cm 89.990 kr. 119.990 kr. AFSLÁTTUR 25% AFSLÁTTUR 30% ÖLL SMÁVARA FRÁ IVV SALLY Hægindastóll PU-leður Litir: Brandy, brúnn og svartur. 29.990 kr. 39.980 kr. AFSLÁTTUR 25% KIRUNA U-sófi. Hægri eða vinstri tunga. Dökkgrátt slitsterkt áklæði. Stærð: 301 × 200 × 78 cm 179.990 kr. 239.990 kr. AFSLÁTTUR 25% NEPTUN Borðstofustóll. Eik og krómlappir. 10.990 kr. 14.990 kr. AFSLÁTTUR 26% ÚTSALA Sumar Leyndarmálið á bak við velgengni íslenska landsliðsins Ekki bara lambakjöt, fiskur og hreint vatn Daði Rafnsson segir hreint loft, vatn og lambakjöt ekki endilega leyndarmálið á bak við íslenska landsliðið. Mynd | Rut Mikið ofboðslega væri Nýja Sjáland gott í fótbolta ef lambakjötið væri það sem til þyrfti. Daði Rafnsson yfirþjálfari yngra flokka Breiðabliks Talsmaður Flokks fólksins segist vanur að sitja hjá Fyrsta blinda konan sem útskrifast úr laganámi Stjórnmál „Ég er vön því að vera undir fátæktarmörk- um á lúsarkjörum,“ segir Inga Sæland, fyrsti lögblindi einstaklingurinn sem út- skrifast úr lagadeild Háskóla Íslands. „Ég er því vön að sitja hjá með hinum sem er haldið niðri í samfélaginu,“ segir hún en þessa dagana er hún að kynna nýjan stjórnmála- flokk til sögunnar. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is „Ég er 56 ára, fjögurra barna móð- ir og byrjaði fyrir löngu síðan í náminu, eða 2004, en þurfti frá að hverfa, þar sem ég er með innan við 10 prósent sjón, það er að segja lög- lega blindu,“ segir Inga. „Þótt það væru allir boðnir og búnir að hjálpa var lítil aðstoð sem ég gat nýtt mér. Það varð síðan bylting með tilkomu þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar og þá gat ég snúið aftur, og útskrif- aðist með BA-gráðu á laugardag.“ Inga segist hafa valið að leggja stund á laganám vegna þess að til- veran hrundi um miðjan 10. ára- tuginn, þegar maður hennar slasað- ist. „Við vissum ekki hvert við áttum að snúa okkur og hver okkar réttur væri. Ég ákvað að verða lögfræðing- ur og berjast fyrir litla manninn og þá sem verða undir í samfélaginu,“ segir Inga en margir þekkja hana úr sjónvarpsþáttunum X Faktor þar sem hún söng sig inn í hjörtu lands- manna. Inga fæddist og ólst upp á Ólafs- firði og segir mikilvægt að hlúa að sveitunum og sjávarbyggðunum. Hún segist þrá aftur lífið eins og það var í gömlu sjávarþorpunum. „Þegar ég var lítil voru allir gömlu karlarn- ir að dytta að bátunum sínum eða sækja fisk í soðið, sólþurrkaðir og sætir. Núna sitja þeir gleymdir, lok- aðir inni á elliheimilunum og bíða eftir því að verða bornir burt í kistu. Þessu vil ég breyta og færa líf aftur í þessar byggðir.“ Og Inga lætur verkin tala og er talsmaður nýs stjórnmálaflokks sem heldur opinn kynningarfund í Iðnó í dag, föstudag. Flokkur fólksins ætlar meðal annars að setja málefni aldr- aðra og öryrkja á oddinn og berjast fyrir því að grunnframfærsla verði ekki lægri en 300 þúsund krónur. Þá vill flokkurinn að lífeyrissjóðakerfið verði endurskoðað og verðtrygging afnumin. „Flokkur fólksins hefur allt að vinna og engu að tapa. Það breyt- ist ekkert, samt er alltaf kosið sama fólkið,“ segir Inga Sæland. Ingu þekkja margir úr sjónvarpsþátt- unum X faktor sem voru sýndir á Stöð 2. Mynd | Getty

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.