Fréttatíminn - 01.07.2016, Qupperneq 38
Kjólarnir sem móðir Beyonce hef-
ur hannað fyrir hana hafa margir
hverjir vakið athygli í gegnum
árin. Einn af þeim var brúðarkjóll
Beyonce. Kjóllinn var mjög ein-
faldur, hlýralaus kjóll með flottu
mynstri á bakinu.
Beyonce og Jay Z gengu í hjóna-
band í apríl 2008 en aðdáendur
hennar fengu bara að sjá kjólinn
í tónlistarmyndbandi við lagið I
Was Here, árið 2011. Tina segir að
Beyonce hafi ekki verið neitt alltof
ánægð með brúðarkjólinn en Tina
hafi fundist hún vera svo góð að
leyfa sér að gera kjólinn. „Hún
sagði við mig einn daginn eftir
brúðkaupið: „Þegar dóttir mín
giftir sig ætla ég að leyfa henni að
velja sér sinn eigin brúðarkjól.“
Kannski var hún ekki svo ánægð
með kjólinn eftir allt saman, en
hún var svo góð við mig.“
Blue Ivy mun kannski ekki
klæðast kjól eftir ömmu sína en
Beyonce vill samt að hún þekki
gildi fjölskyldunnar. Í ræðu sem
hún hélt á Fashion Icon Aware
þakkað hún fjölskyldu sinni fyrir
að kenna sér að meta innri fegurð
og vinnusemi. Hún
tók mömmu sína
sem dæmi sem
hafði saumað og
sniðið föt á presta
og nunnur, til að
eiga fyrir skóla-
gjöldunum.
Brúðarkjóllinn Skjáskot úr
tónlistarmyndbandi Beyonce en
þetta er eina myndefnið sem er til
af söngkonunni í brúðarkjólnum.
Mamma Beyonce hannaði brúðarkjól dóttur sinnar
Tina Knowles, móðir Beyonce Knowles, hefur hannað nokkra kjóla á dóttur sína.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Ég var búin að vera að hugsa hvort ég væri ánægð í vinnunni og hvort mér þætti raun-verulega gaman. Og
kannski ekki búin að vera alveg
nógu sátt. Ég er nefnilega alin upp
þannig að maður eigi að vakna
á hverjum degi, vera glaður og
hlakka til alls sem tekur við,“ seg-
ir lögfræðingurinn Brynhildur
Bolladóttir sem sagði á dögunum
upp vinnunni sinni á auglýsinga-
stofu og bókaði sér flugmiða til
Asíu ásamt kærastanum sínum.
Hann missti sjálfur vinnuna fyrir
skömmu og við það fór Brynhildur
að ókyrrast enn frekar. Það var því
ekki um annað að ræða en að gera
eitthvað í málinu.
„Við fórum saman í ferðalag til
Níkaragva og Kosta Ríka í nóv-
ember og ég var bara ekki búin
að fá nóg þegar við komum heim
þaðan. Ég fann að mig langaði að
ferðast miklu meira,“ segir Bryn-
hildur sem tók sér ekki frí eftir
menntaskóla til að ferðast, líkt og
margir gera, heldur fór hún beint
í lögfræði í Háskóla Íslands. Henni
finnst hún því eiga smá ferðlaga-
pakka inni.
Planið er að vera úti í tvo
mánuði, en þau eru þó ekki búin
að skipuleggja ferðina í þaula. Það
eina sem er öruggt er að þau ætla
að ljúka ævintýrinu á októberfest í
München með stórfjölskyldu Bryn-
hildar.
„Svo verður bara að koma í ljós
hvað gerist þegar ég kem heim
aftur. Ég er ekki smeyk núna en ég
verð það pottþétt þegar nær dreg-
ur. Það koma eflaust upp peninga-
áhyggjur og fleira. Þetta reddast
samt pottþétt allt,“ segir hún hlæj-
andi. „Ég þarf líka bara smá tíma
til að finna út hvað ég vil verða
þegar ég verð stór. Ég er mennt-
aður lögfræðingur og vann aðeins
sem slíkur, en var ekki viss um að
það væri fyrir mig. Svo fór ég að
vinna á auglýsingastofu og er ekki
heldur viss hvort það er fyrir mig.
Ég þarf bara að finna sjálfa mig.“
Brynhildi finnst hún einmitt
fá svo skýra sýn á lífið þegar hún
er í útlöndum og því finnst henni
Asíureisa tilvalinn vettvangur
fyrir þessa naflaskoðun. „Manni
líður eins og maður finni einhvern
sannleika þegar maður fer í burtu.
Þegar maður vaknar á hverjum
degi bara til að vera til, skoða eitt-
hvað nýtt, fá sér gott að borða og
fara svo að sofa. Þetta er ekki líf
sem ég myndi vilja lifa að eilífu en
ég held að það sé stundum hollt að
sinna sínum eigin duttlungum og
þörfum.“
Eftir að Brynhildur sagði frá
ákvörðun sinni um að hætta í
vinnunni og fara í langt ferðalag
hafa margir komið að máli við
hana og tjáð henni hvað hún sé
hugrökk. Sjálfri finnst henni það
hins vegar ekki, allavega ekki
vegna þessarar ákvörðunar. „Mér
finnst ég bara vera að gera það sem
maður á að gera. Ég efast ekki um
þessa ákvörðun. Ég er ung, klár
og dugleg og það mun allt redd-
ast. Ég trúi því staðfastlega,“ segir
Brynhildur sem efast ekki um að
hún fái einhverja vinnu þegar hún
kemur heim. Þó ég sé lögfræðing-
ur þá er ég ekki of góð fyrir neitt
starf. Það hlýtur einhver að vilja
ráða mig í vinnu,“ segir hún kímin.
Gengur í það heilaga
Kylie Minogue og Joshua Sasse eru að fara að
ganga í hjónaband á Ítalíu í næsta mánuði. Hin
ástralska Kylie er 48 ára og unnusti hennar er 28 ára
gamall en samkvæmt Hello! er brúðkaup í vændum.
Heimildarmaður blaðsins sagði að Joshua hafi sagt
vinum sínum frá því hver áform þessara turtildúfna væru
en þau eru víst mjög ástfangin, þrátt fyrir að vera á sitthvorum hluta
hnattarins þessa dagana.
Forðast sviðsljósið í þetta skiptið
Hinn 41 árs gamli Russell Brand er að fara að gifta sig,
en áður var hann giftur Katy Perry. Sú heppna verðandi
eiginkona heitir Laura Gallacher og gengur hún með
fyrsta barn þeirra Russell. Að sögn nákomins vinar
parsins vill Russell halda sambandi sínu og fæðingu
barns þeirra utan sviðsljóssins eftir að hafa verið í mjög
opinberu hjónabandi með Katy Perry. Þau héldu lítið boð
til að tilkynna væntanlegan erfingja og voru bara þeir allra
nánustu viðstaddir.
Kemur Depp til varnar
Winona Ryder hefur stigið fram til að verja sinn
fyrrverandi eiginmann, Johnny Depp. Flestir hafa
heyrt af ásökunum Amber Heard á hendur Johnny
um heimilisofbeldi og margir vita ekki hverju á að trúa
í þessum efnum. Ryder sagði í TIME: „Mín reynsla af
Johnny var allt önnur en sú sem er lýst í þessu. Hann var
aldrei vondur við mig og ég þekki hann bara sem góðan, ástríkan og
hlýjan mann sem verndar þá sem hann elskar.“
Elskar Bruce
Caitlyn Jenner sagði frá því opinberlega að hún muni
alltaf elska manninn sem hún var áður en hún fór í
kynleiðréttinguna, Bruce Jenner. Caitlyn prýðir nú
forsíðu blaðsins Sports Illustrated, 40 árum eftir að hafa
unnið gullverðlaun á ólympíuleikum árið 1976 í Montreal,
þá sem Bruce Jenner. „Ég elskaði Bruce og elska hann
enn í dag. Mér líkaði allt sem hann gerði og hversu góð
fyrirmynd hann var í vinnu og markmiðum,“ sagði Caitlyn.
Húsið til sölu
Hús Brittany Murphy heitinnar er komið á sölu en
bæði hún og eiginmaður hennar létust í húsinu með
nokkurra mánaða millibili. Húsið er til sölu á litlar 18,4
milljónir dollara. Brittany lést í desember árið 2009
eftir að hún féll í gólfið á baðherbergi sínu og fór í
hjartastopp. Krufning leiddi í ljós að dánarorsök var
lungnabólga og blóðleysi. 5 mánuðum síðar lést eiginmaður
hennar á svipaðan hátt á heimili þeirra.
SUNDFÖT
Í ÚRVALI!
!
Bláu húsin Faxafeni | S. 555 7355 | www.selena.is Selena undirfataverslun
Ætlar að finna sjálfa sig Brynhildur vonast til að fá aðeins skýrari sýn á lífið og hvað hún vill gera á meðan hún ferðast um Asíu. Mynd | Rut
Fær svo skýra sýn
á lífið í útlöndum
Brynhildur sagði upp vinnunni og bókaði ferð til Asíu ásamt kærast-
anum sínum. Hún veit ekkert hvað tekur við að ferðalagi loknu en ætlar
að reyna að finna út hvað hana langar að gera þegar hún verður stór.
…fólk 2 | amk… FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2016
Svo verður
bara að koma
í ljós hvað gerist
þegar ég kem heim
aftur. Ég er ekki
smeyk núna en ég
verð það pottþétt
þegar nær dregur.
Það koma eflaust
upp peningaáhyggj-
ur og fleira. Þetta
reddast samt pott-
þétt allt.