Fréttatíminn - 01.07.2016, Side 40
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Ég er ekki ennþá að trúa þessu, segir hinn 17 ára gamli Brynjar Steinn Gylfason, eða Binni Glee, eins og hann kallar sig á
samfélagsmiðlum. Hann hefur vak-
ið verðskuldaða athygli á Snapchat
upp á síðkastið og er með rúmlega
8000 þúsund fylgjendur. Sjálfur er
hann enn að átta sig á því að hann
sé orðinn vinsæl snapchat-stjarna.
Enda gerðist það nánast á einni
nóttu.
5.000 á einum mánuði
„Það hvarflaði ekki að mér að ég
yrði svona vinsæll, en frænka mín
hafði mikla trú á mér og hvatti mig
áfram. Hún segist alltaf hafa vitað
að ég næði langt.“
Til að gefa gleggri mynd af
vinsældum Binna, þá fjölgaði
snapchat-fylgjendum hans um
5.000 manns á einum
mánuði. Sem jaðrar ef-
laust við Íslandsmet.
Hann er einlægur
og persónulegur og
ræðir meðal annars
opinskátt um kyn-
hneigð sína, en hann
er nýkominn út úr
skápnum. Þá er hann
nýbyrjaður að taka upp
förðunarmyndbönd sem hafa
svo sannarlega engan byrjenda-
brag á sér.
Kýldi á förðunarmyndband
„Ég fékk áhuga á förðun í fyrra
eftir að ég sá homma mála sig, en
hann er líka hálf filippískur eins og
ég. Í kjölfarið fór ég að prófa mig
áfram og frænka mín hjálpaði mér.
Ég er ennþá að læra í dag en er
með eitthvað á hreinu,“ segir Binni
og blaðamaður getur staðfest það.
Eyeliner-línan hans er til að mynda
óaðfinnanleg, eitthvað sem blaða-
manni hefur ekki tekist að ná fram
á sínum augnlokum, þrátt fyrir
margra ára æfingu.
Hann viðurkennir samt að hafa
verið frekar óöruggur fyrst þegar
hann byrjaði. „Ég var ótrúlega
feiminn og stressaður. Ég vissi ekki
hvernig fólk myndi taka í þetta.
Ég er ennþá alveg feiminn því það
eru svo margir að horfa á mig, en
mér er samt farið að vera sama
um hvað fólki finnst. Ég er bara ég
sjálfur. Ég tók upp förðunarmynd-
band um síðustu helgi, en þorði því
samt varla. Fannst ég ekki tilbúinn.
…vidtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2016
Við höfum ekki rætt þetta
frekar en hann kemur fram
við mig alveg eins og áður og er
mjög góður við mig.
Vill bara vera hann sjálfur
Brynjar Steinn slær í gegn á snapchat með einlægum og persónulegum myndböndum. Hann ræðir allt milli himins
og jarðar og farðar sig af mikilli snilld. Í síðustu viku sagði hann frá því þegar hann kom út úr skápnum fyrir föður
sínum og vakti það mikla athygli.
sem farðar sig þó ekki dagsdaglega.
Förðunin er einfaldlega áhugamál-
ið hans og hann grípur í snyrti-
vörurnar og förðunarpenslana
þegar hann langar til.
Aðspurður hvort hann langi
kannski að mennta sig eitthvað í
förðun í framtíðinni segir Binni
það vel koma til greina, en í dag
stundar hann nám við Menntaskól-
ann á Akureyri. „Ég veit ekki hvað
ætla að gera en núna þegar ég er
kominn með svona mikinn áhuga
á förðun þá langar mig að læra
meira, enda finnst mér þetta mjög
gaman.“
Út úr skápnum fyrir pabba
Þrátt fyrir að Binni sé fær að farða
sig stafa vinsældir hans á snapchat
ekki síður af því hve hann er ein-
lægur og duglegur að opna sig um
persónuleg mál. Í síðustu viku til-
kynnti hann fylgjendum sínum til
dæmis að hann ætlaði að koma út
úr skápnum fyrir föður sínum. En á
síðasta ári sagði hann móður sinni
og vinum að hann væri samkyn-
hneigður, ásamt því að birta færslu
í facebook-hópnum Beauty tips.
Binni hafði frestað því að ræða
málin við föður sinn, en fannst
rétti tíminn til þess í síðustu viku.
„Mér leið svo vel og langaði að
segja honum. Ég hélt að hann hefði
kannski grunað þetta, en svo var
ekki. Hann trúði mér ekki fyrst.
Sagði margoft að hann trúði þessu
ekki og gekk svo í burtu. Við höf-
um ekki rætt þetta frekar en hann
kemur fram við mig alveg eins og
áður og er mjög góður við mig.
Ég held að hann hafi fengið sjokk.
Mamma hins vegar vissi þetta alltaf
og sagði bara „loksins“ þegar ég
kom út úr skápnum fyrir henni.
Mamma sagði svo við pabba að þau
gætu ekki breytt mér, svona væri
ég bara, og ég held að hann átti sig
alveg á því.“
Var spurður beint út
Binni segist hafa fengið mikinn
og góðan stuðning frá fólkinu í
kringum sig þegar hann kom út úr
Farðar sig Binni fékk áhuga á förðun á síðasta ári og hefur verið duglegur að rækta áhugamálið síðustu mánuði, með miklum árangri. Mynd | Auðunn Níelsson
Mig langar
bara svo að sý
na
það að strákar
geta málað sig
. Og
mega það ef þ
eir
vilja.
En svo kýldi ég á það og fékk mjög
falleg skilaboð í kjölfarið.“
Allir eiga að vera þeir sjálfir
Í apríl á þessu ári átti Binni nánast
engar förðunarvörur, en síðustu
vikur hefur heldur betur orðið
breyting á. Hann hefur fengið mik-
ið gefins, til dæmis frá netverslun-
inni haustfjord.is, og umboðsað-
ilar ýmissa snyrtivörumerkja hér
á landi hafa efnt til gjafaleikja í
samstarfi við hann. Fyrir vikið hef-
ur hann svo fengið frá þeim vörur.
Þegar „snapparar“ eru farnir að
fá gefins vörur frá fyrirtækjum má
eiginlega segja að þeir séu búnir að
meika það. Binni fer hálfpartinn
hjá sér þegar blaðamaður imprar
á þeirri staðreynd. Hann er hóg-
værðin uppmáluð.
„Mig langar bara svo að sýna það
að strákar geta málað sig. Og mega
það ef þeir vilja. Það eiga allir að
vera þeir sjálfir. Það eru skilaboð-
in sem ég vil senda,“ segir Binni
skápnum, en líkt og móður hans,
þá grunaði marga vini að hann
væri samkynhneigður. „Allir vinir
mínir eru glaðir fyrir mína hönd.
Ég var sjálfur búinn að vita þetta
frá því ég var lítill, en það er bara
erfitt að koma út. Ég ætlaði ekkert
að koma út úr skápnum í fyrra en
vinkona mín spurði mig beint út.
Ég gat þá ekki annað en sagt henni
sannleikann, enda langaði mig ekki
til að lifa lengur í einhverri blekk-
ingu. Þann 24. desember kom ég
svo út úr skápnum á Beauty tips,
sama dag og ég sagði mömmu.“
Samkynhneigðir frændur
Þrátt fyrir að marga hafi grunað
að Binni væri samkynhneigður
var enginn sem minntist á það við
hann, ekki fyrr en vinkona hans
tók af skarið í fyrra í trúnaðarsam-
tali þeirra á milli. Fólk tók honum
einfaldlega eins og hann var, og
gerir enn, hvort sem hann skil-
greinir sig svona eða hinsegin. „Ég
hef aldrei orðið fyrir neinu áreiti
eða lent í einelti,“ tekur hann fram.
Binni er fæddur og uppalinn
á Akureyri, en hann á filippíska
móður og íslenskan föður. Þrátt
fyrir að hafa aldrei búið í Filipps-
eyjum er hann í góðu sambandi við
fjölskylduna sína þar. „Ég á marga
frændur í Filippseyjum sem eru
hommar þannig þetta er ekkert
skrýtið fyrir filippísku fjölskylduna
mína. Þau hafa því tekið þessu
mjög vel,“ segir Binni sem er mjög
þakklátur fyrir allt góða fólkið í
kringum sig.