Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 01.07.2016, Side 42

Fréttatíminn - 01.07.2016, Side 42
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is Rekstrarvörur - vinna með þér Rekstrarvörur – fyrir þig og þinn vinnustað Curver karfa ferköntuð Knit með höldum 8l, hvít Curver karfa ferköntuð Knit með höldum 3l, hvít Söluaðilar: Húsasmiðjan, um allt land • Miðstöðin, Vestmannaeyjum Vaskur, Egilsstöðum • Rekstrarvörur, Reykjavik og RV.is – fyrir ruslið – fyrir þvottinn – fyrir þína hluti Curver fata m.fótstigi 30x27x45 cm - 20 l - svört Curver fata m.fótstigi 31x35x70 cm - 40 l - svört Curver fata með fótstigi Slim Bin - 25 l - málm Curver fata m.fótstigi Slim Bin - 25x42x61 cm 40 l - málm Curver taukarfa Style með loki - 45x26x62 cm - 60 l - hvít Curver taukarfa Style með loki - 45x26x62 cm - 60 l - dökkgrá Curver taukarfa Style með loki - 59x38x27 cm - 45 l - hvít Curver taukarfa Style með loki - 59x38x27 cm - 45 l - svört er komið aftur til Íslands! – körfur, box og fötur til allra nota Knit Ný lín a 2016 Curver karfa Knit með höldum 3l, hvít Curver karfa ferköntuð Knit með höldum 19l, hvít Kæra móðir. Þú afsakar að ég þurfti að stytta þitt frábæra bréf en þú vekur máls á gríðarlega mikilvægri staðreynd í okkar samfélagi sem fáir foreldrar þora að ræða upphátt; sem sagt að barneignir færa foreldrum ekki bara hamingju. Börn krefjast endalausrar vinnu, þau þarfnast gríðarmikillar athygli, þau krafsa í taugar foreldranna sem flestir eru þreyttir eftir vinnu eða nám utan heimilis og þarfir þeirra krefja for- eldra um að setja sínar eigin þarfir í annað sætið. Allt þetta gengur þvert á það sem nútímasamfélag hefur kennt ungu fólki því allt hefur snúist um að allir geti gert allt sem þeir vilja og þegar þeir vilja, að allir eigi að rækta sig og sínar þarfir og fylgja sínum eigin löngunum. Að auki er ímyndin um börn sýnd rósrauðum bjarma sem hámark hamingjunn- ar í parasambandi og hamrað á að barneignir eigi ekki að hamla fólki (í reynd konum) frá námi og starfs- frama og áhugamálum og þátttöku í öllu því sem er í boði; ræktin og kaffihúsin og vinkonur og vinir og leikhúsferðir og rómantísk útlanda- frí, svo dæmi séu tekin. Barnafrí – foreldravinna En – svo fæðast börnin og hvert eitt og einasta breytir lífi foreldra sinna gríðarlega. Fyrsta barn reynir á þar sem foreldrarnir eru að glíma við allt í fyrsta sinni en um leið er gleðin og ástin til barnsins svo ný og óvænt og margt er svo auðvelt með aðeins eitt barn í fangi. Barn nr. tvö tvöfaldar ekki álagið heldur marg- faldar það eða „eitt sem ekkert, tvö sem tíu,“ sögðu lífsreyndar konur hér áður fyrri. Sem sagt; framundan er hörkuvinna sem heitir sumarfrí barna og þau þurfa hvíld frá þessu venjubundna lífi. Þau þurfa tíma með foreldrum sínum og þið öll þurfið að læra að vera öll saman og skapa fjölskylduminningar sem ásamt mörgu fleiru verður fjölskyldustyrk- urinn ykk- ar um alla framtíð. Allir geta tekið eitthvert frí og maðurinn þinn líka enda völduð þið að eiga börnin ykkar. Það er ekki léttvæg ákvörðun. Planaðu fríið Hins vegar munt þú þurfa að taka ein ábyrgð á hluta frísins og hana skaltu axla á skynsamlegan hátt. Besta leiðin er að skipuleggja dag- ana til að forðast úfin og úrill börn fram undir hádegi sem geta þá valdið pirringi hjá þér og átökum milli systkina. Það margborgar sig að fara út með þau eftir morgunmat- inn þótt þig langi að kúra lengur og skildu símann eftir heima. Alls stað- ar má finna skemmtilega róluvelli og sundferðir slá í gegn. Taktu rólega stund með þeim eftir matinn, hver veit nema sá yngri sofni og þú getur þá gefið stelpunni þinni góðan tíma. Húsdýragarðurinn með nesti dugar heilan dag og fáðu endilega vinkonu eða einhvern fullorðinn með þér ef hægt er. Allir geta skemmt sér og þá nærð þú að spjalla ögn á fullorðins- nótum. Svo getur þú líka leitað að- stoðar í fjölskyldu- eða vinahópi. Er einhvers staðar ungmenni sem væri til í að taka vaktina einhverja daga eða getur einhver tekið einhverja seinniparta svo þú komist aðeins frá. Það er nauðsynlegt. Ástin útheimtir sitt Allt verður auðveldara þegar for- eldrar viðurkenna álagið sem barnastússið útheimtir og mundu svo, kæra móðir, að þessi fyrstu ár ganga yfir. Þinn tími mun koma með rólegum fríum og kvöldnæði við tölvuna og ótrufluðum sam- skiptum við manninn þinn. Álagið er hér og nú, vertu raunhæf, stattu vaktina – og horfðu svo á þau á koddanum á kvöldin þegar þér hefur tekist að skapa góðan dag og svæfa snemma. Ekkert í heiminum mun nokkru sinni jafnast á við það; hina tæru hamingju og ást sem er ástæða þess að þrátt fyrir allt mun- um við áfram kjósa að eignast börnin okkar. „Ég er móðir fjögurra barna á aldrinum tveggja til tuttugu ára. Í haust breyttust fjölskylduaðstæð- ur mínar úr því að vera „við og krakkarnir“ yfir í „ég og krakk- arnir“ og hróflaði það talsvert við heimsmyndinni, ekki síst um helgar,“ segir Kristborg Bóel Steindórsdóttir, blaðamaður á Austurlandi, dagskrágerðarkona í þættinum Að austan á N4 og móð- ir í hjáverkum. „Tvær helgar í mánuði erum við öll saman, já nema þessi elsti sem floginn er úr hreiðrinu og þarf að panta viðtalstíma hjá með að minnsta kosti tveggja mánaða fyrirvara, svona næstum,“ segir Kristborg og hlær. Að sögn Kristborgar ná þarf- ir fjölskyldumeðlima sjaldnast saman vegna breiðs aldursbils. „Tvistinn langar bara að hitta vin- konur, þristinn í fótbolta, fjark- ann að horfa á Bubba Byggi og mig að prjóna. Oft langar okkur líka að gera bara alls ekki neitt eftir langa viku í vinnu og skóla, bara vera.“ Það besta sem fjölskyldan veit er að komast í gott kaffiboð um helgar eða bjóða einhverj- um heim. „Gott er ef kaffiboðið inniheldur mæjónes, rjóma og kaffi í lítravís. Best er auðvitað ef mér tekst að endurheimta týnda soninn. Svona boð verða helst að standa lengi yfir, þar sem all- ir borða á sig gat, tala, hlæja og njóta þess að kúldrast saman.“ …fjölskylda 6 | amk… FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2016 Gott er ef kaffiboðið inniheldur mæjónes, rjóma og kaffi í lítra- vís. Best er auðvit- að ef mér tekst að endurheimta týnda soninn. Sendið Möggu Pálu spurningar á maggapala@frettatiminn.is og hún mun svara í næstu blöðum. Komdu blessuð og sæl, kæra Magga Pála og þakka þér innilega fyrir að gefa þér svona tíma til að svara okkur foreldrum. Ég les alltaf pistlana þína og stundum klippi ég þá líka út og hengi á ísskápinn til að minna mig á og líka til að ýta við manninum mínum sem mér finnst ekki vera nógu dug- legur í pabbahlutverkinu. En ég ætlaði nú ekkert að vera að kvarta undan honum því að stundum finnst mér ég líka vera svo misheppnuð mamma … Ég verð stundum svo óþolinmóð og pirruð þegar ég er þreytt og finnst þau endalaust hanga í mér … Þau rífast og slást út af öllu … Mér finnst ég aldrei hafa tíma fyrir mig og er bara alltaf þreytt … Við eigum tvö börn, strák og stelpu, og fólk segir við mig hvað við séum rík og að við séum bara komin með draumabörnin en mér líður ekki alltaf þannig. Stelpan er fimm ára og var alltaf auðveld þegar hún var yngri og við hjónin höfðum eitthvað svo mikinn tíma fyrir hana og hún gat alltaf verið með okkur. Strákurinn er tveggja og hálfs árs … Hann var alltaf miklu erfiðari og svo var hann með eyrnabólgur … Strákurinn komst í leikskóla um áramótin og þar gat ég haft hann lengur en hjá dag- mömmunni … Ég sæki þau bæði seint til að ég komist ein í ræktina … En fyrirgefðu þetta langa bréf en málið er að mig kvíðir svo fyrir sumarfríinu þegar leikskólinn lokar. Í fyrra var strákurinn enn að sofa á daginn og svo ég gat ég farið út með hann í kerrunni á kaffihús og svona … Maðurinn minn er smiður og brjálað að gera hjá honum á sumrin og þess vegna fórum við í frí í nóvember til Kanarí í fyrra en mamma passaði krakkana þá … Er ég ekki ómöguleg mamma … Uppeldisáhöldin Börn eru ekki bara hamingja. Frítíminn með fjölskyldunni Það besta sem fjölskyldan veit er gott kaffiboð. Fjölskyldan Kristborg Bóel ásamt börnum sínum, Almari Blæ, Bríeti, Þór og Emil. Tvær helgar í mánuði er Krist- borg ein. „Þá geri ég það sem ég vil, þegar ég vil. Að vísu er eitt sem ég hef ekki gert um helgar síðan í haust. Það er að fara að kaupa í matinn, í það minnsta ekki undir nokkrum einustu kringumstæðum seinnipartinn á föstudögum. Þá er svokallaður „para-tími“ í búðinni. Tíminn þar sem ástfangin pör valhoppa hönd í hönd á milli rekkanna í leit að varningi fyrir hið fullkomna kósí- kvöld, úff ég get ekki. DJÓK, minn tími mun koma,“ segir Kristborg og skellihlær.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.