Fréttatíminn - 01.07.2016, Qupperneq 56
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
SÖGULEGUR VIÐBURÐUR
FLOGIÐ UM MORGUN
OG HEIM EFTIR LEIK
Útvegum einnig miða á leikinn
Brottfarastaðir eru frá Reykjavík og Akureyri
3. júlí 2016
ÍSLAND - FRAKKLAND
REYKJAVÍK
Verð 144.900.-
Báðar leiðir með sköttum
AKUREYRI
Verð 139.900.-
Báðar leiðir með sköttum
alla föstudaga
og laugardaga
„Ég held að kynlíf sé eitthvað
sem geti sameinað okkur öll.“
Gerður Huld Arinbjarnardóttir í viðtali við amk á morgun
Mátti ekki fara í lýtaaðgerð
Chloe Moretz er eitt af stærstu ungstirnunum í Hollywood í dag.
Yrsa og Ragnar
tilnefnd til bók-
menntaverðlauna
Glæpasögurnar Kuldi eftir
Yrsu Sigurðardóttur og Náttblinda
eftir Ragnar Jónasson eru
tilnefndar til Dead Good Reader
Awards í flokki glæpasagna í ár.
Lesendur síðunnar deadgood-
books.co.uk tilnefndu sögurnar
og stendur nú kosning yfir í þeirra
flokki. Ásamt Yrsu og Ragnari eru
tilnefnd Frakkinn Pierre Lemaitre,
Svíinn Erik Axl Sund, sú finnska
Kati Hiekkapelto og Norðmaður-
inn Samuel Björk. Verðlaunin
verða afhent á Harrogate-glæpa-
sagnahátíðinni síðar í mánuðinum.
Hún segir frá því nýlega í
tímaritinu ELLE að hún hafi ekki
alltaf verið ánægð með útlit sitt og
hafi verið mjög nálægt því að leggj-
ast undir hnífinn.
Chloe var aðeins 16 ára gömul
þegar hún ætlaði í lýtaaðgerð en
móðir hennar, Teri, hafi gripið inn
í: „Þegar ég var 16 ára langaði mig
í brjóstastækkun. Ég vildi láta taka
undirhökuna, láta minnka á mér
rassinn og allan pakkann. Þá sagði
mamma mín: „Alls ekki. Ég gef þér
ekki leyfi til að fara í lýtaaðgerðir.“
Chloe segir einnig: „Já, ég hef
fengið mér hárlengingar. Já, lík-
ami minn er svona af því ég æfi 7
sinnum í viku. Já, ég borða hreina
fæðu, jafnvel þó mig langi það alls
ekki og ég svindla oft.“ Hún bætir
því líka við að maður fæðist ekki
alltaf nákvæmlega eins og maður
vill. Stundum þarf maður að berj-
ast fyrir hlutunum og vinna fyrir
þeim. Chloe segist vilja sýna ung-
um konum að það sé hægt að finna
jafnvægi í lífinu.
Chloe er kærasta Brooklyn
Beckham, sem er sonur Victoriu
Beckham og David Beckham. Hún
hefur leikið í myndum á borð við
Diary of a Wimpy Kid, Kick-Ass,
Let Me In, Hugo, Dark Shadows og
Carrie en hún hóf leikferil sinn að-
eins 7 ára gömul. Ung á uppleið Chloe Moretz og Brooklyn Beckham eru eitt frægasta unga parið í
heiminum í dag. Mynd | GettyImages
Draumurinn rættist
Vigdís Perla Maack var ráðin
sýningarstjóri á stóra sviði
Borgarleikhússins á dögunum.
Vigdísi hefur dreymt um starfið
frá því hún var lítil og er alsæl
með stöðuna. Frá 16 ára aldri
hefur Vigdís starfað í Þjóðleikhús-
inu og Borgarleikhúsinu í hinum
ýmsu deildum, síðast í leikmynda-
deild. „Hér sannast að allt er
hægt ef maður vinnur að mark-
miðum sínum, stendur sig vel og
safnar sér reynslu,“ segir Vigdís á
Facebook síðu sinni.
Vonast eftir
vínylútgáfu
Þriðja plata rapparans
Emmsjé Gauta, Vagg og Velta, er
væntanleg á næstunni. Platan
inniheldur 13 ný lög og þar á
meðal slagarana Strákarnir og
Djammæli. Emmsjé Gauti hefur
efnt til hópfjármögnunar á
vínylútgáfu á Karolina Fund og
þeir sem styrkja málefnið eignast
plötuna ásamt öðrum fylgihlutum.
Útgáfutónleikarnir verða 14. júlí á
Nasa en mikil eftirvænting ríkir
eftir plötunni en tónlistarmennirn-
ir Logi Pedro, Aron Can, Gísli
Pálmi, Úlfur Úlfur, Bent, Dóri DNA
og Unnsteinn Manuel koma einnig
að henni.