Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 02.07.2016, Page 4

Fréttatíminn - 02.07.2016, Page 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 2. júlí 2016 Uppfinning Úrræðagóður bóndi í Galtarholti í Hvalfjarðarsveit vorkenndi sauðfé sínu að klæja á bakinu og hannaði græju til að þær gætu klórað sér. Mikil aðsókn er í klóruna og fara kindurnar í beina röð á meðan þær bíða eftir að komast að. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Jón Þór Guðmundsson, bóndi í Galtarholti, hefur verið með kindaklórur á víð og dreif um jörð sína undanfar- in tvö sumur. „Upphaflega var hugmyndin að reyna að koma í veg að þær yrðu afvelta. Þær klæjar á bakinu og reyna ýmislegt til að klóra sér. Stundum liggja þær milli þúfna og reyna að nudda sér upp við þær og þá endar oft með því að þær fara á bakið og geta ekki staðið upp. Ég var að missa nokkrar kindur vegna þessa. En síðan ég setti upp klóruna hefur enginn orðið afvelta þannig að ég hef komið þessu upp á nokkrum stöðum um hag- ann. Þetta er ódýr og góð lausn.“ Aðspurður um verkfræðina á bak við klóruna seg- ir Jón Þór; „Þetta eru nú ekki mikil vísindi. Tveir girðingarstaurar eru reknir niður og svo set ég slá yfir og strákústshaus undir. Svo er bara að hafa þetta í hæfi- legri hæð.“ Skildu kindurnar til hvers græjan var? „Já, þær voru ekki lengi að fatta það. Það getur verið gaman að fylgj- ast með þeim. Eitt kvöldið sá ég að það voru fjórar komnar í beina röð að bíða eftir að komast að. Verst ég náði ekki mynd af því. Ég hélt að þær myndu troðast eins og venjan er þegar þær langar að gera eitthvað, en þær biðu rólegar.“ Nýtt hjálpartæki fyrir sauðfé Fann upp kindaklóru Kindaklóran er gerð úr girðingarstaurum og strákústi. Suður England 12. – 17. ágúst Sjö daga ferð um Suður England Ein af vinsælustu ferðunum okkar Ekið um borgir og þorp í hjarta Englands og komið víða við. Skemmtileg og fræðandi ferð. Skoðunarferðir alla daga og hálft fæði innifalið. Flogið með Icelandair. Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson Verð frá 174.200,- Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar Borgartún 34, 105 Reykjavík, S: 511 1515 • outgoing@gjtravel.is • www.ferdir.is Velferð „Ég fæ um 70 þúsund krónur á mánuði hjá félags- þjónustunni meðan verið er að afgreiða málið mitt í kerfinu,“ segir Dagný Björk Egilsdóttir sem veiktist þegar hún var í námi í Danmörku og þurfti að snúa heim til að hefja langtíma endurhæf- ingu.“ Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Á Íslandi var Dagnýju Björk Egils- dóttir tekið eins og útlendingi í al- mannatryggingakerfinu, þegar hún veiktist og þurfti að snúa heim úr námi. Henni var sagt að bíða í þrjú ár eftir endurhæfingarlífeyri. Dagný kærði niðurstöðu Tryggingastofnunar en hún greindist með tauga- og verkjasjúk- dóminn vefjagigt fljótlega eftir að hún byrjaði í námi í rannsóknar- læknisfræði og þurfti í fyrstu að taka sér hlé frá námi og síðan hætta alveg. „Ég hafði verið í rúmlega eitt og hálft ár í Danmörku þegar ég kom aftur heim og Tryggingastofnun synjar mér um endurhæfingarlíf- eyri á þeim forsendum að ég hafi ekki búið hérlendis síðastliðin þrjú ár,“ segir hún. Námsmenn sem fara í nám á Norð- urlöndum þurfa að flytja lögheimili sitt þangað meðan á námi stendur. Án lögheimilis er ekki hægt að leigja húsnæði og erfitt að sækja læknis- þjónustu auk annarrar þjónustu. „Fólk veit ekki hverju það er að fórna þegar það breytir um lögheimili. Það eru fleiri í þeirri stöðu að hafa lent í þessari glufu milli reglugerða á Norðurlöndum. Norðurlandasamn- ingurinn virðist heldur ekki tryggja samstarf milli landanna og grunn- réttindi í almannatryggingum eins og hann á að gera,“ segir hún. „Þá gætir misræmis í reglum sem snúa að rétti til endurhæfingarlífeyris. Endurhæfingarlífeyrinn fellur und- ir lög um félagslega aðstoð. Réttur til félagslegrar aðstoðar er sam- kvæmt þeim ekki áunninn og ætti því í raun ekki að vera neinn biðtími til að öðlast hann. Einnig má benda á samlagningarreglu EES–landanna en samkvæmt henni er möguleiki að stytta biðtímann niður í eitt ár. „Þetta misræmi þarf að laga,“ seg- ir Dagný. Í síðustu viku ræddi Fréttatíminn við Jóhönnu Þorsteinsdóttur sem fær einungis 40 þúsund á mánuði í örorkubætur þrátt fyrir 75 prósenta örorku en hún var búsett um skeið í Danmörku. Formaður ÖBI segir þetta eina ástæðu þess að fólk býr við sára fátækt á Íslandi. „Endurhæfingarlífeyrir er skamm- tímaúrræði, sem ætlað er að gera þeim sem á þurfa að halda fjárhags- lega kleift að stunda endurhæfingu og ná heilsu og jafnvel starfsorku á ný eftir sjúkdóma eða slys. Ef fólk hefur ekki endurhæfingu fyrr en að þremur árum liðnum aukast lík- urnar á því að það þurfi að búa við varanlega örorku.“ Vegna þessara reglna þyrfti Dagný að bíða í þrjú ár áður en hún öðlaðist rétt á endur- hæfingarlífeyri hér á landi en í henn- ar tilfelli yrði hann á bilinu 212.000 kr. og 247.000 kr. „Það var í rauninni ekkert annað í stöðunni en að flytja aftur heim því í Kaupmannahöfn stóð mér ekki til boða endurhæfing þrátt fyrir mikla leit né virtist ég hafa rétt á neinni framfærslu, ég var því tekjulaus í rúmt ár eftir að ég missti námslán- in,“ segir Dagný. Úrskurðarnefnd almannatrygginga, sem fór með slík mál þar til í fyrra, hefur áður úrskurðað í svipuðu máli árið 2014, eftir að lögum var breytt og staðfesti synjunina. „Ég er því ekki bjartsýn á jákvæða niðurstöðu í mínu máli,“ segir Dagný. „Næsta skref er þá að fara með málið til umboðsmanns Al- þingis,“ segir hún. „Ég viðurkenni að þetta mál hefur tekið mikið á mig. Ég er með síþreytu á háu stigi sem fylgir mikið orkuleysi og finnst skítt að þurfa að eyða minni litlu orku í standa í baráttu við kerfið. Ég þarf á allri minni orku að halda til að stunda þá endurhæfingu sem ég er í svo ég komist vonandi sem fyrst aftur í nám,“ segir Dagný Björk sem hefur bæði rætt við alþingismenn og velferðarvaktina um málið en ekki fengið mikil viðbrögð. Á ekki rétt á endurhæfingarlífeyri vegna náms í Danmörku „Endurhæfingarlífeyrir er skammtímaúrræði, sem ætlað er að gera þeim sem á þurfa að halda fjárhagslega kleift að stunda endurhæfingu og ná heilsu.“ Mynd | Rut Borgarfulltrúar Breyttu skráningu eftir Panamaskjölin Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíð- ar breyttu hags- munaskráningu á vef borgarinnar, en skrifstofa borgarinn- ar neitaði að upplýsa um breytingarnar þegar eftir því var leitað. Að minnsta kosti tveir borgarfull- trúar hjá Reykjavíkurborg upp- færðu hagsmunaskráningu sína á vef Reykjavíkurborgar eftir að Panamaskjölin komust í hámæli í vor. Það eru þeir Skúli Helgason, fulltrúi Samfylkingarinnar, og S. Björn Blöndal, oddviti Bjartrar framtíðar. Sveinbjörg Birna Sveinbjörns- dóttir, borgarfulltrú Framsóknar og flugvallarvina, er gagnrýnd í minnisblaði um fjárhagslega hags- muni borgarfulltrúa en hún braut gegn reglum borgarstjórnar um skráningu á fjárhagslegum hags- munum borgarfulltrúa og trún- aðarstörfum utan borgarstjórnar. Hún var með þrjú félög en ekkert þeirra var skráð í hagsmunaskrán- ingu þannig almenningur hefði að- gang að þeim. Í svari Skúla og Björns kem- ur fram að umræðan um Panamaskjölin hafi verið áminn- ing fyrir þá að fara yfir hagsmuna- skráninguna. Þannig skráði Skúli félagið Ráðalind slf., sem hann á með eiginkonu sinni, en sjálfur segist hann ekki hafa haft tekur af félaginu á síðasta ári, sem voru um sex milljónir króna. Björn skráði fé- lagið Skyn ehf., sem hann notaðist við áður en hann varð borgarfull- trúi. | vg Félag Skúla Helgasonar þénaði 6 milljónir árið 2014. Hælisleitendur „Ég vil frekar deyja hér heldur en að vera pyntaður í Írak,“ segir hælisleitandinn Raisan Al-Shimani, sem býr ásamt fleiri flóttamönnum í Stiga- hlíð í Reykjavík, en hann hefur verið í hungurverk- falli í þrjá daga. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is Raisan er einn af flóttamönnun- um sem hafa tekið kristna trú hjá Toshiki Toma og var hann meðal annars staddur í Laugarneskirkju þegar lögreglan rauf kirkjugrið í vikunni. Raisan er 39 ára gamall sex barna faðir, en fjölskylda hans er enn úti í Írak. Sjálfur starfaði hann fyrir írösku leyniþjónustuna, fyrst und- ir stjórn einræðisherrans Saddam Hussein. Raisan flúði hinsvegar Írak árið 1995 og fór þá til Írans. Hann ákvað hinsvegar að snúa aftur heim árið 2003, þegar innrásarlið Breta og Bandaríkjamanna réðust inn í landið, og hóf hann þá aftur störf sem hermaður. Hann flúði hinsvegar Suður-Írak árið 2015, eftir að hafa lent í átök- um við sjálfstæðar hersveitir sem hann segir að hafi tekið tvo aldraða menn af lífi fyrir framan sig. „Þeir afhöfðuðu annan þeirra fyrir fram- an mig og brenndu lík þeirra,“ segir hann. Raisan er því liðhlaupi og var dæmdur í fangelsi af herdómstóli þar í landi í fjarveru hans. Hann má því búast við að verða handtekinn og fangelsaður snúi hann aftur. Í versta falli verður hann drepinn af hersveitunum sem hann segir að leiti sín. Raisan segir viðbúið að hann verði sendur aftur til Írak, verði honum vísað frá Íslandi til Noregs. Því ætlar hann að svelta sig þar til lausn fæst í hans málum. | vg „Þeir afhöfðuðu annan þeirra fyrir framan mig og brenndu lík þeirra.“ Raisan Al-Shimani starfaði lengst af í leyniþjónustu íraska hersins Liðhlaupi í hungurverkfalli Raisan Al-Shimani er 39 ára gamall Íraki. Hans bíður fang- elsisvist verði hann sendur aftur til Íraks. Mynd | Hari

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.