Fréttatíminn - 02.07.2016, Qupperneq 21
| 21FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 2. júlí 2016
Bankastræti • Borgartúni • Kringlunni • Smáralind • Reykjanesbæ • Safnahúsinu • Þjóðminjasafni • Kruðerí
Kíktu í Kaffitár
Hver einasta kaffibaun og ferðalag hennar í
bollann skiptir máli. Hjá Kaffitár verkum við
kaffið af þekkingu og berum fram með alúð.
Stóri bróðir segir Jón Daða
hafa svo einstakt hugarfar
að hann hefði getað orðið
ólýsanlega góður í hverju
sem hann vildi.
Auðun Daníelsson á ótal falleg
orð um bróður sinn, Jón Daða.
„Hann hefði getað notað orkuna
sína í hvað sem var og orðið hvað
sem hann vildi. Eins og algengt er
með fólk með athyglisbrest þá á
það sér gjarnan eitthvert sérsvið.
Sem dæmi þá byrjaði Jón Daði að
spila á gítar fyrir fimm árum. Síð-
an hefur allur hans frítími farið í
það og hann er auðvitað orðinn
algjör atvinnumaður á hljóðfær-
ið. Ef þú skoðar fjölskyldusöguna
hans þá voru líka engir smá lista-
menn í kringum hann. Þorsteinn
frá Hamri er afi hans og Ásta Sig-
urðardóttir amma hans.”
Auðun passaði yngri bróður
sinn mikið og fannst hann hrika-
lega skemmtilegur krakki. „En
ferillinn hans sem leikmaður
hefur einkennst af miklu harki.
Hvert sem hann hefur farið hefur
hann þurft að byrja á að sanna sig
og mér hefur alltaf fundist hann
hafa verið vanmetinn leikmaður.
Á Selfossi féll hann algjörlega í
skuggann af öðrum leikmanni og
það var ekki fyrr en í þriðja flokki
að fólk fór að fatta hvað hann var
góður. Þjálfarinn hans, Halldór
Björnsson, barðist fyrir því í að
honum yrði gefið tækifæri í ung-
lingalandsliðinu. Alltaf hélt hann
áfram og við sjáum hvar hann er
nú.“
Auðun segir að þó hann sé ný-
leg stjarna á Íslandi, hafi hæfileik-
ar hans ekki dulist þeim sem
fylgst hafa með fótbolta undanfar-
in ár. Jón Daði var algjör lykilmað-
ur á Selfossi þegar liðið klifraði
upp um deild og var valinn efni-
legasti leikmaður Pepsí-deildar-
innar árið 2012. „Sjálfsgagnrýnin
er hans helsti ókostur og hon-
um er algjörlega fyrirmunað að
dæma sjálfan sig með sanngjörn-
um hætti. Ef hann gerir ein lítil
mistök í leik, þá einblínir hann á
þau þó frammistaða hans hafi að
öðru leyti verið frábær. Hugar-
far hans er svo einstakt. Allur
þessi tími og orka sem hann hef-
ur varið í komast á þennan stað.
Vinnusemi hans er ótrúleg. Þeir
sem venjulega hlaupa mest á vell-
inum eru miðjumenn. Tölfræði
Jóns Daða sýnir að hann hleypur
eins og miðjumaður þó hann sé
framherji. Þar að auki er hann
óeigingjarn á vellinum og ekki
þessi ýkti framherjakarakter eins
og kannski Ronaldo eða Zlatan.
Hann hugsar fyrst og fremst um
liðið.“
Hann ítrekar að Jón Daði hafi
fært miklar fórnir í fótbolta og agi
hans og einbeiting á unglingsár-
um hafi kostað ýmislegt. Til dæm-
is félagslíf, þegar aðrir byrjuðu að
drekka og reykja. „Það er óhætt
að segja að hann hafi verið mjög
sjálfstæður og einn að berjast í
sínum fótboltaferli. Hann fékk
ekki mikinn stuðning í fótbolta
fyrr en á unglingsárum og hefur
því unnið fyrir allri sinni vel-
gengni sjálfur.“ | þt
Daníel Auðunsson, stóri bróðir
Jón Daði alltaf vanmetinn
Auðun Daníelsson, stóri bróðir Jóns
Daða, stendur þétt við bakið á lands-
liðsmanninum.
Jón Daði Böðvarsson
Fæddur 25. maí 1992.
Ólst upp og lék með liði Sel-
foss. Lék með meistaraflokki
2008-12.
Í láni hjá unglingaliði í Árósum.
Fór til Víkings FK í Noregi
2013-15.
Fór í þýska stórliðið
Keiserslautern fyrr á þessu ári.
Leikur í treyju nr. 15.
Valinn fyrst í unglingalandslið
2009, fyrsti A-landsliðsleikur
2012.
Hefur leikið í 319 mínútur af
360 á EM.
Hefur skorað eitt mark, fyrra
markið gegn Austurríki, og lagt
upp annað.