Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 02.07.2016, Side 34

Fréttatíminn - 02.07.2016, Side 34
Hjónaband Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick hef- ur gengið upp og ofan í gegnum tíðina. Þau eru nú farin af stað með nýtt plan til að bæta hjóna- band sitt og kalla það „meðvitaða pörun“. Þau gera þetta með því að selja gamla heimili sitt og kaupa sér tvær samliggjandi íbúðir í New York. „Þau komust að því að það besta í stöðunni til að bjarga hjónabandinu væri að búa í sitt hvorri íbúðinni. Þau munu rífa niður vegginn sem skilur íbúðirnar að en það verður pottþétt þannig að hún fær sinn helming og hann fær sinn og börnin hafa aðgang að báðum helmingum,“ segir heim- ildarmaður RadarOnline. Þessi aðferð segir þessi heim- ildarmaður að henti þeim hjónum Vinna í hjónabandi sínu á óvenjulegan hátt Hjónin Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick eru með ólíkar heimilisvenjur svo þau búa í sitt hvorri íbúðinni Babb í bátinn Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick fara óhefðbundnar leiðir til að bjarga hjónabandinu. mjög vel af því að Matthew sé mjög óþrifalegur á meðan Sarah Jessica vill hafa óaðfinnanlegt skipulag á sínum eigum. „Þau borða ennþá saman á kvöldin og ef þau eru í stuði gista þau jafn- vel saman, svo það er ekki eins og þau lifi sitt hvoru lífinu. Þetta er meira það að þau eru að koma fram við 20 ára hjónaband með þeirri virðingu og ástúð sem það þarf á að halda,“ segir þessi heim- ildarmaður. Louis krefst sameiginlegs forræðis Louis Tomlinson á 5 mánaða gamlan son með sinni fyrrver- andi, Briana Jungwirth. Hann hefur nú krafist sameig- inlegs forræðis og vill fá að taka virkan þátt í uppeldi sonarins. Louis hefur verið duglegur við að birta myndir af sér með drenginn sinn en hingað til hafa hann og Briana verið með innbyrðis samkomulag um umgengni við barnið. Ástæðan fyrir því að Louis er að fara fram á sameiginlegt forræði er meira til þess að hafa allt á pappír- um upp á framtíðina, frekar en að ágreiningur hafi komið upp. Demi Moore á ekki sjö dagana sæla Demi Moore var ein launahæsta leikkona í heimi. Hún á nú að baki 3 misheppnuð hjónabönd, meðferð og verk- efnaleysi. Demi var að selja íbúð sína í New York, sem hún bjó í meðan hún var gift Ashton Kutcher. Hún vakti athygli í maí þegar hún mætti, grennri en nokkru sinni á viðburð á vegum Vogue en þá sagði heimildarmaður að hún væri búin að eiga mjög erfitt að undanförnu. Er alveg til í að vera með konum Khloe Kardashian á að baki nokkur misheppnuð sam- bönd en er til í að breyta til í lífinu sínu. Nú hefur hún sagt frá því að hún sé alveg opin fyrir því að fara á stefnumót með konum. „Khloe hefur fyllst ákveðnu vonleysi þegar kemur að karlmönnum. Hún er að reyna að finna mann sem er skemmtilegur en samt trúr og það virðist ómögulegt,“ segir heimildarmaður RadarOnline. Hann segir einnig að nú sé hún farin að eyða meiri tíma með samkynhneigðum vinum sínum og vilji láta koma í ljós hvað gerist í framhaldinu. Lögð inn vegna ofkeyrslu Rita Ora var lögð inn á spítala í þessari viku vegna þess að hún var búin að ofkeyra sig. Hún sat fyrir í mynda- töku í London og það var þar sem hún gafst upp og var í kjölfarið flutt á spítala. Hún setti inn mynd af sér á Instagram þar sem hún liggur í sjúkrarúmi og við myndina skrifaði hún: „Dagurinn í dag var frekar erf- iður en ég kemst í gegnum þetta með ykkar stuðingi. Takk fyrir að styðja við bakið á mér. Ég elska ykkur!!“ „Hann hélt framhjá mér!“ Iggy Azaela og Nick Young voru að hætta saman og ýmsar sögur hafa verið á kreiki um að Nick hafi haldið framhjá Iggy. Hún hefur nú staðfest það og gerði það á Twitter, fyrir allan heiminn. Hún skrifaði: „Ég hætti með Nick af því ég komst að því að hann hafði komið með aðrar konur inn á heimili okkar og ég sá það á öryggismyndböndum. Þetta er eins og að vera skot- in í brjóstið og núna líður mér eins og ég þekki ekki þann sem ég hef elskað allan þennan tíma.“ Guðrún Veiga Guðmundsdóttir gudrunveiga@frettatiminn.is Hugmyndin að þessu kviknaði af því að við höfum farið í menntaskóla með fyr-irlestra um skaðsemi staðalímynda og mikilvægi fyr- irmynda þegar kemur að hinseg- inveruleika. Þar höfum við séð hversu mikilvægt það er að fræða ungmenni um hinseginveruleika og afrugla allar þær mýtur sem hafa fengið að grassera um slíkt alltof lengi,“ segir Ingileif Frið- riksdóttir, laganemi og blaða- maður, sem ásamt unnustu sinni, Maríu Rut Kristinsdóttur, opnaði Snapchat-aðgang sem ber nafnið Hinseginleikinn. Hinseginleikinn er snapp þar sem fólk getur fengið innsýn í líf hinsegin fólks í öllum regnbogans litum og gerðum. „Eftir að hafa farið í skólana með fyrirlestra þá fundum við fyrir mjög mikl- um áhuga frá fólki og það hafði rosalega margar spurningar en það vantaði vettvanginn til þess að spyrja. Við hugsuðum þetta snapp þess vegna svolítið sem stað þar sem fólk gæti spurt spurn- inga, jafnvel nafnlaust ef það kýs. Einstaklingar geta til dæmis verið í vafa með sjálfan sig, þora ekki að segja frá því og vita ekki alveg hvert á að leita og óttast kannski að spyrja hvern sem er út í svona mál. Hinseginleikinn er vett- vangur fyrir spurningar, opnar umræðuna og hjálpar okkur að koma í veg fyrir ranghugmyndir fólks um það hvað það er að vera hinsegin.“ Þær Ingileif og María hafa fengið til liðs við sig alls kyns gestasnapp- ara til þess að taka yfir snappið reglulega. „Til þess að vitunda- vakningin verði sem öflugust og víðtækust höfum við fengið fullt af góðu fólki með okkur í lið. Það sem við viljum er að taka alla flór- una, bara eins og hinseginleikinn leggur sig. Á næstu dögum verður hjá okkur stelpa sem er intersex, sem þýðir að þú fæðist með óræð kynfæri. Fljótlega kynnumst við svo kynsegin manneskju, það er þá einstaklingur sem skilgreinir sig hvorki sem karl eða konu, held- ur hvorugkyn eða bæði í einu. Allt flokkast þetta undir hinseginregn- hlífina og er eitthvað sem við höf- um fengið margar spurningar um, til dæmis á fyrirlestrum okkar.“ Á aðeins tveimur vikum hefur Hinseginleikinn fengið á annað þúsund fylgjendur á Snapchat. „Við finnum að fólk er forvitið og með því að fá fjölbreytt fólk til þess að taka yfir snappið þá vekjum við áhuga og opnum um- ræðuna. Ef ég hefði haft eitthvað svona til þess að fylgjast með þegar ég var 15 eða 16 ára þá hugs- anlega hefði ég komið fyrr út úr skápnum af því að um leið og mað- ur fræðist og losar sig við rang- hugmyndir sér maður að þarna er bara eðlilegt fólk sem lifir eðlilegu lífi og er ekkert öðruvísi þó það sé hinsegin.“ Blaðamaður hvetur áhugasama til þess að fylgjast með hinsegin- leikanum á Snapchat, undir not- endanafninu Hinseginleikinn. Mikilvægt að fræða fólk og uppræta staðalímyndir Hinseginleikinn er snapp þar sem fólk getur fengið innsýn í líf hinsegin fólks í öllum regnbogans litum og gerðum María Rut, Ingileif og sonur þeirra, Þorgeir Atli. …fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2016 Á næstu dögum verður hjá okkur stelpa sem er intersex, sem þýðir að þú fæðist með óræð kynfæri. Fljótlega kynnumst við svo kynsegin manneskju, það er þá einstaklingur sem skilgreinir sig hvorki sem karl eða konu, heldur hvorugkyn eða bæði í einu. Þau borða ennþá saman á kvöldin og e f þau eru í stuð i gista þau jafn vel saman. Sumartilboð á úrum 1. - 10. júlí Gott úrval - gott verð 25% afsláttur 30% afsláttur 25% afsláttur 30% afsláttur

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.